Morgunblaðið - 30.11.1986, Síða 34
34 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1986
IJÉ tiEMMI rvrMYNDANNA
T»Arric
Harrison Ford í
Moskítoströndinni
Sýningar eru nú að hefj-
ast á myndinni Moskító-
ströndin úti í Bandaríkjun-
um, sem gerð er eftir
samnefndri sögu Paul
Theroux. Með aðalhlut-
verkið fer Harrison Ford
en leikstjóri er Peter Weir.
Eins eins og margir vita
slógu þeir aldeilis í gegn
með síðustu myndinni sem
þeir gerðu saman, nefni-
lega Vitninu (The Witness).
Það tók framleiðanda
Moskítóstrandarinnar, Jerome
Hellman, meira en þrjú ár að
safna peningum til að gera
myndina. Flestir topparnir hjá
stóru kvikmyndaverunum sögðu
söguna einfaldlega ekki hafa
nógu „gæfulegt innihald".
Hvað er gæfulegt innihald?
„Það er algerlga meiningar-
laust eftir því sem ég kemst
næst," segir Hellman. „Ég býst
við að það sé hugmynd sem
hægt er að orða í einni setningu
svo einfaldri að engin hætta er
á neinum ruglingi og sennilega
með góðum endi. Ef við hefðum
verið fúsir til að láta söguhetjuna
verða að nýjum manni, og fara
aftur með fjölskyldu sína til Nýja
Englands, hefðum við ekki átt í
neinum vandræðum."
Myndin segir frá Allie Fox
(Harrison Ford), sem ofbýður það
sem honum finnst vera hnignun
Ameríku. Það er að hans mati
þjóðféiag skyndimatar, glæpa og
hræsni og það skortir frum-
kvæði. Svo hann ákveður að taka
fjölskyldu sína með sór til
Moskítóstrandarinnar, í hinn
villta frumskóg Mið-Ameríku, og
byrja upp á nýtt.
Hellman, sem einnig hefur
framleitt myndir eins og Mid-
night Cowboy og Coming Home,
varð hrifinn af þeim málefnum,
sem bók Theroux tekur á og
margræðni hennar. „Það er ekki
oft sem bíómyndirtaka á þessum
efnum; ófullkomleika mannsins,
þeirri staðreynd að það er
flónska að vaða inn í frumstæða
menningu með tækni og tól
nútímamannsins haldandi að
hægt sé að betrumbæta hana."
Hellman fékk Ástralann Peter
Weir til liðs við sig og Jack Nichol-
son var tilbúinn að leika and-
hetjuna Allie en það var ekki fyrr
en Nicholson datt út úr myndinni
og Hellman réði Harrison í aðal-
hlutverkið, að áhugi peninga-
manna jókst. Það var aðallega
vinsældum Vitnisins að þakka.
Hellman tók nokkra áhættu með
að fá Harrison hlutverkið því
Harrison er hin rómantíska hetja
í myndum sínum. Sem Allie Fox
Harrlson Ford f Moskftóströnd-
inni.
yrði hann sérvitringur og ekki
fullkomlega sympatískur.
„Myndin, sem við vildum gera,
átti að leggja megináhersluna á
hina mannlegu kosti Allies," seg-
ir Hellman. „Peter lagði áherslu
á að gera mynd um mannleg
samskipti og gera Allie mann-
eskjulegri." ÞeirWeirog Hellman
bjuggu jafnvel til eina úgáfu þar
sem Allie var meira viðkunnan-
legur, skrítinn kall en gagntekinn
maður sem lætur skynsemina
víkja fyrir hugsjón sinni. „Það var
okkar svar við þeim hópi fólks
sem segir að það hafi hætt að
halda með persónunni vegna
neikvæðra eiginleika hennar,"
segir Hellman, „en á endanum
fannst okkur myndin ekki eins
góð þannig."
I FRAMAIMDI
UMHVERFI
James Cameron er hrifinn af
vopnum, þó sórstaklega stórum
vopnum, og hann kann að nýta
sér þau í myndum sfnum.
„Tortímandinn1' ber áhuga hans
ótvírætt vitni en nýjasta mynd
hans, „Aliens", sem Bfóhöllin
sýnir sem fyrstu jólamynd sfna
þetta áriö, slær þó öll fyrri met
hvað þetta varðar. „Aliens" er
aö sönnu ekki upphafleg hug-
mynd Camerons, þar sem hún
er framhald af „Alien" frá 1979.
Cameron samþykkti aö stýra
„Aliens" með því skilyrði að fyrri
myndin setti honum ekki allt of
miklar skorður.
Hann afréð ennfremur að hafa
ekkert samband við leikstjóra fyrri
myndarinnar, Ridley Scott. Hann
vildi vinna úr eigin hugmyndum.
Það merkasta sem Cameron fann
upp á var að gera konu að stærstu
persónunni, það er persónan sem
Sigourney Weaver leikur, en hún
ein lifði fyrri myndina af eins og
menn sjálfsagt muna.
Það tók Cameron ekki nema
þrjá daga að skrifa handritið. Hann
hafði áður skrifað nokkur kvik-
myndahandrit, þeirra á meðal
„Rambo", en Cameron var síður
en svo sáttur við hvernig Stallone
Ástralía
Um Krókódíla
Dundee
Vinsælasti kappi kvikmyndanna íÁstralíu
slær einnig í gegn í Bandaríkjunum
Þrettán vikum eftir að hún var
frumsýnd í Ástralíu f sumar hafði
ástralska gamanmyndin
Krókódíla-Dundee (Crocodile
Dundee) halað inn meiri pening f
gegnum miðasölulúgumar en ET,
sem haldið hafði toppsætinu í
nokkur ár. Átján milijón dollarar
hringluðu í kössunum en ET hafði
„aðeins" tekið inn 12,8 milljónir.
Síðan „Dundee" var frumsýnd í
Bandaríkjunum í september hefur
hún veriö á toppnum — eða í nánd
við hann — á vikulegum lista Vari-
ety („biblía bandaríska skemmt-
anaiðnaðarins") yfir mestsóttu
kvikmyndir í landinu. Eftir því að
dæma er hún vinsælasta ástralska
bíómyndin, sem sýnd hefur verið
í Bandaríkjunum til þessa, og skýt-
ur þar með Mad Max-myndum
George Millers ref fyrir rass.
Sá sem fer með aðalhlutverkið
í þessari vinsælu mynd heitir Paul
Hogan og er 44 ára gamall sjón-
varpsskemmtikraftur. Sjáifur kallar
hann myndina „einfalda og litla"
og það er varla hægt að bera á
móti því. Hún er um Michael J.
(krókódíl) Dundee en hann er
krókódílaveiðari í óbyggðum Ástr-
alíu. Hann verður fréttaefni um
stundarsakir þegar á hann ræðst
krókódíll og hann dregst, þrátt fyr-
ir illa særðan fótlegg, aftur í
siðmenninguna, sem á þessum
slóðum er næsta krá. Kemur þá
Sue Chariton (Linda Kozlowski) til
sögunnar, harðsoðinn fréttaritari
frá New York, en hún hefur upp á
Dundee og tekur þátt í æfintýrum
hans fyrir blað sitt. Hún fær hann
til að heimsækja New York með
sér og mestanpart seinnihluta
myndarinnar segir frá Dundee í
hinum ýmsu kröggum sem út-
lenskur sakleysingi getur lent í, í
stórborginni.
„Mick Dundee er goðsagnaper-
sóna. Við Ástralir vildum gjarna
hafa svolítinn part af honum í okk-
ur,“ segir Paul Hogan. „Ég fékk
hugmyndina að sögunni eftir mína
fyrstu ferð til New York fyrir tveim-
Kvikmyndaleikstjórinn James
Cameron.
sundurtætti handritið og gerði
Rambo að teiknimyndafígúru í
anda Tomma og Jenna. Cameron
vildi að Rambo væri áfram þessi
breyski hermaður eins og hann var
í „First Blood". Cameron segir það
mestu vonbrigði í lífi sínu þegar
hann fór að sjá prufusýningu á
Rambo og sá hverslags skrímli
Stallone hafði tekist að gera úr
annars ágætri sögu.
James Cameron finnst ekkert
athugavert við það að gera fram-
hald af bíómynd (enda hafa tvær
ur árum. Skömmu seinna dvaldi
ég í óbyggðum Norðursvæðisins í
Ástralíu og mér þótti menning
New York og menning Norður-
svæðisins eins ólík og hægt er að
hugsa sér. Mér þótti New York
framandleg þegar ég var þar en
prófaðu að senda einhvern frá
Norðursvæðinu þangað og honum
finnst hann lentur á Mars."
Það var kannski ekki síst vin-
sældum Hogans í áströlsku
sjónvarpi að þakka að honum og
framleiðandanum John Cornell
gekk auðveldlega að safna frá
áhugasömum aðilum þeim níu
milljonum dollara sem í myndina
þurfti. „Við urðum að senda þrjár
og hálfa milljón til baka,“ segir
Hogan. „Og við þurftum ekki einu
sinni að forselja hana dreifingarað-
ilum. Það síðasta sem við vildum
var að hafa einhvern endurskoð-
anda frá stóru kvikmyndaveri yfir
okkur til að fylgjast með hvernig
peningunum var eytt.“
Paul Hogan
leikur Michael J.
Dundeeí
áströlsku gaman-
myndinni, Krókó-
dfla-Dundee. Hór
er hann að kenna
einhverjum mis-
yndismönn-
unum guðs-
ótta og
góða siði.
O
o
UJ
cc
<10
/1
p
Krókódfla-Dundee í New York: á'/
Vinsælasta ástralska myndin sem Jf/
sýnd hefur verlð f Bandarfkjunum. ,'iív