Morgunblaðið - 28.02.1988, Síða 1
96 SIÐURB
49. tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Flugslys
áKýpur
Nicosia, Reuter.
BOEING 727 flugvél Talya Air-
lines í Istanbúl fórst í gær með
15 manna áhöfn innanborðs.
Engir farþegar voru í vélinni
sem fórst í fjallgarði á norðan-
verðri Kýpur.
Ahöfn vélarinnar missti fjar-
skiptasamband við flugtuminn á
Erean-flugvelli tíu mínútum áður
en vélin átti að lenda. Þegar reyk
sást leggja frá Kyrenia-fjöllum í
tyrkneska hluta Kýpur lögðu björg-
unarmenn af stað til leitar. Ekki
er vitað hvort nokkur úr áhöfninni
komst lífs af. Talið er að þetta
hafí verið eina flugvél tyrkneska
flugfélagsins.
V estur-Þýskaland:
Vinnuvik-
an styttíst
Gelsenkirchen, Vestur-Þýskalandi, Reuter.
VERKAMENN í stáUðnaði í Vest-
ur-þýskalandi hafa samið við
vinnuveitendur sína um styttingu
vinnuvikunnar í 36,5 stundir.
Búist er við að samkomulagið sem
túlkað er sem sigur fyrir verka-
lýðshreyfinguna verði samþykkt i
atkvæðagreiðslu eftir helgina.
IG Metall, verkalýðsfélag iðn-
verkamanna, er eitt hið öflugasta í
Vestur-Evrópu með 2,6 milljónir fé-
lagsmanna. Þar af vinna 150.000 í
stáliðnaði. Talsmenn þess sögðu3t í
gær vera ánægðir með nýja sam-
komulagið sem þeir hafa barist fyrir
mánuðum saman. Þeir segja að það
komi í veg fyrir að fjögur þúsund
verkamönnum í stáliðnaði verði sagt
upp. í skiptum fyrir stytta vinnuviku
sömdu þeir um einungis tveggja pró-
senta kauphækkun á næstu tveimur
árum.
Vinnuveitendur segja nauðsynlegt
að draga saman seglin vegna bágrar
stöðu markaðar fyrir skip og fleira.
Þúsundum manna hefur þegar verið
sagt upp störfum og sérfræðingar í
þungaiðnaði segja að enn þurfi að
fækka í greininni.
Morgunblaoið/RAX
BEÐIÐ EFTIR BOLTANUM
Amman:
Friðartil-
lögum þung-
lega tekið
Amman. Reuter.
GEORGE Shultz, utanrikisráð-
herra Bandaríkjanna, ræddi í
gær við jórdanska ráðamenn
um ástandið á hernámssvæðum
ísraela og tillögur Bandaríkja-
stjórnar um friðarsamninga
milli þeirra og araba. Hafa leið-
togar arabarikjanna tekið til-
lögunum heldur þunglega og
finnst þær ganga of skammt og
i Israel skiptir alveg i tvö horn
með afstöðu stjórnarflokkanna
til þeirra.
Shultz átti gær viðræður við
Hassan krónprins í Jórdaníu og
Zeid al-Rifa’i forsætisráðherra og
ætlaði síðan til Damaskus í Sýr-
landi á fund Hafez al-Assads for-
seta. Hussein Jórdaníukonungur
er hins vegar í fríi í Bretlandi og
er talið líklegt, að hann vilji sjá
hvemig Shultz reiðir af áður en
hann hittir hann í London á þriðju-
dag. Jórdanir, Sýrlendingar og
Egyptar hafa lagt áherslu á, að
skilyrðið fyrir hugsanlegum friðar-
samningum sé að kvödd verði sam-
an alþjóðleg ráðstefna, sem hafí
umboð til að skipa ísraelum burt
af hemumdu svæðunum.
Viðræður Shultz við ísraelska
ráðamenn einkenndust af þeim
ágreiningi, sem er með þeim um
hugsanlega friðarráðstefnu og
hemumdu svæðin. Yitzhak Shamir
forsætisráðherra og Likud-banda-
lagið vilja enga ráðstefhu og engu
landi skila en Shimon Peres ut-
anríkisráðherra og Verkamanna-
flokkurinn era á öndverðum meiði.
Mannskæð átök kyntu undir
þjóðemisvakningu Armena
Moskvu, Reuter.
UNDANFARNA daga hefur
komið til átaka milli Armena og
múhameðstrúarmanna í Nag-
orno-Karabakh-héraði i Az-
Hefði bréfið frá Lenín
getað breytt sögunni?
Moskvu. Reuter.
EITT af síðustu bréfunum, sem Lenín skrifaði, þar sem hann legg-
ur til, að kommúnistaflokkurinn losi sig við Josef Stalín, komst í
hendur Stalin sjálfum fyrir mistök og auðveldaði honum að treysta
stöðu sína. Var frá þessu skýrt i Prövdu, málgagni sovéska komm-
únistaflokksins, í fyrradag.
Bréflð var stflað til flokksþings-
ins árið 1924, sem Lenín lifði ekki
til að sitja, og var raunar birt á
valdatíma Níkíta Khrústsjovs árið
1956. Ekki hefur þó fyrr verið
upplýst hvemig Stalín komst yfir
það.
í bréflnu lýsir Lenín Stalín sem
grófum og hrottafengnum manni,
sem hafl tekist að sölsa undir sig
allt of mikil völd eftir að hann varð
aðalritari árið 1922. Bað Lenín rit-
ara sinn, M. Volodísjovu, að geyma
bréfsins vel fram að flokksþinginu
en Volodísjovu láðist að vara hinn
ritarann, L. Fotijovu, við og frá
henni barst bréfið til Stalíns í des-
ember 1922, mánuði fyrir dauða
Leníns.
Á flokksþinginu 1924 var bréfið
sýnt fáum mönnum en ekki þing-
heimi öllum og var afgreitt þar sem
vangaveltur Leníns en ekki sem
bein fyrirmæli hans. Stalín stjóm-
aði síðan Sovétríkjunum þar til
hann lést árið 1953 og bar ábyrgð
á dauða milljóna manna.
erbajdzhan. Mannfall hefur orð-
ið en ekki er kunnugt um hve
víðtæk átökin eru. Þetta kemur
fram í ræðu Vladímírs Dolgíkhs,
orkumálaráðherra Sovétríkj-
anna og aukameðlims Stjóm-
málaráðsins, sem birt er í dag-
blaðinu Kommunist sem gefið
er út í Armeníu. „Slík þróun
getur leitt til ófyrirséðra kring-
umstæðna og varpar að sjálf-
sögðu skugga á bræðralag Arm-
ena og íbúa Azerbajdzhans,”
segir Dolgíkh sem sendur var
til Jerevans, höfuðborgar Arm-
eníu, til að lægja ófriðaröldurn-
ar.
Dolgíkh upplýsti ekki hversu
mikið mannfall hefði orðið og
blaðamenn í Jerevan gátu ekki
veitt nánari upplýsingar. Svo virð-
ist sem átökin sem einkum áttu
sér stað fyrir tíu dögum hafí ýtt
undir mikla þjóðemisvakningu
meðal Armena. Alexander Kat-
úsev, aðstoðarríkissaksóknari Sov-
étríkjanna er kominn til Nagomo-
Karabakhs til að grafast fyrir um
ástæður óeirðanna.
Á föstudag safnaðist ein milljón
manna saman í Jerevan en íbúar
hennar em 1,2 milljónir talsins.
Kröfur mótmælenda hafa falist í
þvi að Armenía fái aftur Nagomo-
Karabakh-hérað sem frá árinu
1923 hefur tilheyrt Azerbajdzhan
en var áður hluti Armeníu. íbúar
héraðsins sem er fjalllent en fijó-
samt em að þremur fjórðu hlutum
af armenskum uppmna. Fjórðung-
ur íbúanna er shíta-múslímar.
Embættismaður í Jerevan sem
ekki vildi láta nafns síns getið
sagði í gær að enn væri mikill
mannfjöldi á götum borgarinnar.
Fundir hefðu verið haldnir „í öllum
fyrirtækjum, á öllum samyrkjubú-
um og héraðsráðum. Allir kröfðust
sameiningar Nagomo-Karabakhs
og Armeníu". Skólum og verk-
smiðjum var lokað í gær.