Morgunblaðið - 28.02.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1988
Sveinn bakari
Undirbúningur er þegar hafinn að síðustu fram-
kvæmdum á Torfunni
samningur við íjármála-
ráðuneytið um að Minja-
vemd taki við Gimli en
það var eina húsið á
svæðinu, sem ekki var í
umsjá félagsins, að sögn
Þorsteins Bergssonar
framkvæmdastjóra. Ekki
hefur enn verið tekin
ákvörðun um hvaða staf-
semi verður í nýju húsun-
um, sem þama rísa en
gert er ráð fyrir að þar
verði verslanir og önnur
þjónusta.
„Við munum sem fyrr
reyna að vanda val þeirra
aðila, sem þama fá inni
og sjá til þess að þar
skapist sú heild sem við
sækjumst eftir," sagði
Þorsteinn. „Við munum
því gera sérstakar kröfur
tii okkar sjálfra hvað
varðar nýtingu á gamla
bakaríinu en það er fyrsta
bakarí landsmanna."
Stjóm Minjavemdar
skipa Höskuldur Jónsson
og Gunnlaugur Claessen,
fyrir fjámálaráðuneytið,
Þröstur Ólafson og Hjör-
leifur Stefánsson, fyrir
Torfusamtökin og Lilja
Ámadóttir, fyrir Þjóð-
minjasafnið.
Torfan:
Morgunblaðið/Bar
Síðustu húsin endurbyggð
FÉLAGIÐ Minja-
vernd hefur hafist
handa við lokaáfanga
að uppbyggingu Torf-
unnar og er fyrirhugað
að endurbyggja korn-
hlöðuna, sem stóð á
milli gamla bakarisins
og Skólastrætis. Einnig
verður byggt hús með-
fram Skólastræti í
framhaldi af Sveins-
bakaríi. Verkið verður
boðið út f nokkrum
áföngum og á fram-
kvæmdum að vera Iokið
í mars á næsta ári.
Minjavemd er sjálfs-
eignarstofnun, sem tekið
hefur við af Torfusam-
tökunum. Félagið sér um
allar framkvæmdir á
Torfunni, legir út hús-
næði og er leigutekjum
ætlað standa undir
rekstri húsanna og fram-
kvæmdum. Verði tekju-
afgangur skal veita fé til
varðveislu og viðhalds
gamalla bygginga utan
borgarmarkanna.
Nýlega var gerður
/
Lzkjarbrekka
(vcinngahús)
Elsta
(brann og stendur autt)
Torfan-
(veitingahús)
T O R F A N Landlæknishúsió-
Guðmundur Ein-
arsson forstjóri:
Fjárveit-
ingarvoru
of lágar
„ÁSTÆÐUR þessara vanskila eru
fyrst og fremst þær að fjárveit-
ingar á þessum árum voru mun
lægri en rekstraráætlanir okkar
gerðu ráð fyrir og má í því sam-
bandi nefna að árið 1984 var á
fjárlögum aðeins fjárveiting til
reksturs útgerðarinnar i hálft
ár,“ sagði Guðmundur Einarsson,
forstjóri Skipaútgerðar ríkisins,
er hann var spurður um skýringar
á erfiðri fjárhagsstöðu fyrirtæk-
isins, sem greint var frá í frétt
Morgunblaðsins í gær. Þar kemur
meðal annars fram, að uppsafnað-
ar vanskilaskuldir Skipaútgerðar-
innar nema nú 356 milljónum
króna, og hefur samgönguráð-
herra óskað eftir athugun og
greinargerð Ríkisendurskoðunar
á fjárhagsstöðu útgerðarinnar.
Guðmundur sagði að stjómendur
útgerðarinnar hefðu ítrekað vakið
athygli á þessu máli við stjómvöld
og farið þess á leit að gripið yrði til
einhverra ráðstafana til úrlausnar. í
ítarlegri skýrslu stjómar útgerðar-
innar frá árinu 1985 hefði verið
varáð við þessari þróun. „Því miður
hefur ekki tekist að leysa þetta mál
til þessa og í sjálfu sér er það
ánægjulegt fyrir okkur að sam-
gönguráðuneytið skuli nú ganga
hraustlega til verks og fá óyggjandi
tölur um Qárhagsstöðu fyrirtækis-
ins. Við fögnum því og vonum að
það verði til þess að málið leysist
með einhveijum hætti," sagði Guð-
mundur.
Hann kvaðst á þessu stigi ekki
vilja tjá sig um hugsanlega lausn á
þessu máli. „Aðalatriðið er að þetta
verði leyst með einhveijum hætti
þannig að við vitum hvar við stönd-
um og að reksturinn geti orðið innan
ramma fjárlaga, eins og eðlilegast
væri,“ sagði Guðmundur.
$fÁk
Kjarasamningar VMSÍ og vinnuveitenda:
„Græn strik“ í
júlí og nóvember
í NÝGERÐUM kjarasamningi Verkamannasambands íslands og
vinnuveitenda getur launaliður samningsins orðið laus í júlí og nóv-
ember nk. ef verðlagsþróun verður með öðrum hætti en ráð er fyr-
ir gert i samningnum og samkomulag tekst ekki um verðlagsbætur.
Miðað er við framfærsluvísitöluna 261 stig i júlímánuði og 272 stig
í nóvembermánuði.
Eignir Fálkans við Suðurlandsbraut.
Húseignir Fálkans við
Suðurlandsbraut til sölu
EIGNAMIÐLUNIN auglýsir í
Morgunblaðinu í dag allar hús-
eignir Fálkans við Suðurlands-
braut 8. Samkvæmt upplýsingum
Sverris Kristinssonar sölustjóra
Eignamiðlunar eru eignimar um
3600 fm auk byggingarréttar að
þremur skrifstofuhæðum.
Að sögn Páls Bragasonar for-
stjóra Fálkans er fyrirtækið að
byggja verslunar-, lager- og skrif-
stofuhúsnæði við Grjótháls en þang-
að verða höfuðstöðvar Fálkans flutt-
ar í mun stærra framtíðarhúsnæði.
Þá er verið að innrétta verslunar-
pláss í nýbyggingu Fálkans í Mjódd
sem opnað verður á næstu vikum.
Náist ekki samkomulag um verð-
lagsbætur fyrir 20. júlí og 20. nóv-
ember nk. getur VMSÍ sagt samn-
ingnum lausum frá og með 1. ágúst
eða 1. desember nk. Þessi ákvæði
eru svipuð þeim, sem samið var um
í Vestíjarðasamningnum fyrir rúm-
um mánuði, eða svokölluð „græn
strik“. Einnig eru í samningi VMSÍ
og vinnuveitenda ákvæði þess efnis
að ef samningar verði gerðir við
stærri félög utan VMSÍ um meiri
grunnlaunabreytingar en þær sem
VMSÍ og vinnuveitendur sömdu um,
geti VMSÍ krafist endurskoðunar á
launaliði samningsins. Sama gildi
um kjarasamninga opinberra
starfsmanna og ríkisins.
Samningsaðilar vonast til að með
kjarasamningi þeirra geti verðbólga
næstu 12 mánuði verið 16% en
undanfama 12 mánuði hafi hún
verið 25%.
Auglýsingatekjur minni
ef rás 2 er felld niður
••
— segir Markús Orn Antonsson útvarpsstjóri
INNLEN1T
Tónleikar í MH
Ranghermt var í blaðinu í gær að
tónleikar Musica Nova verði í. Nor-
ræna húsinu. Tónleikamir verða í
Menntaskólanum við Hamrahlíð í
dag, sunnudag, og hefjast klukkan
„ÉG óttast að þetta verði út-
þynntur grautur ef að rásimar
tvær verða sameinaðar og þær
hrærðar saman,“ sagði Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóri en
Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra hyggst
beita sér fyrir, að létta þeirri
skyldu af Rikisútvarpinu, að
senda út tvær h(jóðvarpsdags-
skrár. Markús sagðist ennfrem-
ur óttast að auglýsingatekjur
Ríkisútvarpsins yrðu minni ef
rás 2 yrði felld niður og gæti
sú ráðstöfun Ieitt til hækkunar
á afnotagjöldum. Þá bendir
hann á, að í útvarpslögum er
gert ráð fyrir svæðisútvarpi í
öllum landshlutum en þeirri
dagskrá er útvarpað um dreifi-
kerfi rásar 2.
„Það er afar brýnt fyrir ríkisút-
varpið að hafa tvær rásir í hljóð-
varpi vegna þeirrar samhæfingar,
sem er orðin milli rásar 1 og rásar
2," sagði Markús. „Með tilkomu
rásar 2 hefur verið hægt að beita
sér enn frekar fyrir íjölbreyttari
dagskrá á rás 1. Auka þar hlut
sígildrar tónlistar og bæta dag-
skrána með sérstökum þáttum fyr-
ir ákveðna samfélagshópa. Sem
dæmi má nefna þætti fyrir böm
og fræðsluþætti fyrir foreldra,
aldraða og öryrkja að ógleymdum
þáttum um listir, menningarmál
og þjóðlegum fróðleik. Rás 2 býður
hinsvegar upp á létta tónlist bland-
aða dægurmálaumræðu."
Dagskrá svæðisútvarpanna á
Norður- og Austurlandi er útvarp-
að um dreifikerfi rásar 2 og sagði
Markús að tekin hafi verið ákvörð-
un um að koma á svæðisútvarpi á
Vestfjörðum. Þá er ætlunin að
hefja rekstur fræðsluútvarps í
Ríkisútvarpinu um dreifikerfi rásar
2 og eru uppi hugmyndir um að
þar verði tungumálanámskeið á
kvöldin. Verður byijað með nám-
skeiðin næsta haust eða jafnvel
gerð tilraun með þau á næstunni
að sögn Markúsar.
17.