Morgunblaðið - 31.08.1999, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dagskráin á Degi símenntunar tókst vel en aðsókn hefði mátt vera meiri
:
V
Morgunblaðið/Þorkell
Dagskráin á Degi símenntunar var fjölbreytt. Námsbraut fyrir nuddara í Fjölbrautaskólanum við Ármúla var á meðal þess sem kynnt var.
Nýtt viðhorf
til menntunar
AÐSTANDENDUR Dags sí-
menntunar eru almennt ánægðir
með hvernig til tókst með dagskrá
hans síðastliðinn laugardag. Þó
telja þeir að margt megi bæta fyrir
næsta ár, svo sem húsnæðismál og
upplýsingar. Aðstandendurnir von-
ast einnig til að aðsókn verði betri
á næstu árum. Forseti íslands
gerði breytt eðli menntunar að um-
fjöllunarefni í ávarpi við setningu
Dags símenntunar og menntamála-
ráðherra lagði áherslu á mikilvægi
tölvu- og upplýsingatækni við allt
nám í ræðu sinni.
Menntamálaráðuneytið stendur
fyrir sérstöku fimm ára átaki í
þágu símenntunar í landinu. Dagur
símenntunar verður haldinn hvert
þessara ára. Mennt sér um fram-
kvæmd dagsins fyrir hönd ráðu-
neytisins.
Hagur margra aðila
Ingi Bogi Bogason er formaður
Menntar. Hann segist ánægður
með hvernig til tókst á Degi sí-
menntunar þrátt fyrir að Mennt
hafi einungis verið falinn undir-
búningurinn í maí. Ingi Bogi
kveðst einkum ánægður með fjöl-
breytilegt framlag þeirra sem
sýndu á Degi símenntunar á laug-
ardag. Hann kveðst tiltölulega
ánægður með aðsóknina en segist
vita að hana megi bæta. „Við von-
umst til þess að búið sé að planta
út þessari hugmynd um Dag sí-
menntunar og við munum upp-
skera miklu betur á næsta ári,“
sagði Ingi Bogi. „Nú eru eftir fjór-
ir dagar símenntunar og miðað við
hvað þetta tókst vel núna hlökkum
við til að vinna verkið áfram,“ sagði
hann.
Ingi Bogi segir Dag símenntunar
hag margra aðila, einstaklinga og
viðkomandi skólastofnana, en ekki
síst atvinnulífsins. „Atvinnulífið er
farið að gera ráð fyrir menntun
sem framleiðniaukandi þætti ekk-
ert síður en endurnýjun tækja og
framleiðsluferla. Menntun starfs-
fólks er þannig séð fjárfesting. Við
þurfum kannski að þoka þeirri
hugsun aðeins áfram,“ sagði hann.
Dagskrá Dags símenntunar fór
fram um land allt og var samræmd
að hluta til því flestir staðanna voru
tengdir saman á Netinu og með
fjarfundabúnaði. Samtengingin
þótti takast framar vonum, að sögn
Inga Boga. „Það var ákveðin kjöl-
festa fyrir marga af þeim stöðum
þar sem dagskrá átti sér stað að
vera í beinu sambandi. Ég heyri
ekkert annað en að það hafi tekist
mjög vel, að menn hafi verið
ánægðir með það. Þama virðist
vera að tæknin sé orðin svo öflug að
það sé hægt að gera ráð fyrir þess-
um möguleika," sagði Ingi Bogi.
„Þessi tækni rífur í okkur og hvet-
ur okkur til þess að nýta þessa nýju
möguleika einmitt í sambandi við
símenntun," sagði hann.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
íslands, og Björn Bjarnason
menntamálaráðherra settu dag-
skrána samtímis um land allt með
aðstoð fjarfundabúnaðarins.
Samfellt starf lífíð á enda
Forseti íslands sagði meðal ann-
ars í ávarpi sínu: „Menntun er að
verða samfelld reynsla frá morgun-
stund til dagsloka, frá æskuárum til
ævikvölds og alnetið og tölvutækn-
in hafa í raun gert hvem og einn að
sínum eigin skólastjóra."
Forsetinn sagði þróunina hafa
breytt eðli menntunar úr afmörk-
uðu viðfangsefni á fyrstu áratugum
ævinnar í samfellt starf lífið á enda.
Ólafur Ragnar sagði að því fyrr sem
við tækjum mið af þessum þátta-
skilum þeim mun betur myndu Is-
lendingum nýtast þau sóknarfæri
sem tæknin og nýir þjóðfélagshætt-
ir hafa fært okkur í hendur.
Þá sagði forsetinn: „Undanfarin
ár og jafnvel áratugi hefur umræða
okkar íslendinga á vettvangi skóla-
mála og menntunar verið of bundin
við samninga um kaup og kjör, um
lög og reglugerðir, réttindi og kröf-
ur, skipulag stofnana og húsakost.
Allt eru þetta þörf viðfangsefni og
nauðsynleg, en þau mega hvorki
byrgja okkur sýn né læsa okkur í
liðnum tíma.“
Upplýsingatæknin hefur gert
heiminn að einum skóla
I ávarpi sínu sagði menntamála-
ráðherra símenntun eina veiga-
mestu stoð þekkingarþjóðfélagsins
og benti á að hugtakið sjálft minnir
okkur á þá staðreynd að menntun
er æviverk. „Þegar rætt er um sí-
menntun er ekki verið að lýsa
menntakerfinu heldur þjóðfélaginu,
hvort þar sé almennur áhugi á
menntun eftir skóla,“ sagði ráð-
herrann.
Menntamálaráðherra telur mik-
ilvægt að auka hlut tölvu- og upp-
lýsingatækni í öllu námi, það auð-
veldi nemendum að stunda nám
alla ævi. Ráðherrann telur að að
því markmiði beri að keppa að allir
framhaldsskólanemar eignist far-
tölvu, með opinberum stuðningi ef
nauðsyn krefur. Ráðherrann sagði
að með upplýsingatækninni væri
heimurinn orðinn að einum skóla.
„Öflug grunnmenntun í nútíma-
legu skólakerfi, þar sem nútíma-
tæknin er nýtt til hins ýtrasta, er
mikilvægt framlag til að styrkja
almennar forsendur símenntunar.
Árangurinn ræðst af viðbrögðum
hvers og eins og þjóðfélagsins alls.
Þar skiptir máli, að símenntunin
sé metin að verðleikum á hinum
almenna vinnumarkaði, bæði þeg-
ar ráðið er í störf og litið í launa-
umslagið. Afrakstur menntunar,
rannsókna og vísinda bætir hag
einstaklinga, fyrirtækja og þjóðar-
búsins í heild. Aukin áhersla á
þessa þætti er forsenda þess, að
íslensku þjóðinni vegni vel á 21.
öldinni," sagði menntamálaráð-
herra.
Nýr prófastur
í Þingeyjar-
prófastsdæmi
BISKUP íslands hefur skipað séra
Pétur Þórarinsson, sóknarprest í
Laufási, prófast í Þingeyjarpró-
fastsdæmi frá 1. september og til
næstu 5 ára.
Umsóknarfrestur um stöðu sókn-
arprests í Hveragerðisprestakalli,
Árnesprófastsdæmi og Þórshafnar-
prestakalli, Þingeyjarprófasts-
dæmi, rann út á mánudaginn og
sóttu tveir um stöðumar.
Séra Jón Ragnarsson sótti um
stöðuna í Hveragerðisprestakalli en
Sveinbjöm Bjamason, cand. theol.,
um stöðuna í Þórshafnarprestakalli.
Séra Jón hefur gegnt embætti
sóknarprests í Hveragerðispresta-
kalli frá árinu 1995, en hann var
kallaður til fjögurra ára og rennur
köllun hans því út 1. október og
samkvæmt lögum ber því að aug-
lýsa embættið.
I Þórhafnarprestakalli hefur séra
Ingimar Ingimarsson sóknarprest-
ur sagt starfi sínu lausu frá og með
1. september, en hann varð sjötug-
ur 24. ágúst síðastliðinn.
Það er kirkjumálaráðherra sem
skipar síðan í embætti sóknar-
presta og er það gert til fimm ára.
-----------------------
Allt 16 mni
stál kláraðist
MIKIL spenna hefur verið á bygg-
ingarmarkaði í sumar og leiddi það
til þess að allt 16 mm steypustyrkt-
arstál kláraðist hjá söluaðilum. Að
sögn Arnar Bjarnasonar, verk-
smiðjustjóra hjá Timbri og stáli hf.,
sem flytur inn steypustyrktarstál,
er þetta einsdæmi. Hann sagði að
þetta ástand hefði varað í nokkrar
vikur en nú væri búið að flytja 16
mm stál til landsins. Skýringin á
þessu væri m.a. sú að nokkur mjög
stór verkefni hefðu verið í gangi á
sama tíma sem í hefði þurft mikið af
stáli af þessari stærð. Hann sagðist
ekki vita tO þess að stórvandræði
hefðu hlotist af þessum sökum. Þeir
sem hefðu staðið í stórum verkefn-
um hefðu flestir byrgt sig upp af
stáli. Ekkert stál af þessari stærð
hefði hins vegar fengist á smásölu-
markaðinum.
-----♦-♦-♦----
Umhverfíssinn-
ar yfírheyrðir
ÞRÍR umhverfissinnar sem hindr-
uðu för stjómar Landsvirkjunar yfir
Bessastaðaá mánudaginn 23. ágúst
voru yfirheyrðir á föstudaginn fyrir
að leggja bifreið sinni á brúnni, að
sögn lögreglunnar á Seyðisfirði. Um
er að ræða brot á umferðarlögum og
er málið nú í höndum fulltrúa, sem
ákveður framhaldið.
Umhverfissinnamir em aðilar að
Félagi um vemdun hálendis Aust-
urlands og vilja þeir að Fljótsdals-
virkjun fari í lögformlegt umhverf-
ismat.
Formaður FÍA telur hugmyndir um tilfærslu snertilendinga þarfnast meiri undirbúnings
Flestir líklegir vellir
með öllu óhæfír
FRANZ Ploder, formaður Félags
íslenskra atvinnuflugmanna, segir
flesta þá flugvelli sem taka eiga við
lunga æfinga- og kennsluflugs eftir
að dregið verður úr því á Reykjavík-
urflugvelli í haust, vanbúna til að
sinna því hlutverki. Þá veki slíkar
tilfæringar spumingu um öryggis-
mál í kennslu- og æfingaflugi, þar
sem flugöryggi sé ekki tryggt með
sama hætti og á Reykjavíkurflug-
velli.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra kveður ráðstafanir til að
draga úr snertilendingum vegna
æfinga- og kennsluflugs á Reykja-
víkurflugvelli til þess gerðar að
koma til móts við þá sem telja að
flugumferðin við Reykjavíkurflug-
völl valdi ónæði. Gert er ráð fyrir
endurbyggingu eldri valla eða
byggingu nýrrar flugbrautar í
grennd við Reykjavík sem sérstak-
lega væri ætluð fyrir æfinga- og
kennsluflug, en þó myndu slíkar
framkvæmdir ekki hefjast fyrr en
eftir fjögur til fimm ár. Á meðan
vill ráðherra beina snertilending-
um á flugbrautirnar á Selfossi, á
Sandskeiði, við Álfsnes, á Stóra-
Kroppi í Borgarfirði og Keflavíkur-
flugvöll. Franz segir að að frátöld-
um Keflavíkurflugvelli séu þeir
flugvellir sem til greina koma ekki
í stakk búnir til að taka við þessari
umferð.
Ekki frostheldar
flugbrautir
„Ég sé ekki í fljótu bragði hvernig
þessir vellir geti komið í staðinn fyr-
ir Reykjavíkurflugvöll og held að að-
eins völlurinn í Keflavík og á Sel-
fossi séu nothæfir á veturna, þar
sem hinir ero ekki undirbyggðir
þannig að þeir séu frostheldir. Að
færa snertilendingar þýðir jafn-
framt aukaflug og jafnframt heil-
mikinn aukakostnað sem leggst þá á
nemendur. Að fljúga til dæmis aust-
ur á Selfoss á lítilli kennsluvél tekur
um 20 mínútur hvora leið. Á Kefla-
víkurflugvelli er mjög mildð að gera
á ákveðnum tímum og það á illa
saman, flug hraðfleygra farþega-
þotna og herflugvéla og lítilla
kennsluvéla," segir Franz.
Hann kveðst þeirrar skoðunar að
eigi að færa snertilendingarnar frá
Reykjavík, þurfí að undirbúa þá til-
færslu mun betur en gert hefur ver-
ið. Eina raunhæfa lausnin að hans
mati sé að hafa fullbúinn flugvöll í
nágrenni Reykjavíkur sem tekur við
þessari umferð, en ekki að flytja
snertilendingar með þessu hætti.
„Ég fæ ekki séð að hægt sé að flytja
þessar snertilendingar yfir á hina
flugvellina, þar sem þeir eru bæði of
langt í burtu og flestir algjörlega |j
óhæfir til að taka við þessari um- ' ■
ferð, allavega á veturna,“ segir
hann.
Hann bendir jafnframt á öryggis-
málin í þessu sambandi. „Fyrir utan
Keflavíkurfiugvöll eru þessir flug-
vellir sem til greina koma með öllu
vanbúnir hvað varðar öryggi- Til
allrar lukku hafa ekki mörg slys
tengst flugkennslu hérlendis, en m
lendingarbraut uppi í sveit er tals- j
vert annar handleggur en Reykja- ||
víkurflugvöllur með slökkviliði og "
sjúkrahús í nágrenninu. Það er al-
veg tvennt ólíkt,“ segir Franz.