Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1882, Page 31
Atla þáttur Húnakonungs
Eptir Grím Thomsen.
Taciti Annálar og Germania; Geijer: Svenska folkets historia; R.
Keysers Efterladte Skrifter; Gibbon: Decline and fall of the Roman
empire; Thierry: Histoire d’ Attila et de ses successeurs. Aðrir
höfundar eru nefndir hver á sinum stað.
Sé það satt, sem Jornandes segir í Gautasögu sinni
(de rebus Geticis), að Norðurlönd hafi verið smiðja og
vagga þjóðanna1—hinna svonefndu germönsku þjóða—
að Gautar eða Gotar hafi, að því sem Gibbon ætlar,
í síðasta lagi um Krists burð2, tekið sig upp og farið
frá Norðurlöndum á þrem skipum, til þess að leita
sér að bygð austar3; — sé það satt, að þeir þá þegar
hafi skipt sér í þrjá flokka: Austurgauta, Vesturgauta
og Gepída (svo nefnda sökum þess þeir voru eptir-
bátar hinna tveggja, á aptasta skipinu), og að Róm-
verjar aldrei hafi þekt þá undir öðru nafni en Ostro-
eða Austrogotha og Visigotha, sem ljóslega táknar
norrænan uppruna þeirra; — sé það satt, að á dögum
1) Officina gentium, vagina nationvm.
2) Sbr. Tac. Ann. II, 62 : Erat inter Gotones nobilis
juvenis: »var meðal Gauta göfugt ungmenni«. Hafa því
Rómverjar þegar á dögum Tíberii keisara þekt Gauta fyrir
norðan og vestan Dóná.
3) Jorn. c. 17.