Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1882, Síða 60
6o
þunga skatta, liklega tekjuskatt og eignarskatt, á þegna
sína.
Theodosíus dó snögglega 28. júlí 450 á 50. aldurs-
og 43. ríkisári. Rasaði hestur með hann í ánni Lykus,
og steypti honum í ána. Pulcheria systir hans tókrikiept-
ir hann, og giptist, þó hún væri roskin orðin, skömmu sið-
ar Marcianusi, er jafnframt tók keisaratign. f>ótt Marci-
anus væri hniginn á efra aldur—hann var sextugur, er
hann varð keisari—þá fékk Atli skjótt að reyna, að hann
var ólíkur maður formanni sínum. Lét Marcianus sendi-
herra sinn, Apollónius, tilkynna Atla i herbúðum sjálfs
hans, að ekki væri framar neins skattgjalds von af
hálfu Rómverja; verðlaun mundu þeir hafa til handa
þeim, sem væru verðlauna verðir, og kvað hann stól-
konunginn eiga gull handa vinum sínum, en járn handa
f jandmönnum sínum. Atla brá í brún, og var nú í vafa
um, hvort hann ætti að ráðast á Austurveldið, eða snúa
sér um sinn að Vesturveldi Rómverja. Loks réð hann
af, að senda sinn gauzkan sendimanninn til hvers keis-
aranna með þessari orðsending: „ Atli, minn og þinn
herra, skipar þér að hafa sér höll búna; hans er von“.
Hjá Vestur-Rómverjum var einnig breyting orðin
í völdum. Placidia, móðir Valentiníans keisara III.
(dóttir Theodosíusar keisara mikla, ekkja Adolfs Vestur-
Gauta konungs, gipt í annað sinn Constantiusi, með-
keisara Honoríusar bróður hennar) hafði til þessa stjórn-
að Vesturveldinu í nafni sonar síns. Hún féll um sömu
mundir frá. og réði Valentiníanus nú öllu sjálfur, með
styrk og landvörn Aetiusar.
Gregorius frá Tours hefir tekið nokkur brot úr
sagnaritum Renatusar Profuturusar Frigeridusar, sem
var Aetiusi samtíða, og lýsir honum þannig1:
Móðir Aétiusar var rik og göfug ítölsk kona;
1) Gibbon, á s. st. VI, 35.