Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1882, Page 79
79
Atli ríkti því öllu fremur yfir þjóðum en löndum, og
lagði meiri stund á að eignast lausafé en fasteign;
enda gat sá maður, sem sjálfur hrósaði sér af því, að
„grasið greri ekki, þar sem hestur hans setti fót sinn“,
ekki látið sér umhugað um staðfestu, heldur um grip-
deildir. Stríð hans við Rómverja lutu helzt að því,
að eignast gull; landareignin sjálf lá honum í léttara
rúmi. þ>ví var það eðlilegt, að ríki hans sundraðist,
er hann féll frá. Olíkt var með þeim Julius Cæsari
og Atla, þó báðir væru miklir hermenn. Langt fram
eptir öldum voru Cæsari eignaðar allar borgir á Frakk-
landi og fýzkalandi, Atla allar rústir. Annar brúk-
aði hernað sinn sér í lagi til þess að byggja upp,
hinn eingöngu til þess að rífa niður, og því var hann
sannkölluð' svipa heimsins. Sjást hans og Húna því
engar menjar, nema grafirnar. þ>ví í Ungverjum er
hið húnska blóð svo blandað öðrum betri efnum, að
varla má telja þá með niðjum Húna, þó sumir, þar
á meðal Thierry, gjöri það.