Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1984, Blaðsíða 18
18
SPARTA
IIMGÓLFSSTRÆTI 8, SÍM112024
SPARTA
LAUGAVEGI 49, SÍMI 23610
Adistar 80
með hæl f.
stökk og lengri
hlaup
Adistar 80 án
hæls fyrir
spretthlaup o. fl.
Vandaðasti og
besti frjáls-
íþróttaskórinn
frá
Ádidas.
Adistar 2000
rúskinnsskór.
Bestir fyrir há-
stökk, lang-
stökk, þrístökk,
stangarstökk og
grindahlaup.
Nr. 39-48,
kr. 2275.
Langstökksskór.
Nr. 38-47,
kr. 1745.
Hástökksskór.
Nr. 38-47,
kr. 1.550.-
(Ath. þetta er
verð á stökum
skó en hægt er
að fá bæði á
vinstri og hægri
fót).
Track, góður
alhliða æfinga-
og keppnisskór
fyrir hlaup og
Sprint, ódýr
skór sem er
bestur í sprett-
Spjótkastskór,
kr. 2.210.
Nr. 41-46.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
Laugavagur 49, aimi 23610. Ingólfutrmti 8, sími 12024
OPK) LAUGARDAGA í INGÚLFSSTRÆTI
íþróttir
DV. FIMMTUDAGUR 5, JULI1984.
Zhu Jianhua stekkur 2,39 m í Eberstadt.
Frá Bramel til Jianhua íhástökkinu:
Kínverjinn hefur sett þrjú
síðustu heimsmetin
Valery Brumel fagnar sigri á ólympiuleikunum í Tókíó 1964. Setti ólympíumet,
Kínverska hástökkvaranum Zhu
Jianhua er nú almennt spáö sigri á
ólympíuleikunum í Los Angeles í
byrjun ágúst. Það þarf auðvitað ekki
mikla spádómsgáfu til þess — sá kín-
verski hefur sett þrjú síðstu heims-
metin í hástökki. Hefur hreint ótrúleg-
an stökkkraft og það kæmi ekki á óvart
þótt hann nálgaðist 2,50 metra á næstu
árum.
Það hefur orðið mikil framþróun í
hástökkinu síðasta áratuginn — heims-
metið bætt um 11 sentímetra á síöustu
13 árunum. Framfarimar má rekja til
þess þegar Bandaríkjamaöurinn Fosh-
bury fann upp nýjan stíl og nær allir
bestu hástökkvarar heims hafa tekið
hann upp. Snúa baki aö ránni. Otrúleg-
ur munur f rá saxinu gamla, grúf ustíln-
um eöa öörum hástökksaðferðum. Þaö
eru ekki nema rúm þrjátíu ár frá því
hástökk vannst á 2,04 m á ólympíu-
leikum, Helsinki 1952. Nú stökkva
konurþáhæð.
Undramaðurinn Brumel
Fyrir rúmum tuttugu árum kom al-
gjör undramaöur fram á sviði há-
stökksins, Sovétmaöurinn Valery
Brumel. Lítill af hástökkvara aö vera,
grannur og meö gífurlegan stökkkraft.
Hann kom heimsmetinu upp í 2,28 m og
þaö heimsmet hans stóð í 12 ár. Þá fóru
Bandaríkjamenn heldur betur í gang
og átti nýi stíllinn mestan þátt í því.
Bandaríkjamaðurinn Matzdorf bætti
loks heimsmet Brumels um einn sentí-
metra 1971. Dwight Stones, sá frægi
kappi, fylgdi í kjölfarið. Setti þrjú
næstu heimsmet. Stökk 2,32 m 1976 —
en á bandaríska úrtökumótinu í Los
Angeles á dögunum gerði Stones sér
lítiö fyrir og setti nýtt bandarískt met.
Stökk 2,34 m, sem þó þykir ekki mikiö í
2,18 m.
dag. Dwight Stones keppir á sínum
þriöju ólympíuleikum í Los Angeles. Á
leikunum í Miinchen 1972 hlaut hann
þriöju verðlaun, stökk 2,21 m. Sovét-
maðurinn Yuri Tarmark sigraöi, stökk
2,23 m. Aðeins 12 ár siðan.
Á leikunum í Moskvu 1980 kom
Austur-Þjóðverjinn Gerd Wessing
mjög á óvart þegar hann sigraði og
setti nýtt heimsmet, 2,36 m. Síðan
hefur Zhu Jianhua veriö mest í sviðs-
ljósinu. Þó voru það mjög óvæntar
fréttir semkomu frá Kína 1983 aö Zhu
Jianhua hefði sett nýtt heimsmet,
stokkið 2,37 m á móti þar. Hann var þá
lítt þekktur utan Kína. Síöar á því ári
Þann árangur bætti hann í 2,39 á mót-
inu á dögunum í Eberstadt í Vestur-
Þýskalandi í mestu hástökkskeppni
allra tíma. Vestur-Þjóöverjarnir Carlo
Tranhardt og Dietmar Mögenberg
stukku báðir 2,36 m og Patrick Sjöberg
setti sænskt met, stökk 2,33 m og haföi
þá forustu í hástökkskeppninni.
Lítum nú á þróun heimsmetsins í há-
stökki frá því Valery Brumel setti
heimsmet sitt 1963. Fyrsti árangur, þá
nafn og ár.
2,28 — Brumel,Sovét 63
2,29 - Matzdorf, USA, 71
2,30 — Stones, USA, 73
2,31 - Stones, USA, 76
2,32 — Stones.USA, 76
2,33 — Jastsjenko,Sov., 77
2,34 — Jastsjenko, Sov., 77
2,35 — Wszola, Póll. 80
2,35 — Mögenburg, VÞ. 80
2,36 — Wessing,AÞ., 80
2,37 — Jianhua, Kína, 83
2,38 — Jianhua.Kína, 83
2,39 — Jianhua, Kína, 84
Besti árangurinn í hástökkinu er nú.
2,39 — Jianhua, Kína 84
2,37 — Tranhardt, VÞ., 84
2,36 — Wessing, AÞ., 80
2,36 — Paklin.Sovét, 84
2,36 — Sossimovich, Sov. 84
2,36 — Mögenburg, VÞ., 84
2,35 — Jastsjenko, Sov, 78
2,35 — Wazola, Póll. 80
2,35 — Sereda, Sovét, 83
Árangur Carlo Thranhardt, 2,37 m,
er heimsmet innanhúss, sett í vetur.
Igor Paklin náöi einnig sínum árangri
innanhúss.
hsim.
stökk hann 2,38 m, einnig á móti í Kina.
Dwight Stones — bandarískt met í ár.
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
n ni—mmm mmmmmmmmma
iummm fiæiii mm uamwn