Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1984, Side 31
DV. FIMMTUDAGUR 5. JOLl 1984.
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Matthias stjórnaði umferð.
Matthías
stjórnsami
Umferðarslys varð á
Hverfisgötunni morgun einn
fyrir skömmu. Elnn af fyrstu
mönnum á vettvang var
Matthías Mathiesen við-
skiptaráðherra og sá var ekki
að tvinóna við hlutina. Stökk
út úr bifreið sinni og byrjaði
að stjórna aðgerðum þar sem
lögregla var ekki mætt á stað-
inn. Ráðherrann byrjaði á því
að losa um bindi og belti þess
slasaða og sneri sér síðan að
umferðarstjórn af mikilli
röggsemi. Beindi umferð upp
og niður næstu götur og fórst
það vei úr hendi. Enda lög-
fræðingur að mennt. Síðan
brá hann sér í kaffi hjá Báru
sem rekur tískuverslun
þarna á næsta horni enda eru
ráðherrann og hún gamlir
leikfélagar úr Hafnarfirði.
Yfirheyrslan
fór með Alcan
í Helgarpóstinum síðasta
var fyrrum forseti bæjar-
stjórnar Akureyrar tekinn til
yfirheyrslu. Þar skammast
Valgerður Bjarnadóttir tals-
vert út í hugsanlegt álver við
Eyjaf jörð enda er hún einn af
hörðustu andstæðingum ál-
vers. Halldór Halldórsson,
fyrrverandi ritstjóri islend-
ings, tók þessa yfirheyrslu. Á
miðvikudagskvöldi skyldi
hún suður með síðustu vél
enda ekki seinna vænna, blað-
ið var á leið í prentun. Eitt-
hvað var Halldór seinn fyrir
og sem hann geysist suður
Drottningarbraut er Flug-
leiðavélin að fara af stað. Nú
voru góð ráð dýr en ritstjór-
inn fyrrverandi dó ekki ráða-
laus. Á vellinum var gljáfægð
þota Alcanmanna og farið að
styttast í brottför hennar til
Reykjavíkur. Af elskusemi
greip Birgir tsleifur, for-
maður stóriðjunefndar, bréf-
ið með sér án þess að vita
hvað í því stóð. Það var því
Alcan-þotan sem sá til þess
að óhróðurinn um álverið
komst í Helgarpóstinn á rétt-
um tíma.
Umhverfis-
mengun?
Við sögðum um daginn frá
þvi að einn hinna heppnu
lóðaeigenda við Stigahlið
hygðist byggja Hosbyhús á
lóð sinni, hús sem hægt er að
panta eftir dönskum verðlist-
um og kosta lítið meira en
ióðirnar sem byggt er á. Nú
berast þær fréttir norðan af
Siglufirði að fyrirspurnir
hafi borist til fyrirtækisins
Húseininga, sem framleiðir
einingahús, frá lóðaeigend-
um við Stigahlíð, og það fleiri
en ein.
Siglufjarðarhúsin munu
vera ódýrari en Hosbyhúsln
og þar af leiðandi kosta
minna en lóðirnar sem þau
verða byggð á ef allt fer eftir
áætlun.
Albert á linunni.
Albert snarráði
Litlu mennirnir í þjóðfélag-
inu eiga sér vin þar sem Al-
bert Guðmundsson er. Ekki
er ástæða til að draga það í
efa vegna þess að fjármála-
ráðherrann sagði þetta sjálf-
ur í sjónvarpinu og nú hafa
orðin sannast svo um munar.
Ungur atvinnulaus drengur
hringdi í Albert þar sem hann
sat við vinnu sina í stjórnar-
ráðinu og spurði ráðherrann
hreint út hvort hann gæti ekki
útvegað sér vinnu. Albert tók
því ekki fálega og sagðist
mundu láta frá sér heyra.
Eftir þrjá tíma hringdi sím-
inn hjá pilti og á línunni var
sjálfur ráðherrann. Albert
var búinn að redda honum
vinnu hjá Hafskip.
Umsjón Eiríkur Jónsson.
En málið einfaidaðlst tölu-
Það mun eitthvert vík-
ingaskip vera að sigla hér við
land og ætlar áhöfnln sér að
ferðast umhverfis hnöttinn á
800 dögum. Léttlr lelkmenn
skilja ekki hvernlg mennlrnir
fara að þvi að koma skipinu
alltaf i rétta átt því seglskip
hijóta að sigla undan vindi
hvað sem hver segir.
________»_____• •
(ÞAMA Sricun
UausJ. HWN
RizAzm-aeFúíi
vert þegar ljóst varð að
víkingaskipið er með skrúfu
og vél og því fylgir birgðaskip
— sumir segja olíuskip.
Kvikmyndir Kvikmyndir
Stjömubíó —Krull:
Barátta hins góða
gegn hinu illa
Loikstjóri: Petor Yates.
Handrit: Stanford Sherman.
Kvikmyndun: Peter Suschitzky.
Tónlist: Jamos Horner.
Aðalleikendur: Ken Marshall, Lysette
Anthony, Freddie Jones og Francesca Annis.
Þótt byrjunin á Krull og tónlistin
minni á Star Wars myndirnar þá er
varla hægt að bera þær saman að
öðru leyti en því að ævintýramyndir
eru þær þar sem tæknibrellur ráða
ferðinni. Til að mynda sést ekkert
geimskip í Krull, og klæðnaður leik-
enda og sviðsetning minnir mest á
miðaldir. En samt verður að flokka
Krull með öörum vísindaskáldsögu-
myndum.
Sagan gerist á plánetunni Krull og
ríkir þar mikið ófriðarástand. Plán-
etunni er stjómað af skrímsli sem
hefur mikinn kraft og hefur á sínum
snærum ómennska hermenn sem
kallast slátrarar. Tveimur öldnum
konungum dettur það í hug að gifta
dóttur annars og son hins til að sam-
eina krafta sína gegn hinu ógurlega
skrímsli áður en það tortímir þeim.
Áður en það tekst rænir skrímsliö
prinsessunni og slátraramir drepa
alla hirðina að undanskildum prins-
inum Colwyn. Gamall maður, Ynyr,
kemur Colwyn til hjálpar og segir
honum hver hafi orðið örlög unnustu
hans. Colwyn ákveður að fara að
leita skrímslisins og ganga frá því
dauðu, en það er hægara sagt en gert
því að það skiptir um aðseturstað
einu sinni á sólarhring, en gamli
maðurinn Ynyr kann ráð við mörgu.
Það verða margir ævintýralegir
atburðir á vegi þeirra í leit að
skrímslinu og koma margar furðu-
legar verur til sögunnar. Má þar
nefna töframanninn Ergo, en töfra-
brögð hans bitna einna helst á honum
sjálfum. Þá hitta þeir hóp stroku-
fanga sem ganga til liðs við þá.
Smaragðaspámaðurinn er sá sem
getur sagt þeim hvar skrímslið er.
En áður en af því verður tekst
skrímslinu að ganga af honum dauð-
um. Eineygður risi, sem kallast Kýl-
ópi, gengur einnig til liðs við þá
félaga. Ekkja Vefsins er ein persóna
myndarinnar og verður það hún sem
vísar þeim veginn að skrímslinu.
Eftir miklar svaöilfarir tekst
prinsinum að hafa uppi á skrímslinu
og slátrurum þess og eins og í öllum
góðum ævintýrum endar sagan með
sigri prínsins sem endurheimtir
prínsessuna sína.
Þrátt fyrir viðburðaríkan sögu-
þráð er Krull fyrst og fremst kvik-
mynd tæknimannanna og leikstjór-
ans. Situr maður oft agndofa yfir
þeim furðum sem birtast á tjaldinu.
Allt er þetta undir öruggri stjórn
þess reynda Peter Yates sem svo
sannarlega á að baki feril sem leik-
stjóri ólíkra mynda. Má þar nefna
myndir eins og Bullit, Breaking
Away og The Deep. Krull er ekki
nýjasta kvikmynd Peter Yates. Það
er hin verðlaunaða mynd The Dress-
er. Og þrátt fyrir að Krull heppnist
nokkuö vel sem ævintýramynd eru
flestir á því máli að The Dresser sé
besta kvikmynd sem Peter Yates
hafi gert. Vonandi verður ekki löng
bið þar til viö fáum aö sjá hana.
Hilmar Karlssou.
SÖLUTURN
til sölu á góðum stað í Reykjavík. Hafið
samband við auglþj. DV í síma 27022.
H-456.
SjÚKRAHÚS SKAGFIRÐINGA
\V7 SAUDÁRKRÓKI
Sjúkraþjálfarar - Ijósmæóur
Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki, óskar að ráða sjúkraþjálfara frá 1.
sept. '84, eða eftir nánara samkomulagi, og Ijósmóður til afleysinga frá
15. ágúst til 30. september. Allar nánari uppiýsingar veitir hjúkrunarfor-
stjóri á staðnum og í síma 95-5270.
Hjúkrunarforstjóri.
vATfU
Álfhólsvegur
L
Opið
mán.—föst. 9—18,
um helgar 13—18.
30 fm einstaklingsíbúð, sérhiti, sérrafmagn,
ákveðin, bein sala. Verð 600 þús.
Grettisgata
4ra herb., 95 fm íbúð með aukaherbergi í kjallara,
auk 40 fm bílskúrs, mjög snyrtileg eign. Verð 2.100
þús.
Vesturberg
4ra herb. vel staðsett og rúmgóð íbúð. Verð 1.850
þús.
Álftamýri
110 fm, 4ra herb. endaíbúð á annarri hæð. Verð
2.100 þús.
Flúðasel
50 fm, 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Verð 1.100 þús.
Símar: 687520
687521
39424
FASTEIGNASALA
BOLHOLTI6 H|:
MMMmmmmmmmmm