Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1986, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986. 3 Fréttir Verðbólguhugmyndir 7-13% - fjáriagafrumvarpið byggir á spá um 5% verðbólgu 1987 Verðbólguhorfur á næsta óri eru æði óljósar, samkvæmt viðtölum við nokkra hagfræðinga. Þó halda þeir spám sínum innan markanna 7-13%. Það er nokkuð og talsvert meiri verð- bólguhraði en fjárlagafrumvarp ríkis- stjómarinnar byggir á. Það eru 5%. Óvíst er að lítið eitt hærri verðbólga raski afkomu ríkissjóðs. Búist er við að sú þensla sem verið hefur undanfar- ið haldi áfram um skeið að minnsta kosti og skili ríkissjóði meðal annars auknum tolltekjum. Hins vegar kám- ar gamanið ef verðbólgan fer upp í 13% yfir árið. Hagfræðingamir, sem DV ræddi við, em sammála um að nákvæmlega ekk- ert megi út af bera svo að verðbólgan renni ekki af stað. Til dæmis megi nákvæmlega engar gengisbreytingar eiga sér stað, engar frekari launa- hækkanir og ekkert launaskrið. Lækkun dollarans og hækkun Evr- ópugjaldmiðla að undanfömu raskaði febrúarsamningunum. Þá er eftir að semja við verkamenn í Reykjavík og opinbera starfsmenn. Þeir samningar geta vissulega sett strik í reikninginn. Með nýgerðum samningum einum liggur fyrir að raunlaun annarra en láglaunafólks lækka á næsta ári. Þess vegna er búist við þrýstingi á launaskrið. Þannig em hættumerkin mörg. Verðbólguhraðinn nú, mældur þrjá síðustu mánuði, svarar til 16% verð- bólgu á heilu ári. Þeir sem gæla við að verðbólgan á næsta ári verði 7-8% milli áramóta segja að hraði verð- bólgunnar verði áfram 16% næstu þrjá mánuði en hjaðni svo ört. Verð- bólgan verður þá að fara niður fyrir 5% í árslok. HERB \ JOLATILBOÐ FJÖL5KYLDUNNAR FRA TECHNICS Komið þið nú blessuð og sæl. Ég er hljómtækjasamstæðan Z-50 og er íjólaskapi. Ég ermjög stolt afmér, enda engin furða. Ég erfrá Technics og flokkast þar afleiðandi undir alvöru hljómtæki. Ég er ekki úr plasti. Ég er ekki sambyggð og hliðarnar á mér eru ekki fastar við skápinn. Ef þið hafið áhuga á að heyra hvernig alvöru hljómtæki hljóma og þar að auki frá Technics, þá skora ég á ykkur að koma og hlusta á mig. Nú fæst ég á sérstöku jólatilboðsverði. Þið getið fengið mig með einu eða tvöföldu kassettutæki,og verðið á mér með hátölurum og skáp er frá 33.340 kr. m *JAPIS BRAUTARHOLT 2 SÍMI 27133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.