Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1986, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986.
25
Tíðarandi
olaroi
Snsorcotof
Ss Polaroid
i oiniim no sdiiHi pakkanum!
Síðasti dagurinn í jólakortunum er 18. desember en í pökkunum 15. desember sem er á mánudaginn. Það verður
því víða pakkað inn um þessa helgi. DV-mynd JGH
Fart á fólki með
pakka og jólakort
Jólin ’86. Gleðileg jól og farsælt
nýár. Það eru margir sem kvitta undir
þetta til vina og ættingja þessa dag-
ana. Og þá er ekki síður fart á fólki
við að koma pökkum og pinklum út
og suður.
„011 jólakort þurfa að vera komin á
pósthúsið þann 18. desember, þá er
síðasti dagurinn eigi að vera tryggt
að kortin berist á réttum tíma,“ sagði
Gísli Eyland, stöðvarstjóri Pósts og
síma á Akureyri.
Gísli sagði að flestöll pósthús á
landinu yrðu opin til klukkan 20 það
kvöld. „Nú um helgina verður opið á
laugardaginn frá kl. 10 til kl. 16 hjá
okkur.“
Síðasti dagurinn í pökkunum og
pinklunum til útlanda er 15. desemb-
er, núna á mánudaginn. Þá er miðac
við að pósturinn berist með flugi.
I jólakortaflóðinu á Akureyri starf;
nú tæplega fimmtíu manns í útburðin-
um, „en eru þetta 8 til 10 venjulega,'
sagði Gísli Eyland.
-JGH
Lifandi eða gervijólatré? Sitt sýnist
hverjum. Hvað um það, hér sjáum
við gónt á gervitré á Akureyri, en
verð þeirra er frá 1100 til 4500 kr.
Lifandi kosta frá 700 upp í 2700 kr.
DV-mynd JGH
150 þúsund laufabrauð
„Við erum þegar búnir að selja um
70 þúsund laufabrauð og ef við höldum
sama dampi giska ég á að við seljum
um 130 til 150 þúsund laufabrauð fyrir
þessi jól,“ sagði Júlíus Snorrason, bak-
arameistari hjá Brauðgerð Kristjáns
Jónssonar á Akureyri.
Júlíus sagði að frá því í fyrra væri
stóraukning í sölu laufabrauðsins.
„Við seljum deigið flatt út. Fólk sker
það út og steikir og heldur þannig
jólastemmningunni eftir sem áður,“
sagði Júlíus.
Laufabrauðið kostar 19 krónur
stykkið. Hver fjölskylda virðist kaupa
þetta frá 75 og allt upp í 300 laufa-
brauð.
-JGH
Áskíði eftir jólainnkaupin
Þeir sem vilja taka sér frí frá öllum
jólahugleiðingum um helgina og sinna
skíðaíþróttinni geta farið í Hlíðarfiall
og í Kjama. Nýja T-lyftan var opnuð
formlega í Hlíðarfialli um síðustu helgi
og þar er nú nægur snjór.
„Það verður opið núna um helgina
og þarnæstu helgi, fram að jólum,“
sagði ívar Sigmundsson, forstöðumað-
ur Skíðastaða í Hlíðarfialli. „Við
opnum svo aftur á þriðja í jólum og
höfum opið alla daga fram að gamlárs-
degi. Eftir áramótin opnum við svo
strax aftur." ,
ívar sagði að tíðarandinn væri sá
að ekki væru margir í fiallinu síðustu
dagana fyrir jól en yfirleitt væri mikið
að gera á milli jóla og nýárs.
Þá er búið að opna göngubrautina
í Kjamaskógi, hún er upplýst og spor-
uð á hverjum degi. Upplagt að skreppa
á skíði til að slaka á í jólaamstrinu.
-JGH
Nægur snjór er i Hliðarfjalli. Nýja lyftan er komin i gagnið og engar biðrað-
ir. Með nýju lyftunni hefur afkastageta lyftnanna tvöfaldast. Svo er upplýst
göngubraut i Kjarnaskógi. Tíðarandinn á Akureyri er sá að fjallið er fullt
milli jóla og nýárs. DV-mynd JGH
Lifandi eða geivi?
Þær em oft stórskemmtilegar sam-
ræður manna um það hvort jólatréð
eigi að vera lifandi eða gervi. Enn er
þessu velt fyrir sér. Hvað um það, á
morgun, föstudaginn 12. desember,
hefst sala jólatijáa í miðbæ Akureyrar.
Verð á lifandi tijám sýnist með allra
hagstæðasta móti núna, þau ódýrustu
og minnstu em á um 700 krónur og
þau fínustu, þinur, 2Vi metra, á um
2700 krónur.
Meðaltré, tré sem flestir óska eftir,
um 1 /i metri á hæð, má segja að kosti
í kringum 1100 til 1200 kr.
Gervijólatré sýnast eiga vinsældum
að fagna. Slíkt tré á Akureyri kostar
frá 1100 upp í tæpar 4500 krónur.
Hægt er náttúrlega að nota það aftur
og aftur og ekki þarf að ryksuga barr-
ið. En þá spyrja hinir hvar ilmurinn
sé, þessi ómissandi.
-JGH.
Á Akureyri nær jólastemmningin hámarki þegar fjölskyldan sameinast í
að skera út og steikja laufabrauð. Hér eru þeir Vilhelm Þorsteinsson, for-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa, og Jón Aspar skrifstofustjóri, í fyrra, að
skera út laufabrauð fyrir starfsfólkið. DV-mynd JGH
Ný flytjum við dreifistöð okkar frá Seljavegi 12 að Eirhöfða 13, sími
91 -673070. Við byrjum af fullum krafti með hleðslu á kolsýrugeymum
og aðra þjónustu þann 12. desember og vonum að sú breytta aðstaða
sem við fáum að Eirhöfða 13 komi fram í betri þjónustu.
Velkomin að Eirhöfða 13. EFNAVERKSMIÐJAN EIMUR S/F
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
laugavegi 178 - Reykjavik - Simi 685811
xm
NU FLYTJUM VIÐ
EfhiAvtKiíS'/lD>’i •’ i
l mm $