Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1994, Side 34
42
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
FólkíÉréttum
Þorsteinn Thorarensen
ÞorsteinnThorarensen, blaðamaö-
ur, rithöfundur og bókaútgefandi,
Njörvasundi 15 A, Reykjavík, hefur
látið af störfum hjá fréttastofunni
Reuter eftir fjörutíu og þriggja ára
fréttaritarastarf. Af því tilefni hélt
Reuter honum veglegt kveðjuhóf
sl. fostudag.
Starfsferill
Þorsteinn fæddist á Móeiðarhvoli
á 26.8.1927 en flutti ungur til
Reykjavíkur. Hann lauk stúdents-
prófi við MR1946 stundaði B A-nám
feica
Group TEKA AG
Heimilistæki
á kynningarverði
Nú er lag!
Endurnýjaðu gömlu tækin
með glæsilegum og vönduð-
um TEKA heimilistækjum,
meðan þessi hagstæðu kynn-
ingarverð bjóðast.
Innbyggingarofnar, efri
og neðri ofnar.
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál.
Verð frá 17.950
o O
Helluborð
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál
meö eða án takkaborðs.
Steyptar hellur
verð frá 11.900
Keramik hellur
verð frá 24.350
Viftur og háfar
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál.
Verð frá 6.890
Stjórnborð
Litir: hvítt eða brúnt
Verð frá 3.250
■ tryggÍHg fy rirl^íiverd i!
Faxafeni 9, s. 887332
Opið: mánud.-föstud. kl. S-18
laugard. kl. 10-16
Verslun fyrir alla
í ensku, frönsku og íslenskum bók-
menntum við HÍ og lauk síðan
embættisprófl í lögfræði 1953.
Þorsteinn var blaðamaður við
Morgunblaðið 1947-61 ogfrétta-
stjóri á Vísi 1961-69. Hann stofnaði
bókaútgáfuna Fjölva 1969 sem
hann starfrækir enn.
Meðal rita Þorsteins má nefna
fimm bindi af íslenskri stjórnmála-
sögu í lok nítjándu og við upphaf
tuttugustu aldar; átta bindi af Ver-
aldarsögu; átta bindi í bókaflokkn-
um Undraveröld dýranna (að hluta
til þýtt); þrjú bindi af Listasögu;
Nútímalistasaga; Tónagjöf og
Söngvagleði (óperutextar). Þá hef-
ur hann þýtt fjölda rita og skrifað
mikinn fjölda greina í blöð og tíma-
rit.
Fjölskylda
Þorsteinn kvæntist 1954 Sigur-
laugu Bjarnadóttur, f. 4.7.1926,
kennara og fyrrv. alþm. Hún er
dóttir Bjarna Sigurðssonar, b. í
Vigur, og k.h., Bjargar Björnsdótt-
urhúsfreyju.
Börn Þorsteins og Sigurlaugar
eru Ingunn, f. 15.11.1955, frönsku-
kennari, starfsmaður hjá Fjölva,
búsett í Reykjavík og er sonur
hennar Þorsteinn Baldur Friðriks-
son; Björn, f. 20.3.1962, forstöðu-
maður tölvudeildar EES í Brússel,
kvæntur Eydísi Sveinbjarnardótt-
ur hjúkrunarfræðingi og eru börn
þeirra Sveinbjörn og Sigurlaug;
Björg, f. 24.9.1966, lögfræðingur við
dómsmálaráðuneytið, gift Markúsi
Sigurbjörnssyni hæstaréttardóm-
ara og eiga þau eina dóttur, Ing-
unni Elísabetu.
Systkini Þorsteins: Eggert, f. 1921,
forstjóri BSR; Guðrún, f. 1923,
starfsmaður borgarfógeta; Skúh, f.
1932, nú látinn, lögfræðingur; Odd-
ur, f. 1932, fyrrv. prestur á Hofsósi;
Sólveig, f. 1933, menntaskólakenn-
ari í Kópavogi; Ásta Guðrún, f. 1937,
starfsmaður tollstjórans í Reykja-
vík.
Foreldrar Þorsteins voru Óskar
Thorarensen, forstjóri í Reykjavík,
og k.h., Ingunn Eggertsdóttir hús-
móðir.
Ætt
Óskar, var sonur Þorsteins, b. á
Móeiðarhvoli, Skúlasonar, læknis
á Móeiðarhvoh, Vigfússonar,
sýslumanns á Hhðarenda í Fljóts-
hhö, Þórarinssonar, sýslumanns á
Grund í Eyjafirði og ættföður Thor-
arensensættarinnar, Jónssonar.
Móðir Skúla læknis var Steinunn
Bjarnadóttir, landlæknis í Nesi,
Pálssonar og k.h., Rannveigar
Skúladóttur, landfógeta Magnús-
sonar. Móðir Þorsteins á Móeiðar-
hvoli var Ragnheiður Þorsteins-
dóttir, prests í Reykholti, Helgason-
ar, og Sigríðar Pálsdóttur, sýslu-
manns á Hallfreðarstöðum, Guð-
mundssonar.
Móðir Óskars var Solveig Guð-
mundsdóttir, b. í Austurhlíð í Bisk-
upstungum, Eyjólfssonar og k.h.,
Guðrúnar Magnúsdóttur, alþm. í
Bráðræði í Reykjavík, Jónssonar
Móðir Guðrúnar var Guðrún Jóns-
dóttir Hjaltalín.
Móðir Þorsteins var Ingunn Egg-
ertsdóttir, prófasts og alþm. á
Breiðabólstað í Fljótshlíð, Pálsson-
ar, gullsmiðs á Sogni í Kjós, Einars-
sonar, prests á Reynivöllum í Kjós,
Pálssonar, bróðursonar Jóns Þor-
lákssonar, prests og skálds á Bæg-
isá, en móðir Einars var Sigríöur
Stefánsdóttir, prests á Breiðaból-
stað, Presta-Högnasonar. Móðir
Páls gullsmiðs var Ragnhildur
Þorsteinn Thorarensen.
Magnúsdóttir, lögmanns á Meðal-
felli í Kjós, bróðir Eggerts Ólafs-
sonar skálds og tengdasonur Finns
Jónssonar biskups. Móðir Eggerts
á Breiðabólstað var Guörún Magn-
úsdóttir Waage, b. og hreppstjóra á
Stóru-Vogum, en móðuramma Þor-
steins var Guðrún Hermannsdóttir
Johnsen, sýslumanns á Velh í
Hvolhreppi, og Ingunnar Halldórs-
dóttur, b. á Álfhólum í Landeyjum,
Þorvaldssonar.
Afmæli
Haukur Sigurðsson
Haukur Sigurðsson, deildarstjóri
við Sjómæhngar íslands, til heimilis
að Sjávargötu 17, Bessastaðahreppi,
verður sextugur á sunnudaginn
kemur.
Starfsferill
Haukur fæddist í Vestmannaeyj-
um og ólst þar upp. Hann byrjaði
til sjós á varðskipum er hann var
flmmtán ára, stundaði nám við
Stýrimannaskólann í Reykjavík og
lauk þaðan farmannaprófi 1956.
Haukur var stýrimaður hjá skipa-
félaginu A.P. Moller i Danmörku
1957-59, var stýrimaður og skip-
stjóri í Vestmannaeyjum 1959-62 og
stýrimaður við Skipaútgerð ríkisins
1962-72. Þá hóf hann störf hjá Sjó-
mæhngum íslands þar sem hann
starfar enn.
Haukur átti heima í Vestmanna-
eyjum til 1962, í Reykjavík 1962-83
og hefur átt heima í Bessastaða-
hreppi frá 1983. Hann hefur setið í
ýmsum nefndum á vegum Bessa-
staðahrepps, s.s. félagsmálanefnd,
húsnæðisnefnd og verið formaður
ferlinefndar. Þá er hann félagi í
Lionsklúbbi Bessastaðahrepps, hef-
ur setið í stjórn hans og gegnt fleiri
trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn.
Fjölskylda
Haukur kvæntist 30.10.1959 Urs-
ulu Georgsdóttur, f. Thiesen 20.7.
1937 í Stralsund í Þýskalandi.
Börn Hauks og Ursulu eru Ágúst
Friðrik, f. 11.9.1960, íþróttaþjálfari
og verslunarmaður hjá Hagkaupi,
búsettur í Reykjavík en sambýhs-
kona hans er Mari Janne Röstland
frá Noregi, húsmóðir, og á hann tvö
börn; Ragnar, f. 22.3.1962, verkamað-
ur í Reykjavík; Anna Lisa, f. 7.10.
1971, húsmóðir, en maður hennar er
Haukur Hauksson sj ómaður.
Systkini Hauks eru Guðrún Ág-
ústa Brander, f. 26.12.1927, húsmóð-
ir í Kaupmannahöfn, ekkja eftir
Svend Brander, innkaupastjóra hjá
danska flughernum og eru dætur
þeirra þrjár; Ragnheiður, f. 20.3.
1929, húsmóðir í Reykjavík, gift Sig-
urjóni F. Jónssyni, loftsiglingafræð-
ingi og síðan flugumsjónarmanni,
lengst af hjá Loftleiðum og síðan
Flugleiðum og eiga þau flmm börn;
Bogi, f. 9.2.1932, verksmiðjustjóri í
Vestmannaeyjum, var kvæntur
Fjólu Jensdóttur, húsmóður og
bankastarfsmanni sem nú er látin
og eru börn þeirra fjögur en kona
hans er Helga Tómasdóttir húsmóð-
ir; Þórdís, f. 2.2.1939, húsmóðir í
Nesjahreppi en sambýhsmaður
hennar er Guðbrandur Jóhannsson,
kennari við Nesjaskóla, og á hún
þrjú böm; Þorsteinn, f. 28.7.1940,
skipasmiður í Hafnarfirði, kvæntur
Ágústu Olsen bankastarfsmanni og
eiga þau þrjár dætur; Sigurður, f.
20.3.1943, verkstjóri í Reykjavík en
kona hans er Gréta Kortsdóttir
kennari.
Foreldrar Hauks voru Sigurður
Bogason, f. 29.11.1903, d. 20.11.1969,
skrifstofustjóri hjá Vestmannaeyja-
kaupstað, og k.h., Matthildur Ág-
ústsdóttir, f. 28.7.1900, d. 18.6.1984,
húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Boga Sigurðs-
Haukur Sigurðsson.
sonar, kaupmanns í Búðardal, og
Ragnheiðar, dóttur Sigurðar, kaup-
manns í Flatey, Johnsen.
Matthildur var dóttir Ágústs
Gíslasonar, útgerðarmanns frá Val-
höll í Vestmannaeyjum, og Guðrún-
ar Þorsteinsdóttur, í Landlyst, Jóns-
sonar.
Haukur tekur á móti gestum í
hátíðarsal íþróttahúss Bessastaða-
hrepps í dag, 9.12. kl. 20.00.
Til hamingju með afmælið 9. desember
Valborg Ingimundardóttir,
Ægisgötu 5, Akureyri.
Helgi eraöheiman.
Vigfús Kristinn Vigfússon
húsasmíöameistari,
Bæjartúni 9, Ólafsvík,
verður sjötugur 14.12. nk.
Hann tekur á móti gestum i félags-
heimilinu Klifi í Ólafsvík latigar-
daginn 10.12. nk. milli kl. 17 og 19.
Helga Axelsdóttir,
Ytri-Neslöndum, Skútustaða-
Marinó Viborg Guðmundsson,
Skúlagötu 40 B, Reykjavík.
Stefanía Finnbogadóttir,
Miðhúsum, Reykjarfjarðarhreppi.
Bragi Hallgrímsson,
Holti, Fellahreppi.
Aðalbjörg Jónsdóttir,
Sléttahrauni 25, Hafharfirði.
Guðleifur Sveinn Þórarinsson,
b. að Másseh, Hlíðarhreppi.
Guðleifur verður að heiman.
Galtafelli, Hrunamannahreppi.
Erna Björnsdóttir,
Staðarbergi 12, Hafnarfirði.
Erna og maður hennar, Björn
Bjarnar Guðmundsson matreiðslu-
maður taka á móti vinum og
vandamönnum í Haukahúsinu við
Flatahraun á afmælisdaginn 9.12,
frákl. 19,30.
Guðj ón Árnason,
Egilsgötu 17, Borgarnesi.
Helga Kristjana Ólafsdóttir,
Krossdal, Kelduneshreppi.
Magnús Þór Óskarsson,
Borgarholtsbraut 78, Kópavogi.
Kristbjörg Gunnarsdóttir,
Dalsgerði4 C, Akureyri.
HelgiV. Helgason,
Grimsstöðum I, Skútustaðahreppi.
Gunnar Ingvi Hrólfsson,
Hraunbæ 46, Rcykjavik.
Hjalti Árnason,
Fabio l’atrizi,
Bústaðavegi 65, Reykjavik.
Margrót Haila Magnúsdóttir,
Skaftahliö 42. Reykjavik.
Magnús Sverrisson,
Drekahlíð 8, Sauðárkróki.
Sólveig Einarsdóttir,
Langholti9, Keflavik.
Eiginmaður hennar er Pétur Jó-
hannsson hafnarstj óri.
Hann veröur fertugur 11.12. nk.
Þau taka á móti gestum í KK-saln-
um, Vesturgötu 17, Keflavík, laug-
ardaginn 10.12. kl. 18-21.
Jóhanna Skúladóttir,
Rauðalæk 7, Reykjavík.
Jóngeir A.E. Sigurðsson,
Hlíðarvegi 17, Kópavogi.
Þórhildur Freysdótttir,
Stóragerði 24, Reykjavík.
Sumarliði Kristmundsson,
Hábrekku 8, Ólafsvik.
Gunnar Tómasson,
Vesturbraut8 Á, Grindavik.
Axel Birgir Knútsson,
Melholti 4, Hafharfirði.