Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1926, Blaðsíða 31
Skýrsla
um starfsemi Ræktunarfjeiags Norðurlands
frá 1. nóv. 1925—30. okt. 1926.
1. Gróðrartilraunir.
Tilraunastarfseminni hefir verið hagað á svipaðan hátt
og siðastliðið ár og eru flestar tilraunirnar hinar sömu
og þá voru starfræktar, en þó nokkuru bætt við. Ennþá
er ekki rjett að skýra frá niðurstöðunum af þessum til-
raunum, verður það að mestu látið bíða þar til þeim er
lokið. Pó vil jeg aðeins drepa á einstök atriði, sem geta
verið leiðbeinandi fyrir bændur. Verður aðeins þeirra
tilrauna getið hjer, er þannig er ástatt um og svo nýrra
tilrauna.
a. Samanburður köfnunarefnisáburða.
Pessi tilraun hefir verið aukin mikið frá í fyrrai F*á
voru aðeins reyndar 4. teg. (Noregssaltpjetur, Chilisalt-
pjetur, Leunasaltpjetur og Brennisteinssurt Ammoniak)
en nú hefir verið bætt við 5 teg., sem eru: Pýskur Kalk-
saltpjetur (N 15,5%), Saltsurt Ammoniak (N 24%), Cyan-
amid (N 20%), Troldmjöl (N 46%) og Urinstoff (N 46%).
Eftir niðurstöðunni að dæma, virðast saltpjeturtegund-
irnar þrjár — Kalksaltp., Noregssaltp. og Chilisaltp. —
mjög líkar að notagildi, miðað við köfnunarefnisinnihald.
3