Tíminn - 01.06.1974, Síða 27
TÍMINN
Laiigárdagur 1. júní '1974.
27
Dómaror túlka ekki
reqlurnar eins...
Þjálfarar og leikmenn 1. deildar liðanna eru
óánægðir með dómarana
Þjálfarar og leikmenn
1. deildar liðanna i
knattspyrnu eru ekki
ánægðir með túlkun
dómaranna, sem hafa
dæmt leiki i 1. deildar
keppninni. íþrótta-
siðan hefur frétt, að
e r 1 e n d u k n a 11 -
spyrnuþjálfararnir
hafi mikinn áhuga á
að efna til fundar með
1. deildar dómurum
og leikmönnum 1.
deildar liðanna, þar
sem væntanlega
verður talað um
túlkunaraðferðir
dómara. Já, það er
kominn timi til að tala
um túlkun dómara á
knattspyrnureglun-
um, þvi að islenzku
dómararnir túlka ekki
reglurnar eins.
Það hefur greinilega sézt á
leikjum 1. deildarinnar, þvi
sumir dómarar dæma á brot,
sem aðrir sleppa, og svo öfugt.
Þá virðast sumir dómarar
nota gula spjaldið einum of
mikið. Það er orðið svo, að
minnst tveir leikmenn eru
bókaðir i leik — að minnsta
kosti hjá sumum 1. deildar
dómaranna.
Erlendu þjálfararnir eru
ekki ánægðir með islenzku
dómarana, einkum ýmis
túlkunaratriði þeirra. Þá eru
leikmenn 1. deildar liðanna
ekki ánægðir með þá — þeim
finnst þeir oft á tiðum hafa of
mikil áhrif á gang leiksins.
íþróttasiðan hefur frétt, að á
fundinum, sem nú er i
undirbúningi, verði talað um
brot leikmanna. T.d. að hart
verði tekið á bakhrindingum,
sem virðast vera að ryðja séu
til rúms meðal islenzkra
knattspyrnumanna.
0
NOTA ÞEIH GULA KORTIÐ OF
MIKIÐ?
Sex sundmenn á
heimsmælikvarða
koma hingað...
Sænskir landsliðsmenn
//Þetta er sundfólk á
heimsmælikvaröa"/ sagöi
sundkappinn Guömundur
Gíslason, þegar hann las
upp nokkur nöfn á lista
fyrir sænskan sundhóp,
sem væntanlegur er hingað
til landsins frá Banda-
ríkjunum 6. júní n.k.
Sænska sundfólkið er frá
Stokkhólmi og eru sex
sænskir landsliðsmenn og -
konur í hópnum — sund-
fólk sem hefur veriö
framarlega í stærstu sund-
mótum heims.
Sænska sundfólkið tekur hér
í sundi keppa hér
þátt i sameiginlegu afmælismóti
KR og Ármanns, sem haldið
verður i Laugardalslaugunum
föstudaginn 7. júni. ,,Mótið
verður örugglega skemmti-
legasta sundmótið, sem hér
verður haldið i sumar,” sagði
Erlingur Jóhannsson, formaður
sunddeildar KR. Astæðan fyrir
þvi er sú, sagði Erlingur að
sænski sundhópurinn er fjöl-
mennur, og þá að auki er keppt i
stuttum sundgreinum, en þær eru
mjög spennandi fyrir áhorfendur.
Keppt verður i eftirtöldum
greinum á afmælismótinu:
400 m skriðsundi karla
100 m baksundi kvenna
50 m bringusundi sveina
(12 ára og yngri)
100 m flugsundi karla
d sundmóti 7. júní
100 m bringusundi kvenna
50 m skriðsundi drengja
(16 ára og yngri)
200 m bringusundi karla
100 m skriðsundi kvenna
50 m bringusundi telpna
(12 ára og yngri)
100 m skriðsundi karla
200 m fjórsundi kvenna
50 m flugsundi stúlkna
(16 ára og yngri)
200 m fjórsundi karla
4 X 100 m fjórsundi kvenna
4x100 m fjórsundi karla
Þeir sem hafa hug á að taka
þátt i mótinu eru beðnir að hafa
samband við Erling Jóhannsson i
sima 15004 fyrir miðvikudags-
kvöldið 5. júni.
Við munum siðar segja nánar
frá þessu móti hér á siðunni.
Þeir áttu
erfitt með
að fóta sig
Brasilíumenn gerðu jafntefli
við Strasbourg 1:1
ÞAÐ VAK EINS og heimmeistararnir væru að leika knattspvrnu á
skautasvelli, þegar þeir léku gegn franska liðinu Strasbourg á
fimmtudagskvöldið. Þeir áttu erfitt með að fóta sig á rennandi
blautum og hálum velli i Strasbourg, en þar fór leikurinn fram og
lauk homim með jafntefli 1:1. Frakkarnir urðu fyrri til að skora.
Það gerði VVagner á 37. min. fyrri hálfleiks, en staðan i hálfleik var
1:0 fyrir þá. Paulo Sesar jafnaði fyrir heimsmeistarana í siðari
hálfleik.
Brasiliumenn leika nú einn æfingarleik, áður en sjálf heims-
meistarakeppnin hefst. Það verður gegn Basel, liðinu sem Fram lék
við i Evrópukeppni meistaraliða sl. keppnistimabil. Sá leikur fer
fram i Sviss.
Fram
FRAMLIÐIÐ...
Ásgeir Eliasson,
Snorri Iiauksson,
Rúnar Gislason, Árni
Stefánson, Hlöðver
Rafnsson, Guðgeir
Leifsson, Marteinn
Geirsson, Ágúst Guð-
mundsson. Gunnar
Guðmundsson,
Kristinn Jörundsson
og Jón Pétursson,
sem er fyrirliði liðs-
ins.
(Tlmamynd Jim)