Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Blaðsíða 16
Flestir munu sammála um að hagsmunir út-
gerða og sjómanna eigi að fara saman við verð-
Iagningu á afla. Verðlagningin er að nafhinu til
fxjáfs, en í mörgum tilvikum er það svo, að út-
gerðarmenn ákveða einhliða verðið sem greitt
er til áhafha veiðiskipanna. Enda er útgerð og
fiskvinnsla oftar en ekki á sömu hendi. Þetta
hefur leitt tif þess að tortryggni hefur skapast
milli sjómanna og útgerðarmanna, sérstaklega í
Ijósi þess að sjómenn hafa með ýmsu móti
verið látnir taka þátt í kostnaði af kaupum eða
leigu á veiðiheimildum. Það getur því reynst
erfitt að sjá við verðlagningu afla hvaða hluti
hennar er fiskverð og hvað er vegna svokallaðs
kvótabrasks.
í kjarasamningum og lögum eru skýr ákvæði
sem eiga að koma í veg fyrir að sjómönnum sé
gert að taka þátt í kostnaði útgerðar við öflun
veiðiheimilda. Engu að síður hafa ýmsir út-
gerðarmenn verðlagt afla til áhafna með tilliti
til þessa kostnaðar. Tilraunir hafa verið gerðar
til að reyna að leysa þennan vanda.
Samstarfsnefhd sjómanna og útvegsmanna var
komið á árið 1994, en skilaði engum árangri.
Sjómenn kenndu um viljaleysi útgerðarmanna.
Við næstu kjarasamninga var sett á fót úrskurð-
arnefhd sömu aðila til að úrskurða um fiskverð
þegar ekki náðist samkomulag milli útgerðar-
manna og áhafha. Nefndin hefur ekki náð að
þjóna þessu markmiði þar sem útvegsmenn
hafa eftir sem áður beitt sjómenn þvingunum
til að geta verðlagt aflann að eigin geðþótta.
Þetta hefur leitt til þess, að sjómenn hafa af
auknum þunga krafist þess að allur fiskur sem
seldur er innanlands verði boðinn upp á fisk-
markaði. Með því móti verði verðlagning gegn-
sæ og ljóst hvert raunverulegt skiptaverð væri.
Fiskmörkuðum hefur vaxið mjög fiskur um
hrygg undanfarin tíu ár. A mörkuðum eru nú
seld árlega um 100 þúsund tonn af bolfiski
fyrir um 10 milljarða króna. Segja má að
tæknilega sé ekkert því tif fyrirstöðu að allur
fiskur fari á markað, en hins vegar eru ekki allir
á eitt sáttir um hvort fára skuli þessa leið eða
ekki.
Við ræddum við nokkra sem eiga hagsmuna
að gæta í þessu máli og báðum þá að að svara
þeirri spurningu hverjir væru kostir þess og
gallar að allur ferskur fiskur færi til sölu á
markaði. ■
Sjómannablaðið Víkingur