Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Síða 24
Skortur á stöðugleika skipa hefur
kostað fjölmörg mannslíf á undanf örnum árum
SasrnundUr
GuðvinsSon
tók saman
annað
ii ídrí
manns rorus
Eins og fram kemur á öðrum stað í blaðinu
hefur Rannsóknarnefnd sjóslysa lengi reynt
að vekja athygli á því geigvænlega vandamáli
sem er skortur á stöðugleika fiskiskipa. Engu
að síður virtust upplýsingar þar um koma
þingmönnum í opna skjöldu þegar málið
kom til umræðu á Alþingi fyrir skömmu.
Framkvæmdastjóri nefndarinnar, Kristján
Guðmundsson, teiur að skortur á stöðuglei-
ka og/eða vanþekking skipstjórnarmanna á
mikilvægi stöðugleika fyrir öryggi skipsins,
hafi átt mestan þátt í flestum skipstöpum á
árunum 1971 til 1986, en samtals fórustl 14
menn í þeim. í greinargerð hans frá árinu
1987 segir:
Samkvæmt skýrslum Rannsóknarnefndar
sjóslysa fýrir árin 1971 till986 hafa farist á
hafi 53 bátar og með þeim 100 menn, 6 trill-
ur og með þeim 3 menn og 6 flutningaskip
og með þeim 11 menn.
Af þessum 53 bátum sem farist hafa á þes-
sum árum er vitað um að: 29 bátar hafa farið
Aðalbjörg RE 5 reynd-
ist mikið happafley.
á hliðina eða hvolft, 2 bátum hvolfdi vegna
þess að veiðarfæri festust í botni,13 bátar
fórust þar sem orsakir voru ókunnar nema
hvað veður var vont, 6 bátar fengu óstöðvan-
di leka og sukku, 3 bátar sukku eftir árekstur.
Við nánari skoðun kemur í ljós að vitað er að
31 bátur hefur farið á hliðina eða hvolft og
hefur slíkt gerst bæði í góðu og slæmu veðri.
Að því er varðar þá 13 báta sem fórust án þess
að orsakir sé kunnar má með nokkurri vissu
telja að hluti þeirra hafi einnig farið á hliðina
eða hvolft.
Að framansögðu má draga þá ályktun að
stöðugleiki íslenskra fiskiskipa og vanþekk-
ing skipstjórnarmanna á stöðugleika skip-
anna sé alvarlegt vandamál.
Vegna skorts á upplýsingum um stöðuglei-
ka fjölda íslenskra fiskiskipa er ekki við
útgerðarmenn eða skipstjórnarmenn að
sakast að öllu leyti. Er það fýrst nú á seinni
árum að farið er að krefjast stöðugleikaút-
reikninga fýrir fiskiskip og því er um að ræða
fjölda eldri skipa sem engar eða takmarkaðar
upplýsingar liggja fýrir um.
Þær upplýsingar sem fýrir liggja gefa fýllstu
ástæðu til að ætla að skortur á stöðugleika
og/eða vanþekking skipstjórnarmanna á hve
veigamikill þáttur í öryggi skipsins stöðug-
leikinn er hafi átt mestan þátt í fléstum ofan-
24
Sjómannablaðið Víkingur