Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Page 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Page 26
aniuið luiiHlrað iiianns lómsi <1 l.lámm Miklar umræður á Alþingi um skýrslu Siglingastofnunar um að stöðugleika margra eldri skipa sé ábótavant. Þessar upplýsingar eru þó fjarri því að vera nýjar af nálinni. Sjóslysanefnd hefur bent á þessa hættu áratugum saman „Veiðarf æri verða sifellt stærri.“ Ennfremur verða veiðarfæri sífellt stærri og þyngri án þess að stöðugleiki skipa sé endurmetinn. Þá hafi reynslan sýnt að skip þyngist með aldrinum, meðal annars vegna aukinna varahluta, tækja og búnaðar. í skýrslunni er lagt til að reglur um stöðugleika fiskiskipa nái til allra skipa, nýrra og gamalla. Þar er sömuleiðis lögð áhersla á aukna fræðs- lu um þessi mál og stöðugleikapróf á skipum fari oftar fram en nú tíðkast. VlÐVARANIR I ÁRATUGI Svo sem fram kemur hér í upphafi hefur Rannsóknarnefnd sjóslysa áratugum saman reynt að vekja athygli á því að stöðugleika skipa sé ábótavant. Nefndin hefur hins vegar talað fyrir daufum eyrum. Nefna má örfá dæmi og hér á eftir fer tilvitnun í skýrslu nefndarinnar fyrir árið 1984: „f þessari skýrslu Rannsóknarnefndar sjóslysa, sem og á undanförnum árum, er sagt frá sjóslysum, sem orðið hafa vegna þess að stöðugleiki skipa hefur ábótavant af ýmsum ástæðum. Að undanförnu hafa menn beint mjög sjónum að þessu vandamáli og því, hve það er brýn nauðsyn, að vandlega sé fylgst með „Það vill nú svo til að síðustu 20 til 25 árin hefur þörfin á rannsóknum og eftirliti á stöðugleika íslenskra fiskiskipa verið gegnum gangandi í skýrslum nefndarinnar. Það er því langt í frá að þessi umræða sé ný af nálinni. Hins vegar virðist ekki hafa verið áhugi til úrbóta í þessum efmum. En það er ekkert vafamál að rekja má fjölda sjóslysa til skorts á stöðugleika skipanna, eða og að menn hafi ekki farið rétt með þau,“ sagði Kristján Guðmundsson framkvæmdastjóri Rann- sóknarnefndar sjóslysa í samtali við blaðið. Samkvæmt skýrslu Siglingastofnuna um úttekt á stöðugleika íslenskra skipa eru um eða yfir 150 fiskiskip á sjó sem ekki hafa verið stöðugleikamæld. Þessar upplýsingar urðu tilefni til utandagskrárumræðna á Alþingi fýrir skömmu. Svo virtist sem þessar stað- reyndir kæmu þingmönnum á óvart og þeir kröfust þess að úrbætur yrðu gerðar þar sem núverandi ástand væri óviðunandi. Árið 1975 voru settar reglur um stöðug- leika skipa stærri en 15 metra og árið 1985 fýrir skip minni en 15 metra. Þessar reglur voru hins vegar ekki gerðar afturvirkar og ná því aðeins til skipa sem smíðuð eru eftir gild- istöku þeirra. I skýrslu Siglingamálastofnuna kemur fram að hugsanlega sé að stöðugleika- gögn sumra skipa séu vart marktæk. Það geti meðal annars stafað af því að skipum hefur verið breytt án vitundar siglingayfirvalda. 26 Sjómannablaðið VIkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.