Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Blaðsíða 49
Annað sem Gunnar tekur fram varðandi
andlega og félagslega þáttinn er munurinn á
vmnubrögðum um borð i skipunum.
>,A saltfisktúrunum voru alltaf verkefni.
Allt var unnið á höndum og því tók vinnslu-
ferlið lengri tíma. Eftir að fiskurinn kom á
dekk var hann blóðgaður, þá hausaður, síðan
flattur og saltaður. Síðan var hann tekinn
uPp, hristur, honum umstaflað og síðan
saltaður á ný. Ef engin var veiðin var nóg að
gera í umstöflun á fiskinum, endursöltun eða
flatningu. Það var aldrei tími til að láta sér
leiðast," segir Gunnar. „í dag eru menn
verkefnalausir þegar ekkert veiðist. Að sitja
auðum höndum yfir engu fer illa með hvern
mann.“
FjÖLSKYLDAN ER HEILÖG
A togurunum í gamla daga var ekki mynd-
bandstæki, útvarp heyrðist stundum en
menn lásu mikið á frívöktum. Engir voru
farsímarnir og þvi þurfti að tala við fjölskyld-
una í gegnum talstöð. Skilyrði voru misjöfn
en um borð í skipunum var loftskeytamaður
sem sá um samskiptin við umheiminn.
„Við Gíslína komum okkur upp ákveðn-
um leynikóda til þess að ég gæti gefið henni
til kynna hvað við höfðum fiskað. Auðvitað
var aldrei talað um nein vandamál eða leiðin-
di, það gátu allir hlustað. Annað sem var
algjört tabú um borð í skipum var fjölskyl-
dan. Menn gátu talað, hlegið eða rifist en
aldrei var höggvið nálægt fjölskyldunni, hún
var heilög.“
SjÓMENN HÖFÐU MEÐBYR
Einnig segir Gunnar að hér áður fyrr hafi
sjómenn haft meðbyr í þjóðfélaginu. Sjó-
mennskan var talin gott og göfugt starf og
sjómenn nutu virðingar samborgaranna.
„Það er eitthvað annað upp á teningnum í
dag. Núna er engu líkara en sjómenn séu að
taka eitthvað frá öðrum og enginn tekur upp
hanskann fyrir þá. Umræðan um svokallaðan
sjomannaafslátt — sem ég tel nú reyndar
rangnefni, því hann er enginn afsláttur — er
eitt dæmið. Þessi svokallaði sjómannaafslátt-
ur kom inn í kjarasamninga okkar til þess að
mæta kostnaði sem við höfðum vegna
hlífðarfata. Stakkarnir, sem voru úr striga
sem í var borinn fernis, rifnuðu við minnsta
hnjask. Síðan var sami skattaafsláttur veittur
borðalögðum skipstjórum á flutningaskipum
sem fengu hvort sem er einkennisbúning. Þar
með voru allir menn sem skráðir voru á skip
komnir með þessi kjör, sem aldrei átti að
verða.“
HAGÆÐAVARA A HAGSTÆÐU VERÐI
TOOVÍR
SNURPUVÍR
VINNSLUVÍR
KRANAVÍ R
Skoðun og uiðgerðir
gúmmíbáta
Einnig skoðun og viðgerð bjargbúninga
Gúmmíbátaþjónustan
Eyjaslóð 9, Örfirisey sími 551: 4010 Fax: 562 4010
Útgerðarmenn — vélstjórar.
Önnumst allar raflagnir og viðgerðir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta við íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
49