Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Blaðsíða 58
Framtak í Hafnarfirði:
mikið verk um hátíðarnar
Stórt og
Starfsmenn Framtaks í
Hafnarfírði höfðu nóg að gera
um hátíðirnar, en þeir fengu
óvænt stórt og mikið verk til
að vinna. Þeir voru fengnir til
að skipta um höfuðlegur í
aðalvél Reykjafoss. Við nánari
skoðun kom í Ijós að botn-
rammi vélarinnar var klofinn
endilangt. Ákveðið var að
freista þess að gera við ram-
mann hér heima frekar en
draga skipið til viðgerðar
erlendis.
„Ég var, ásamt þremur
starfsmönnum okkar, nýkom-
inn af námskeiði hjá MAK, þar
sem meðal annars var kennd
viðgerð samskonar þeirri sem
gera varð í Reykjafossi," sagði
Þór Þórsson, einn eigenda
Framtaks.
Aðstæður til stórra viðgerða
í þröngu vélarrúmi geta verið
erfiðar. Til að mynda er heild-
arþungi aðalvélarinnar yfir 30
tonn. Framtaksmenn brenndu
gat í dekk skipsins og gátu
með því notað skipskranana
til að lyfta vélinni. Að auki
smíðuðu þeir sæti undir vél-
ina, þó ekki væri nema til að
gera þá rólegri meðan þeir
voru að vinna undir henni.
Til stóð að Ijúka verkinu 13.
janúar, það tókst og reyndar
voru þeir búnir nokkrum dög-
um fyrr en þeir áttu að skila
verkinu. „Við erum vel í stakk
búnir til að taka að okkur verk
sem þetta. Hér er afbragðs-
mannskapur sem var tilbúinn
að vinna langan vinnudag, jafnt
um helgar sem aðra daga. Ekki
var þetta þó átakalaust, en við
fengum rangar afgreiðslur
erlendis frá, bæði hvað varðaði
sérverkfæri og fleira. Óneitan-
lega tafði þetta okkur, en innan
fyrirtækisins var mikill spenn-
ingur um hvort okkur tækist að
skila verkinu á réttum tíma og
eins og áður hefur komið fram
tókst það fyrir tilsettan tíma.
Þetta er skemmtilegt eftir á,
þegar allt gengur upp að
lokum, og það er nú einu sinni
svo, að erfiðleikamir gleymast
þegar verki er lokið.“
Framtaksmenn hafa nýverið
tekið í notkun „magaspeglun-
artæki", rana sem kemst inn
um allt að 12 til 14 millimetra
göt og kemst allt að einn
metra inn í vélar sem skoða
þarf. Þá hafa þeir einnig tekið
í notkun vélartölvu sem skrifar
út á línuriti brunaþrýsting,
þjöppunarþrýsting og hverju
vélin skilar i KW. Hægt er að
tengja vélina við PC-tölvur og
eins er hægt að prenta út ski-
laboðin frá tölvunni.
Þrír starfsmanna Framtaks
eru nýkomnir af vikunám-
skeiði hjá B&W í Danmörku.
Þá hefur Framtak yfir mikilli
þekkingu á stillingu díselvéla
að ráða, en þeir stilla vélar
fyrir bíla, báta og skip. ■
Sími 568 0160
|$Facet austur
skiljur
Skiparadíó hefur
keypt Rafhús
í desember sl. keypti Skipa-
radíó ehf. fyrirtækið Rafhús ehf.
sem er umboðsaðili fyrir JRC
(Japan Radio Co) og Raytheon
á Islandi.
Fyrirtækin verða með aðskil-
inn rekstur en samnýtingu hús-
næðis og mannafla. Þjónusta
er lýtur að meðferð tækja og
viðgerðum verður að sjálfsögðu
í höndum tæknimanna
Skiparadíós.
Sigurður Jónsson, áður
eigandi Rafhúss, bætist nú
í starfsmannahópinn og
mun einkum sinna sölu
tækja auk þess að efla
tengslin við viðskiptavini
Rafhúss. JRC og Raytheon
eru ekki óþekkt merki á
íslandi, enda verið hér á
markaði um áratugaskeið.
JRC framleiðir nánast
allt sem þarf í brú skips;
radartæki, dýptarmæla,
sónara, straumlogg, tal-
stöðvar o.m.fl. JRC var
stofnað 1915 og er eitt
elsta og stærsta fyrirtæki f
heimi i framleiðslu siglinga-
og fiskileitartækja. ■
A 111»
AliV
SPÓLUROFAR
Stæröir:
4 - 400 kW
Jf
JOHAN
RÖNNING HF
slmi: 568 4000 - http://www.ronning.ls
58
Sjómannablaðið Víkingur