Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Side 59

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Side 59
Skynjaratækni ehf.: Gasskynjarakerfi & gagnasöfnunartæki í dag eru gerðar auknar kröf- ur til fýrirtækja og einstaklinga varðandi hvers konar umhverf- ismál. Element Skynjaratækni framleiðir og selur hágæða búnað og þjónustu í þessu skyni. Með því er viðskiptavin- inum tryggður sparnaður, öryggi, rekstrarhagkvæmni og aðstoð við að uppfylla lög og reglugerðir á sviði umhverfis- rnála. Element leggur einnig ríka áherslu á að veita viðskiptavin- um sínum góða og vandaða viðhalds- og viðgerðarþjónustu. Element hóf þróunarstarf sitt árið 1992 undir nafninu RKS Skynjaratækni, þá í samvinnu við Raunvísindastofnun Há- skóla Islands og stendur sú samvinna enn. Element fram- leiðir í dag aðallega tvenns konar vörur, þ.e. gasskynjara- kerfi til skynjunar á gasleka og hins vegar gagnasöfnunartækið Medistor. Element er einnig með ýmsar vörur til endursölu frá öðrum aðilum, s.s. margs konar skynjara, mæli- og skráningarbúnað. Markaður: Sala á vörum fyrir- fækisins hófst í byrjun árs 1993 á innanlandsmarkaði. í dag er fyrirtækið með markaðs- og sölustarfsemi bæði innaniands °g erlendis. Á innanlandsmark- aði sér fyrirtækið sjálft um markaðs- og sölustarfsemina °g að hluta til erlendis, en þar er þó mest byggt á samstarfi við Sabroe Refrigeration A/S í Danmörku. Markhópar Elements eru fyrirtæki og aðilar sem framleiða °g/eða nota kælitæki og mat- vaelaframleiðendur. Einnig fyrir- tæki og stofnanir á sviði um- hverfismælinga, t.a.m. mennta- stofnanir, rannsóknastofur, orkuveitur og ráðgjafarfyrirtæki. Rannsóknir og þróun: Ele- ment stundar öflugt þróunar- starf og eru gæðamál höfð í fyr- irrúmi, þar sem fyrirtækið vinnur samkvæmt kröfum gæðastað- alsins fST ISO-9001. Fyrirtækið tekur einnig þátt í rannsóknar- verkefnum með ýmsum stofn- unum og fyrirtækjum er vinna að umhverfismælingum. Gervirækja. I hefðbundinni rækjuverksmiðju er suðan sú vinnslueining sem mestu ræður um nýtingu rækjunnar. Suðan fer þannig fram að rækjan er flutt á færibandi í gegnum svo- kallaðan sjóðara þar sem gufu er blásið á rækjuna. Til að tryggja að rækjan hafi fengið nægjanlega hitameðferð hafa erlendir kaupendur krafist þess að gerðar séu mælingar á hita- stigi í kjarna rækjunnar. Þessar mælingar eru framkvæmdar þannig að hitanema er stungið í rækjuna og hún látin fara í gegnum suðuferlið. Erfiðleikar við að staðsetja hitanemann rétt í rækjunni, auk þess sem neminn er laus og getur því dregist til, gerir það að verkum að mælingarnar eru ónákvæm- ar og koma ekki alltaf að tilætl- uðum notum. Iðntæknistofnun, i samvinnu við Element Skynjaratækni, hefur sótt um styrk til Tækni- sjóðs Rannsóknarráðs til þess að þróa gervirækju sem nemur hitastigið í sjóðaranum og þolir þau skilyrði sem ríkja við suð- una. Gervirækjan verður tengd við Medistor, skráningarbúnað frá Element Skynjaratækni. Með þessum búnaði verður bæði auðveldara og fljótlegra að fram- kvæma hitastigsmælingar fyrir kaupendur auk þess sem þær verða mun áreiðanlegri. Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins og Element Skynjaratækni hlutu á síðasta ári styrk frá RANNÍS til þess að þróa tæki til að meta gæði hráefnis fyrir fiskmjöl. Tækið grundvallast á fjöl- gasskynjun. Verkefninu miðar vel og hefur verið sótt um styrk til Evrópu- ráðsins vegna samvinnu- verkefnis nokkurra Evrópuþjóða til að sýna fram á gildi fjölgasskynj- unarkerfa við gæðamat á hráefni í samanburði við hefðbundnar aðferðir. Ennfremur hefur verið sótt um styrk til RANNÍS til þess að aðlaga fjöl- gasskynjunarbúnaðinn þannig að gera megi mat á lyktarmengun frá fisk- mjölsiðnaði. Element Skynjaratækni er í tengslum við háskóla og stofnanir í Evrópu sem vinna að rannsókn á nýrri gerð skynjara sem mæla styrk ákveðinna jóna í vökvum (Chalcogenide glass electrodes). Skynj- arana má nota til þess að fylgjast með efnamengun í umhverfinu og tilfram- leiðslustýringar. ■ A 111» Mllll HRAÐASTÝRINGAR Stærðir: 0,37-315 kW //Á/f JOHAN •>f/f// RÖNNING HF sími: 568 4000 - http://www.ronning.is 350 ha. bátavél til á lager • 6 strokka • Turbo Intercooler • Létt og fyrirferðalítil • Þýðgeng og sparneytin • Ýmsir drifmöguleikar Ráðgjöf • Sala • Þjónusta V Skútuvogi 12a, 104 Rvk. Sími 581 -2530 SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR 59

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.