Andvari - 01.01.1947, Síða 27
ANDVARI
Stephan G. Stephansson
23
niáli sinu beint að, hvert mitt álit vau-i. „Æi,“ svaraði ég í
glettni, „verið þið nú ekki að þessu oflofi, piltar, um Opin-
berunarbókina, hún er enginn helgur spádómur, en aðeins
eins konar ,,Gandreið“ eða „Heljarslóðarorusta" eftir ein-
hvern Gröndal þeirra tíma og um hans samtíð.“ Svarinu „rigndi
ofan í mig“ óhugsuðu áður, en hafði þann árangur, sem ég
ætlaði: Þeim ofbauð og hættu við umræður. Næst er ég kom
til messu hjá séra Páli, lagði hann rnjög út af óskeikun bibl-
iunnar og hættunni, sem þeir stæðu i, sem efuðu hana, svo
sem þeir, sem líktu Opinberunarbókinni við „Gandreið Grön-
dals. Mér lá við að hlæja. En jafngóður var Páll mér eftir
sem áður, og aldrei minntumst við á þetta. Nu er ímyndun
min sú, að Opinberunarbókin snúist um tímana, sem höf-
undur hennar var uppi á.
Litlu eftir að ég kom til Alberta, var ég nefndur til að talca
áratuga-manntalið hér, á litlu svæði. Eyðublöðin voru lögð
til, en flóltin voru þau fyrir óvana og ýmsar skýrslur að auki.
Manntalsstjóri hér í fylki boðaði öllum lægri liðum tilsagnai-
fund. Eg komst ekki á hann sökum illviðris og langleiðis,
varð að sætta mig við það, sem mér sjálfum skildist. Skila
varð ég skýrslu minni í hendur höfðingjans sjálís í Calgaiy
°g mæta þar augliti til auglitis. Hann tók mér vel, en fyiú-
hauð mér heimferð, fvrr en hann hefði rannsakað, að rétt væri
að farið. Flestra skýrslur væru meira og minna rangar, jafn-
vel hjá þeim, sem annars væri af að vænta, til dæmis væii hann
ðúinn að silja við í viku með einn, og yrði ])ó aldrei eins og
vera ætti. En koma mætti ég til sín daginn eftir, liann skyldi
Þá vita, hver forlög mín yrðu. Mér leizt illa á blikuna. Þegai
éS kom til hans næsta dag, sagði hann, að ég mætti fara heim,
skýrslur minar virtust að vera gildar og góðar. Eg varð teg-
inn- Tók far heim samdægurs. Þegar ég var setztur niður,
kemur karl í vagninn, sem ég var í, og sezl hjá mér. ai a
ferð i sömu átt og ég. Hann tók að spyrja mig um, hvaðan
ég væri runninn, menntun mina o. fl„ svo um Kyn, stjoin,
sögu og trú Islendinga. Ég svaraði því eins og ég vissi. l.oUs
segir hann: „Nú skal ég segja þér eins og var. At' milli 7U t«