Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1947, Side 94

Andvari - 01.01.1947, Side 94
90 Sigurjón Jónsson ANDVARl pörtum kornsins, sem voru aðsetur fjörefnanna, og að verja sig fyrir sólskininu og brögðuðu ekki ávexti né grænmeti mán- uðum saman. Beri-beri, skyrbjúgur, beinkröm, pellagra og nátt- blinda tóku að herja á mennina. Að því undanskildu, að fyrir svo sem 200 árum kenndi reynslan mönnum að verjast skyrbjúg með því að neyta sílr- ónusafa eða skarfakáls, vissu menn ekkert ákveðið um þessa hörgulsjúkdóma, þangað til Eijkmann tók að gera tilraunir á fuglum á Java undir síðustu aldamót. Smám saman fundust svo fleiri og fleiri fjörefni, en ekki er það fyrr en á síðustu áratugum, sem tekizt hefur að fá þau alveg hrein og setja þau saman í efnasmiðjum. Fáir gera sér enn í dag grein fyrir því, hve miklu þetta varðar. Þó að sennilegt sé, að hvergi í heimi sé betri matarvist en í Bandaríkjum Norður-Améríku, telja samt þeir, sem um það eru fróðastir, að 50—75 af hverjum hundrað íbúum þar fái ekki svo mikið sem æskilegt væri af öllum fjörefnum, sem menn þarfnast. Að vísu hafa menn þar hvorki skyrbjúg, beri-beri né beinkröm, en þeir hafa sand af smákvillum, sem þeir þyrftu ekki að fá og fengju ekki, ef fjörefnaneyzla þeirra væri fullnægjandi. Náttblinda, kvefsækni, tannskemmdir, lystarleysi, þung- lyndi, taugaveiklun, reiðigirni og annað slíkt stafar oft af fjörefnaskorti. Ef menn hafa gnægð fjörefna, flýtir það mjög fyrir, að sár grói eða beinbrot og að sjúklingar nái sér eftir sjúkdóma; loks eflir það mjög viðnámsþrótt manna gegn næm- um sóttum. Það er gott til þess að vita, að það er að verða al- gengara og algengara að bæta ýmsar fæðutegundir með fjör- efnum.1) Vegna Jiess fékk almenningur í Bretlandi og Banda- ríkjunum betri fæðu en áður á ófriðarárunum, þrátt fyrir ófriðarhömlurnar. Svo sem sagt var í skilgreiningunni í upphafi þessa erindis, fæst læknisfræðin annars vegar við varnir gegn sjúkdómum, hins vegar við að lækna þá eða lina. Nokkrar tilraunir til 1) Hér á landi er smjörlíki eina fœðutegundin, sem fjörefni hefur veriö hætt í enn sem komið er.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.