Æskan - 01.09.1974, Side 62
MBf ann hefur verið kallaður „faSir
líkamsþjálfunarinnar" og var á
sínum tíma álitinn sterkasti maður
heimsins. Hann tók sér nafnið Llonel
Strongfort og milljónir manna þjálfuðu
líkamsvöðva sína eftir aðferðum hans.
Hann hét réttu nafni Max Unger og var
fæddur I Berlín, — en fluttist 12 ára
gamall með foreldrum sínum til Banda-
rlkjanna, — þar sem hann óx upp og
gerðist mjög glæsilegur piltur. Ungur
kom hann þar fram sem kraftajötunn.
Strongfort varð víðfrægur I hinu kunna
sýningaratriði Lifandi brúin, — þar
sem hann fór sjálfur með aðalhlut-
verkið. Atriðið var I því fólgið, að hann
stóð sem lifandl brúarstöpull undlr járn-
ramma, sem fólksbíll með 7 mönnum
ók yfir. Gífurlega athygli vakti það einn-
ig, er Strongfort tók heljarstökk aftur
fyrlr sig með 25 kg lóð I hvorrl hendl.
Enda þótt hann byði áhorfendum sínum
stórfé, ef þelr lékju þetta eftir honum,
treystist enginn til þess. Með aldrinum
hætti Strongfort þessum þrekraunum og
gerðist líkamsþjálfari. Var hann þá 'ráð-
inn íþróttakennari spænska krónprins-
ins, slðar Alfons konungs.
Upp úr þvl vaknaði áhugi vísinda-
manna við háskóla I Bandaríkjunum,
Þýzkalandi, Austurríki og Tékkóslóvaklu
á þjálfunarkerfi hans, og fóru fram at-
huganir á því, — kom þá I Ijós, að
vaxtarlag Strongforts var I nákvæmlegu
sömu hlutföllum og hinar heimsfrægu
myndastyttu Michaelangelos af Davíð.
Varð þetta til þess, að nokkrlr kunnir
myndasmiðir og höggmyndasmiðir
fengu Strongfort tll að sltja fyrlr hjá
sér, meðal annars þeir Rodin (Rodin
Auguste — franskur höggmyndasmiður
— fæddur I París 1841, — dáinn 1917)
og Tualon, •— helmsfrægir höggmynda-
smiðir, sem voru uppi á sama tlma.
Samnlngar þelr, sem læknavlsinda-
menn gerðu við Strongfort, vöktu áhuga
hans á llkamsbygglngu, hellsufræði og
næringarhollustu.
Líkamsþjálfarinn mikli — Lionel
Strongfort.
Llkamsþjálfun hans miðaði ekki ein-
ungis að því að styrkja áberandi vöðva,
heldur skapa samræmi milli allra vöðva
líkamans. Kerfi hans varð heimsfrægt
skömmu fyrir heimsstyrjöldina 1914—
1918, en þá stofnaði Strongfort þjálfun-
arskóla I New York, Lundúnum, Berlln,
Munchen og Salzburg. Síðast rak hann
þjálfunarskóla I Baden og veittl honum
sjálfur forstöðu, þar til hann lézt fyrir 5
árum síðan 92 ára gamall.
Strongfort var vanur að segja gest-
um, sem komu til hans, að hann hefðl
llkamsþrótt til að verða 100 ára, en þar
skjátlaðist honum aldrei þessu vant.
Lionel Strongfort — hans raunveru-
lega nafn var Max Unger — hann var
fæddur I Berlín 23. nóvember 1878.
Hann kom fyrst fram 19 ára gamall
og sýndi þá aflraunir og lyftingar.
Ég hefi reynt I áraraðir að ná I °9
eignast þjálfunarkerfi Strongforts en án
árangurs, — það er eins og jörðin hafl
gleypt það — það er algerlega ófáan-
legt.
Strongfoct ruddi veginn sem líkams-
þjálfari, — hann var á undan vinum
mínum og kennurum, Charles Atlas 09
George F. Jowett, en aflrauna- °9
heilsuræktarkerfi þeirra eru bæði til á
Islenzku I þýðingu mlnni.
Svo vona ég að þessi grein mln om
líkamsþjálfarann mikla, Lionel Strong-
fort, verði lesendum Æskunnar til gagns
og gleði og megi hvetja unga íslend-
inga til dáða.
Það er ekki á allra færi að verða jafn-
okar Strongforts sjálfs, sem ávann sér
afl, hreysti og líkamsfegurð með margra
ára markvissrl þjálfun, sem fæstum er
auðið að stunda. Enda er takmarkið
ekkl að verða svo og svo sterkur,
heldur fallega vaxinn, hraustur og heil'
brigður.
Ég vil hvetja alla unga pilta til að ®fa
Iþróttir, þvl að þær eru góður undirbún'
ingur undir lífið og starfið, — en regW'
semin verður að vera leiðarstjarnan.
Bjarni Sveinsson.
Ég undirrit....... óska að gerast áskrifandi
að Æskunni.
Nafn: ...
Heimili:
Póststöð:
Utanáskrift er: Æskan, Pósthólf 14, Reykjavík.