Skírnir - 01.12.1919, Síða 21
Skirnir]
Jón Thoroddsen.
227
eins. Ekkert nef, enginn fingurgómur, enginn málrómur
eru.að öllu eins. Og eins tölum vér engir sama málið,
þótt vér tölum sama móðurmálið. Orðaforði vor er mis-
jafn, sumir hafa tíðast þau orðin, er aðrir nota sjaldnast,
setningaskipun vor er ólik o s. frv. Og flestir höfum vér
sérstakar málvenjur og málkæki, eins og t. d. þingmað-
urinn, er smeygði »nefnilega« í næstum því hverja smá-
setning, sem rann af hans munni. Jón Thoroddsen hefir
haft óvenju-næmt eyra á þessum mismun og hæfileikann
tií að ná rödd hvers kvikindis, ef svo má að orði kveða.
Það þarf alls ekki að segja okkur, að það séu Gróa á
Leiti, Bárður á Búrfelli, Sigvaldi prestur, Hlíðarhjón eða
Þuríður gamla, sem tala, þá er þau tala. Vér myndum
fljótt kenna þau fyrir því, eins og vér i þreifandi myrkri
þekkjum kunningja vora á röddinni eða heyrum oft, hver
talar við oss i sima, áður en viðtalandi segir til sín. Fá
skáld hafa betur forðast en Jón Thoroddsen þann stórtíða
galla á skáldsögum, að persónur tala þar sama mál sem
skáldið ritar. Meiri hermikráka en hann í þeirri merk-
ingu orðsins hefir ef til vill ekki komið á þetta land. Á
fáu er skáldið auðkendara en þessari íþrótt. Þið skáldefni
°g skáldaspillar íslands! Berið ykkur hér saman við Jón
Thoroddsen. og segið ykkur síðan, hvort þið eigið þenna
guðdómsneista þessa listaskálds.
Skaplyndi og geðbrigði sögufólksins sést á samtali
þess eins og í gegnum gagnsæja slæðu. Taki menn eftir,
kvernig Gróa á Leiti lætur eiturdropa kjaftháttarins leka
i «yru Ingveldi vinkonu sinni í veizlunni hjá séra Tóm-
asi: »Það er ekki fyrir það. Þetta er mesta trippi, stelp-
an> þó hún sé prestsdóttir. Og vitið þér, hvers vegna hun
vildi ekki láta yður skauta sér« (segir Gróa). »Ó nei.«
*Æ, mig grunar, að hún væri hrædd um, að þér mynd-
uð sjá það, sem ekki á að sjást, en hver heilvita maður
getur þó séð. Þér munuð hafa heyrt það, sem talað er.«
^O-nei, ekki hefi eg heyrt það.« »Þá get eg sagt yður
Það; um hana og prestinn hérna —« »Nú, nú.« »Og
Pvi þau biðu ekki með brúðkaupið til vorsins, eins og
15*