Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 49
Skirnir] Daði Halldórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir. 43
Þeir eru hálfan mánuð í ferðinni, en undir eins og heim
kemur, er Daði sendur aftur í kaupferð um sömu slóðir.
Þar næst fer Daði með biskupi fyrst á Alþing og síðan í
yfirreið vestan og sunnan Hvítár, sjö vikna ferð. í þessari
ferð ritar Daði nafn sitt fyrsta sinn Davið Halldórsson, og
þó ekki allt af. Það er ekki fyr en tveim árum síðar, að
hann fer að rita það svo að staðaldri. Helzt er að sjá sem
það hafi verið að vilja biskups, honum ef til vill þótt óljúf
minning Daða-nafnsins úr sögu forföður síns, Jóns Arasonar.
Að minnsta kosti hættir Daði því gersamlega eftir vin-
slit þeirra.
Næsta vor, 1659, ríða báðir Hrunabræður með biskupi
suður Hvalfjörð og skömmu síðar á Alþing. Árni Halldórs-
son er þá orðinn aðstoðarprestur föður síns í Hruna, vígð-
ur þangað fyrir jól 1657, skömmu eftir að hann kom frá
háskólanum í Kaupmannahöfn. Á Alþingi stendur Daði fyrir
fjárgreiðslum biskups. Daða er afhent »dalagjaldið« í Skál-
holti, 163 ríkisdalir. »Summa útilátið rd[al]a 79 . . . heim
aftur komu rd[al]ir 84 . . . stendur þá reikningur heima«.
Sama sumar fer biskup í yfirreið norður í Steingrímsfjörð
og með honum sonur hans og Daði og margir fleiri, snögg
hálfsmánaðarför. Þá er flýtt sér að Qrund í Skorradal og
dvalizt þar í tjaldstað meðan nýhlöðnu húsatóftirnar eru
mældar innan og utan.
Snemma í maí vorið eftir, 1660, fer biskup að vanda
í Borgarfjörð og síðast um Grund, ritar í bréfi 11. mai:
». . . þar ég fyrir berst með guðs hjálp í dag héðan frá
Vatnsenda heimleiðis aftur í veg að víkja«. í för með hon-
um eru sonur hans, Daði Halldórsson og Sigurður Torfa-
son, sem þá er kirkjuprestur í Skálholti. Þegar biskup ríður
á þing það sumar, er Halldór sonur hans í för með hon-
um, en Daða getur hvergi. Hann hefur að líkindum orðið
eftir í Skálholti eða dvalizt nokkurn tíma í Hruna, áður en
hann leggur upp í langferð sína um sumarið. Það er 7.
yfirreið biskups utn Austfirði, sem þeir Hrunabræður eiga
nú að taka þátt í, Daði í fyrsta sinn. Auk þeirra fylgja
biskupi m. a.: Halldór sonur hans, Oddur Eyjólfsson, síðar