Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 163
Skírnir]
Úlfljótur.
157
hárfagra (Heiniskr. bls. 57). Þegar konungur missti Snæfríði
Svasadóttur, þá virðist hann, eftir sögunni að dæma, hafa
orðið örvita af sorg. En Þorleifur spaki er sagður hafa
komið vitinu fyrir hann. Þetta ætti að hafa verið löngu
fyrir 900. Þessi Þorleifur spaki gæti því vel verið sá Þor-
leifur spaki, sem kom við sögu Hálfdanar svarta. Næst
kemur Þorleifur spaki við sögu, þegar Úlfljótur er í Nor-
egi milli 920 og 930 að undirhúa íslenzku Iagasetninguna.
Segja heimildir vorar, að móðurbróðir (»frændi«, segir Mela-
bók) Úlfljóts, Þorleifur spaki Hörða-Kárason, hafi lagt Úlf-
ljóti ráð um lagasmíðina. Ef það væri rétt, að þessi Þor-
leifur spaki hafi verið móðurbróðir Úlfljóts, þá hefði hann
hlotið að vera um eða yfir hundrað ára gamall. Nær það
því engri átt, að þessi Þorleifur spaki hafi verið Þorleifur
Hörða-Kárason. Þessi sami Þorleifur, sem undirbjó íslenzku
lagasetninguna með Úlfljóti, kemur við sögu Hákonar kon-
ungs Aðalsteinsfóstra, því að sagt er, að Hákon konungur
hafi sett Gulaþingslög »með ráði« Þorleifs spaka (Heimskr.
bls. 76). Þetta hlýtur að hafa verið all-löngu síðar en laga-
smíð þeirra Úlfljóts. Hins vegar er þetta hvorttveggja sami
maður. Verður af þessu enn sýnna, að Þorleifur þessi spaki
getur ekki verið Þorleifur Hörða-Kárason. En vel gæti hann
verið sonarsonur Hörða-Kára. Og hefði þeir Úlfljótur þá
verið systkinasynir. Og er þá orðið »frændi« í Melabók rétt.
Tólfunum kastar þó um tímaskekkjur, þegar Snorri
lætur Þorleif Hörða-Kárason hinn spaka vera fyrir svörum
af hendi bænda skömmu fyrir árið 1000, þegar Ólafur kon-
ungur Tryggvason er að þröngva þeim til kristinnar trúar.
Hér er vitanlega nýr Þorleifur spaki á sveimi, og hefur sá
maður, hvort sem hann hefur heitið því nafni eða öðru,
vafalaust verið af ætt Hörða-Kára og verið fyrir þeim
frændum um vitsmuni. Gæti hann vel hafa verið sonar-
eða dóttursonur þess Þorleifs spaka, sem kemur við sögu
Úlfljóts og Hákonar Aðalsteinsfóstra. Þorleifs-nafnið virðist
hafa gengið í ætt Hörða-Kára og kenningarnafnið »spaki«
hefur sennilega fylgt nafninu.
Hörða-Kári sjálfur var hinn ættstærsti maður og hið