Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 196
190 Um Vilhjálm annan. [Skírnir
og varð sú fæð loks að beisku hatri, sem hann endurgalt
i ríkum mæli.
Foreldrar hans voru Friðrik konungsefni og Victoría,.
dóttir Victoríu Englandsdrottningar. Victoría hin yngri var
glæsileg kona, fríð og fljótgáfuð, en um leið talsvert hé-
gómleg og metnaðargjörn úr hófi fram. Hún hafði verið
gefin bónda sínum 17 vetra gömul og tókust brátt með
þeim hinar mestu ástir, sem enginn skuggi féll á til ævi-
loka. En að öðru leyti átti hún fremur hverfulli hamingju
að fagna á Prússlandi. Hún gat aldrei orðið prússnesk, hafði
ýmugust á prússneskum hugsunarhætti og prússneskum sið-
um, en unni ættlandi sinu mjög og taldi England miklu
veglegra ríki en Prússland, enda leit hún á flest mál frá
ensku sjónarmiði. Þess var því ekki að vænta, að sam-
komulagið yrði gott á milli hennar og Bismarcks, enda
kunni hún lítt eða hirti lítt um að dylja tilfinningar sínar.
Hún gat ekki þolað ofureflismanninn, hafði óbeit á mörgu
í fari hans, en engan skilning á stjórnlist hans og yfirburð-
um. Þau Bismarck áttust því margt illt við bak við tjöldin,.
því að ekki var það hans lund, að láta hlut sinn, þó að
ung og fögur konungsdóttir ætti í hlut. Ósamlyndi þeirra
er skiljanlegt. En ræktarleysi hennar við elzta son sinn var
ónáttúrlegt og verður sá blettur aldrei af henni máður.
Hún gat ekki fyrirgefið honum, að hún hafði fætt hann
fatlaðan, og tók yngri börn sín langt fram yfir hann. Hún
var miklu viljasterkari heldur en maður hennar, sem var
gæfur maður, þótt hann raunar hefði fengið sinn erfðahlut
af sjálfsþótta Hohenzollernættarinnar, og eignuðu kunnugir
menn það hennar áhrifum, að Vilhjálmur átti litlu meira
ástríki að fagna hjá föður sínum en henni. Þá er Vilhjálm-
ur hafði náð nokkrum þroska, versnaði samkomulagið um
allan helming. Hann gerði foreldrum sínum allt það á móti,.
sem hann kunni. Ást móður hans til ættlands síns og hat-
ur hennar á Bismarck var alþekkt, — Vilhjálmur lét ekkert
tækifæri ónotað til þess að sýna óvildarhug sinn til Breta
og lýsa aðdáun sinni á Bismarck. Foreldrar hans létu lík-
lega til frjálslyndra manna og var jafnvel talið sennilegt,.