Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 59
Skírnir] Daði Halldórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir. 53
að heimilisböl sitt væri stærra en hann gæti grátið það«.
Þessum orðum biskups fylgir sá þungi að meiri, að þau
voru upphaflega sögð, þegar konunginum við Níl var borin
sú fregn, að dóttur hans hefði verið varpað fyrir krókódílana.
19. febrúar lét biskup þá síra Þórð Þorleifsson og Árna
Halldórsson kirkjuprest sinn fara til Hruna með svofelldan
»seðil«; ekki undirskrifaðan af honum sjálfum, heldur af
þrem fyrnefndum prestum:
»Með því svo er tilfallið sem fallið er, hvað gað náði og for-
betri, og Ragnheiður Brynjólfsdóttir hefur lýst Daða Halldórsson föð-
ur að því barni, sem hún ól í Bræðratungu nú 15. februarii 1662, þá
beiðist og óskast af S[íra] Þórði Þorleifssyni og S[íra] Árna Hall-
dórssyni 1 að gangast fyrir enda um, hverju Daði Halldórsson þar
til svarar, hvort hann meðgengur faðerni þessa barns eður ekki, og
sendist aftur skjallegt vottorð og handskriftað. 2 Ef hann gengur
ámóti, þá er óskað, að þ[að] sé tekið upp vottað og handskriftað.
Item hvort hann veit þar öðrum til að dreifa. 3 Sé hann ekki ná-
lægur, þá er óskað að S[íra] Halldór Daðason útvegi hans skýrlegt
andsvar og meðkenning krókalaust og vafalaust í allan máta og
sendi hana sem fyrst má Helgu Magnúsdóttur til handa eður S[íra]
Þórði Þorleifssyni. ■ 4 Veiti hann viðgöngu þessu barni, þá tilsegist
liann því niður að koma i ærlegt uppfóstur og láta það sem allra
fyrst sækja til Bræðratungu. Skálholti 1662, 19. februarii. Til vitnis*
. . . [Nöfnin].
Sama dag undirskrifar Daði vottfesta játning sína, sem
er að finna í vottfestu afriti í Bréfabókunum daginn eftir,
20. febr.:
»Guð sé mér syndugum liknsamur, hvar með játandi og með-
kennandi fyrir guði og mönnum mig sannan og réttan föður vera
að þvi barni, sem Ragnheiður Brynjólfsdóttir ól i Bræðratungu þann
15. februarii 1662 og hennar lýsing um þess faðerni rétt sagða og
vafalausa mér á hendur. í annan máta hafa minir elsku foreldrar
lofað þetta barn sem fljótast að sækja láta og uppfóstra ærlega og
vel sem framast verður. Og er þetta min hrein og einföld meðkenn-
ing og svar uppá handskriftaðan seðil, sem S[ira] Þórður Þorleifsson
og S[íra] Árni Halldórsson mér sýndu, svo vel sem á þeirra sjálfra
spurningu og eftirleitni um sama efni. Jesús Christur krossfesti huggi
þá og viðrétti, sem ég hef á móti brotið, en hjálpi mér eftir sinni
velþóknun-.
Lífið kallar að. Biskup verður að halda áfram að gegna