Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 114
io8
Múlinn á milli Runukvislar og Hraunþúfugils er meö
grasivaxinni hlið að vestanverðu, heitir hún Hellishlíð.
Eins og áður er sagt, segir M. J. að Hellishlíð sé vestan
við Klaustur, en svo á bls. 182 segir hann, að „réttara
mun vera, að Hellishlið sé austan við Runukvísl, enda er
hellir þar út og upp í brúninni, sem nefnist Bjarta-bað-
stofa.“ Þar með er M. J. búinn að viðurkenna, að hann
veit auðsjáanlega ekkert um, hvað sé kölluð Hellishlíð.
Hann hefur aðeins heyrt þetta örnefni nefnt, í sambandi
við Klaustur. Þetta er ágizkun hans, og hvorutveggja
skakkt. Eins og eg sagði áðan, er Hellishlíð vestan í Hraun-
þúfumúlaendanum, meðfram Hraunþúfuánni, er hún renn-
ur norður úr gilinu austur í Runukvísl. Einnig er það
rangt, að hellir sá, sem er í Runubrúninni, móti Klaustr-
um, heiti Bjarta-baðstofa; hellirinn heitir Háabaðstofa, og
er það auðsjáanlega misgáningur, sem stafar af ókunnug-
leika heimildarmanna M. J., og er þar ruglað saman nöfn-
um. Bjarta-baðstofa heitir liellir, sem er í klettaborg rétt
utan við Hellishlíðina.
í Háubaðstofu lágu gangnamenn fyrrum við smala-
mennsku, áður en leitarmannakofi var byggður á Klaustr-
um. — — — Grjóthóll sá, sem M. J. kallar Hraunþúfu,
stendur norðarlega á múlanum, og norðvestur af þeim
hól við Hraunþúfugilið er klettasnös sú, sem hann kallar
Hraunþúfustapa. Þarna er áreiðanlega misskilningur. Kletta-
snösin er Hraunþúfan, og hefur það alltaf verið talið svo,
af kunnugum mönnum. Fremst á höfðanum er grasivaxin
þúfa, og segir svo í munnmælasögum, að þar hafi ábótinn
frá klaustrinu fólgið fjársjóð, og hafi hann látið svo um
mælt, að þann, sem reyndi að ná í silfrið, skyldi $lys henda.
Er það áreiðanlegt, að klettasnös sú, sem M. J. kallar Hraun-
þúfustapa, er Hraur.þúfan, en ekki hóllinn, eins og hann
telur; þar er til stuðnings umsögn margra kunnugra manna,
svo sem Hannesar Bjarnasonar, móðurbróður Hjálmars
Þorlákssonar í Fremri-Villingadal í Eyjafirði. Hannes var
manna kunnugastur á þessum stöðvum, og var lengst af æfi
sinnar í Vesturdal; ungur var hann á Þorljótsstöðum, og
liefur þá heyrt eldri menn segja frá örnefnum. Hannes var