Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 215
209
búandmenn (fjölskyldur), sem amtmaÖur hafSi til-
kynnt, aÖ skráÖ hafi sig til Grænlandsfarar, en þess
getið, aÖ konungur hafi úrskurÖað, aÖ þaÖ verði
ekki fyr en i aprílmánuuÖi næsta ár (I / 31) > 12
íslenzkar fjölskyldur verÖi fluttar til Grænlands, og
að helmingur þeirra (6) skuli setjast aÖ viÖ nýlend-
una i Godthaab, eÖa þar umhverfis, en hinar sex
viS nýlenduna Nepesene, og verÖi nauðsynleg bygg-
ingarefni handa þessu fólki send meÖ skipi frá Dan-
•nörku til Grænlands á þessu ári (1730), en þaÖ
veröi aÖ vera tilbúið á ákveÖinni höfn á íslandi
næsta vor, með nauðsynlega gripi og fóður handa
þeim, einnig matvæli og fatnað, er fást kunni hér
a landi, og er stiptamtmanni falið að leggja fyrir
anitmanninn, landfógetann og einn sýslumann (Sig-
nrð SigurÖsson eldra), að velja til fararinnar þær
12 fjölskyldur, er mesta löngun hafi til vistaskipta
aí þeim, er hafi skráð sig, og þeir telji hentugastar.
Gert er ráÖ fyrir í bréfinu, að fé verði til taks hér
i landi til að greiða eptir réttum reikningi fyrir nauÖ-
synjar handa þessum 12 fjölskyldum, svo að þær
nægi þeim eitt eða hálft annað ár. Ekkert er um
það getiÖ í bréfinu, hvað hverri fjölskyldu sé ætlað
t'l lífsframfæris, eÖa hversu marga gripi eigi að
kaupa handa henni, allt óákveöiö og lagt i vald þess-
arar 3 manna nefndar, hvaÖ hún telji bráðnauðsyn-
iegt. Er auðsætt, að stjórnin hefur nú mjög kippt
að sér hendinni og vill leggja i sem allra minnstan
kostnað fyrir þessa nýju íslenzku landnema, enda
mun þessi apturkippur hafa haft þau áhrif, að þeir,
senr fúsir voru til ferðarinnar fyrra árið, vildu nú
hvergi fara og gengu hópum saman úr skaptinu, er
læir sáu, hversu hin glæsilegu loforð urðu endaslepp.
Var nú enn farið að leita hófanna hjá hinu skrá-
setta fólki, hvort það vildi enn gefa sig til farar-
Blanda V. 14