Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 129
123
varnað sinn vestur a'Ö Laugardal. Voru í henni 30
hestar og á einum sviptikistur (kúffort) með pen-
mga hennar, smíÖa'Ö silfur og dýrgripi; var þyngst
á honum og hann sterkastur. LögÖu lestamenn Jiess-
lr á MiÖvörðuheiði, en á brast moldviðriskafald með
gaddhörku, en er þeir komu þar Vatnsdalir heita á
heiðinni varð við ekkert rá'Öið, og þar sleit hest þann
írá lestinni, er sviptikisturnar bar, og sást aldrei síð-
an eptir af honum, eða neinu því, á honurn var.
•Trúðu því sumir, að á brott hefði hann heillaður
verið þar í gljúfur nokkur, og þóttust vita, að ei
mundi sjálfrátt. — Halldóra fór litlu síðar vestur
að Suðureyri, og Þorvaldur með henni. Beið hún
þar um vorið, meðan Laugardalur var betur hýstur.
Vrildi það þá enn til, að hún bar út skart sitt og bezta
klæðnað til þess að viðra hann, en þegar rak á hvirf-
ilbyl svo mikinn, að öllum klæðnaðinum þyrlaði í lopt
UPP og kastaði á sjó út; þótti mörgum illsviti, og
ætluðu að svo mundi til skara skríða um fé Hall-
dóru, og fundu það til, að illa mundi margt fengið.
En eptir að Halldóra hafði búið um hrið í Laugar-
<ial tók hún mjög að drekka, og eyddist þá fé henn-
ar með öllu, og svo kom, að Þorvaldur fór örsnauð-
Ur frá henni til sona sinna á Barðaströnd. Og er hún
hafði eytt búinu í Laugardal og selt allar jarðir sín-
ar1), fór hún þar í hjáleigu Litla Laugardal til Ást-
ríðar fósturdóttur sinnar, er gipt var manni þeim, er
Þórður hét2); áttu þau fjölda barna og bjuggu við
1) Hún seldi hálfan Stóra Laugardal, 18 hndr., Þóri
Pálssvni, 18. ágúst 1778 fyrir 180 rd. Mun hún þá hafa
flutzt að Litla Laugardal, og þar bjó hún til I79L eit síð-
ar í húsmennsku þar og á Rima, en síðast í Hálfdanar-
húsum, og ]>ar hefur hún andazt, en ekki i Litla Laugardal.
2) Hann var Brynjólfsson, en Astríður kona hans Odds-