Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 195
i8g
kinari fer vel fjárniennskan, svo fæstir jafnast á við hanti
Sigríður er hans kona kná, þó karlmönnunum þyki hún smá.
Ingibjörg þeirra afkvæmi, eitthvað verður með tiðinni.
Jóhann verður að vera nteð, þó varla sé hann stærri en peð.
Þorsteinn krækir í þorskana, þeir missa líka öndina.
Arni minn þumbast þarna við, þarfur lengi við kvenfólkið.
Steinunn er mesta meinlaust skinn, meir en natin við
tjósverkin.
er hún Anna eitthvert gull, af allra handa gæðum full.
Naerri því minnkun að því er, að hún er síðust nefnd af mér.
Þcss óska ég, að þetta fólk, þrjóti aldrei skyr né mjólk.
Aldrei kornmat og aldrei spað, aldrei mykju né sauðatað.
Ug ekkert það sem þarf í bú, þá er búið, ég hætti nú.
Skýringar
yfir fólkið, sem nefnt er í þulunni.
hyrsta manneskjan, sem nefnd er í Laufásþulunni, er frú
Jóhanna, föðursystir mín, dóttir Gunnlaugs Briem sýslu-
manns í Eyjafirði og konu hans Valgerðar Árnadóttur prests
Sigurðssonar að Holti undir Eyjafjöllum. Hún var þá ekkja
sera Gunnars Gunnarssonar í Laufási. (Síðar átti hún séra
I5orstein Pálsson á Hálsi 5 Fnjóskadal). Öll börn þeirra
hjóna, séra Gunnars og frú Jóhönnu, eru nefnd í þulunni
°S voru þau þessi:
I. Tryggvi Gunnarsson, kaupfélagsstjóri, síðar banka-
stjóri í mörg ár. Giptur Halldóru Þorsteinsdóttur stjúp-
systur sinni. F. 18. okt. 1835. D. 21. okt. 1917-
2- Katrín Kristjana, er átti Pétur Havsteen amtmann.
D. 1927, rúmlega 90 ára.
3- Gunnar, prestur að Svalbarði. Dó ungur. Giptur Val-
Kerði Þorsteinsdóttur, stjúpsystur sinni.
4- Eggert, bóndi á Espihóli. Giptur Elínu Magnúsdóttur
^lsen á Þingeyrum.
S. Geir Finnur, stundaði bæði verzlun og búskap, og fór
síðan til Ameríku. Giptur Valgerði dóttur séra Jóns Krist-
jánssonar að Breiðabólsstað í Vesturhópi.
Séra Björn, sonur séra Halldórs í Sauðanesi, vígðist að-
stoðarprestur til séra Gunnars í Laufási haustið 1852, og