Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 206
200
sem býr á sínu eigin góssi Vetleifsholti, fyrrum constituer-
aður vicedómari föður síns Sr. Hákonar Hannessonar, sem
þá var sýslumaður í Rangárþingi.
SigurSur Jónsson búandi í Hól í Holtum, eigingiptur,
30 ára, röskur til vinnu, á 5 börn. Hann viljugur til far-
arinnar, konan óviljug og biður hann, að henni og börnum
þeirra sjáist farborði hér á landi. — Allir áðurskrifaðir,
eru vanir til sjós og sveita.
Ógiptar verkastúlkur, GuSrún AuSunardóttir á Sauðs-
velli undir Eyjafjöllum, 20 ára, Hclga Jónsdóttir á Klas-
barða, 35 ára.
Alls 38 manns.
Ur þessari sýslu eru hlutfallslega langflestir bændur,
er bjóða sig fram til fararinnar, alls 12. Einkennilegt, að
Páll í Vetleifsholti skyldi vera einn þeirra. Hann hefur þá
líklega verið ekkjumaður. Björgólfur á Miðskála var og
skólagenginn. Annars voru það ekki helztu og beztu bænd-
urnir, sem létu „forskrifa“ sig til Grænlands.
í Arnessýslu létu þessir skrá sig:
Gisli Þorsteinsson bóndi á Öxnalæk, 27 ára. Kona hans
GuSrún Jónsdóttir, 58 ára, og stjúpdóttir hans Þorbjörg
19 ára og Ingibjörg 17 ára. Þessi fjölskylda áskilur, aö
konungur láti flytja þau aptur til íslands, ef þau komast
ekki eins vel af í Grænlandi sem hér.
Gunnar Jónsson, vinnumaður í Arnarbæli 32 ára, með til-
vonandi konu sinni, Þóru Jónsdóttur, 26 ára. Setja sama
skilyrði, sem Gísli á Öxnalæk.
Gabrícl ÞórSarson húsmaður í Auðsholti (í Ölfusi), 39
ára, og kona hans Gu&rún Þorstcinsdóttir, 28 ára, með 2
börn, dreng og stúlku. Með sama skilyrði sem hin hér a
undan.
ari Árna Magnússonar, drukknaði í Vetleifsholtsvatni við
veiðiskap 1742, fimmtugur. Hákon faðir hans vildi ólmur
fara til Grænlands með syni sínum, (segir J. Ól. Grv.), en
fékk ekki. Var þá (1729) 67 ára gamall, dó árið eptir-
Páll var nafnkunnastur þeirra manna, er létu slcrá sig Þ*
Grænlandsfararinnar.