Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 168
séra Pétri Björnssyni á Tjörn á Vatnsnesi, og hefur
svo frá sagt, að •aldrei sæi hann eins mikinn mann
vexti og það svo mjög, að hann bæri langt af öll-
um þeim, er hann séð hefði fyr og síðar alla æfi
sína, og var Björn þá gamall og hniginn mjög.1)
Þá var Björn 16 vetra, aðrir segja 18 vetra, er hann
var sendur til vers undir Jökul. Kom hann á fund
Lopts og falaði skiprúm að honum, og bauð honum
til sauðarfall. Lopti sýndist maðurinn efnilegur og
fallið feitt; lézt ætla, að verða mætti manntak í Birni,
og hét að reyna hann, er hann hefði numið árarlag
við háseta sína, en ella ræki hann Björn á burt, því
að sagt er, að það væri siður Lopts, ef honum þótti
sá ónýtur, er til hans réðist, að varpa honum í sjó-
inn beint í því, hann reri úr vörum, og segja þá
um leið: „Þú ert ónýtur.“ En þótt Loptur tæki
ekki betur máli Björns en annara, ef hann reyndist
litt, réðst hann þó í skiprúmið. Nam hann skjótt
árarlag. Eptir það reyndi Björn við háseta Lopts
og sneri á þá alla, nema einn, er Þórður hét, og
kallaður sterki Þórður; þar vann hvorugur á annan,
og það þó Þórður væri fullþroskaður og kallaður
mestur ræðari undir Jökli, og þótt viðar væri leitað.
Þá kvað Loptur:
Þá voru lagðar lúkur að
á laxatóptum,
þá stóri Björn og sterki Þórður
stóðu í þóptum.
x) Hann hefur verið fæddur um 1706, bjó á Litlu Ás-
geirsá í Viðidal og siðar í Helguhvammi á Vatnsnesi; do
á Kolugili í Ví'ðidal 23. des. 1799, nær hálftíræður að aldri.
Var af hinni svonefndu Rauðbrotaætt i Miðfirði, og segir
Tómas stúdent Tómasson (f i8n), er um þá ætt hefur
ritað, að Björn hafi verið að eins S merkur að þyngd, er
hann fæddist. (H. Þ.).