Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 5

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 5
1 ÁRNI TRYGGVASON Hinn 25. september s.l. barst mér sú fregn að vinur minn Árni Tryggvason, fyrrverandi hæsta- réttardómari og sendiherra, hefði andast á sjúkrahúsi f Svíþjóð þann dag. Árni var fæddur í Reykjavík 2. ágúst 1911, sonur hjónanna Tryggva trésmiðs Árnasonar og Arndísar Jónsdóttur. Árni var settur til mennta en hann var námsmaður góður. Stúdentsprófi lauk hann 1930 og lögfræðiprófi 1936. Sama ár varð hann fulltrúi hjá lögmanninum f Reykja- vík. Hann var skipaður borgardómari 1944 og gegndi því starfi til 1. maí 1945, er hann var skipaður hæstaréttardómari. Lausn úr embætti hæstaréttardómara fékk hann 24. mars 1964. Gekk Árni þá f utanríkisþjónustuna og var sendiherra, fyrst með aðsetri í Stokkhólmi, síð- an í Bonn og Osló. Árni naut mikillar virðingar í störfum sínum og var sæmd- ur fjölda heiðursmerkja bæði innlendra og erlendra. Starfsferli Árna má skipta í tvo nokkuð skarpt aðskilda þætti, dómarastörf og sendimannsstörf. Hann hóf dómarastörf strax eftir lögfræðipróf og vann að þeim allan fyrri hluta starfsævi sinnar, fyrst sem héraðsdómari og síðan sem hæstaréttardómari. Á þeim árum ritaði hann talsvert um lögfræðileg efni sem birtist í ýmsum tímaritum. Þá má ekki gleyma formálabókinni sem hann samdi með Bjarna Bjarnasyni og var handbók margra lögfræðinga um langt skeið. Árni var góður dómari, skarpur og rökviss og að flestra mati lágu dóm- arastörf mjög vel fyrir honum. Hann var líka, sem eðlilegt var, í miklu áliti sem dómari. Á þessum tíma tók Árni mikinn þátt í samstarfi innlendra og erlendra lögfræðinga, sérstaklega starfi íslandsdeildar norrænna lögfræðinga. Þegar Árni var kominn á sextugsaldur töldu flestir að hann hefði algjörlega markað sér ævistarfssvið. Margt fer öðruvísi en samferðamennirnir ætla. Vakti það undrun margra er það fréttist á vordögum 1964 að Árni hefði sótt um lausn frá hæstaréttardómaraembættinu og hygðist ganga f utanríkisþjónustuna. Töldu sumir glapræði að fara úr einu virðulegasta embætti þjóðarinnar, þar sem hann hafði staðið sig með ágætum, og ætla að hasla sér nýjan völl f hinum flóknu utanríkismálum. Aðrir töldu að með þessu ryddi hann til hliðar mönnum sem töldu sig sjálfkjörna til frama f þessari embættisgrein vegna starfsaldurs og þjálfunar. í utanríkisþjónustunni gegndi Árni þýðingarmiklum sendiherraembættum. Þeim störfum gegndi hann af samviskusemi, skynsemi og með reisn. Hins vegar hvarf hann af sviði íslenskrar lögfræði og var þar að honum mikil eftirsjá. 211
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.