Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 38

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 38
Viðtaka trúnaðarupplýsinga er refsilaus (concursus necessarius), nema viðtakandi uppfylli hlutdeildarskilyrði 22. gr. hgl. (hvatning, fortölur o.fl.). Ekki mun ákvæðið heldur taka til þess, er viðtakandi lætur vitneskjuna berast áfram til fleiri, nema hlutdeildarábyrgð eigi við (aðstoð við aðalfremjanda brots). Að því leyti sem þagnarskyldan er takmörkuð í lögum, kemur ekki til refsiábyrgðar skv. 230. gr. hgl., nema ef vera kynni fyrir pútatívt brot (tilraun). Mikilvæg eru ákvæðin um upplýsingaskyldu (vitna- skylda, skylda til að kæra fyrirhugaða glæpi). Aðrar takmörkunar- reglur eru að verulegu leyti óskráðar, t.d. um hagsmunagæslu. Al- mennar hlutrænar refsileysisástæður geta leitt til sýknu, sjá nánar bls. 240-241. Samþykki skiptir hér mestu máli, enda sitja einkahags- munir í fyrirrúmi gagnstætt almannahagsmunum í 136. gr. hgl. Skylda til að skýra frá fyrirhuguðum afbrotum eða yfirvofandi óförum bygg- ist á neyðarréttarsjónarmiðum. Neyðarvörn kemur til álita, ef verj- andi neyðist til að birta trúnaðarupplýsingar til þess að verjast ræt- inni árás í fjölmiðlum af hendi þess, er nýtur leyndar um einkamálefni sín, t.d. fyrrverandi skjólstæðings. Ásetningur er saknæmisskilyrði skv. 230. gr., sbr. 18. gr. hgl. Ásetn- ingur lýtur bæði að verknaði og eðli upplýsinga. Vitneskjan þarf að komast til vitundar óviðkomandi aðila fyrir tilstilli hins þagnarskylda eða með vitund hans og vilja. Glatist upplýsingar fyrir mistök eða refsivert brot annars manns og berist þannig til vitundar óviðkom- andi aðila, er ásetningsskilyrðið ekki uppfyllt. Villa í þessum efnum getur leitt til sýknu (staðreyndavilla, óeiginleg lögvilla). Gáleysi næg- ir ekki til refsiábyrgðar. Brot gegn 230. gr. hgl. sæta opinberri ákæru eftir kröfu þess, sem misgert er við, sbr. 2. tl. a. 242. gr. hgl. Brot varða einungis sektum eða varðhaldi. Gæsluvarðhaldi verður því ekki við komið, sbr. 3. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 og 69. gr. oml. RITASKRÁ Alþingistiðijjdi, A-dcild 1948, bls. 68 o.áfr. Andenæs, Johs. Straffeprosessen i ftírste instans. Oslo 1962. — Norsli straffeprosess 1. Oslo 1984. Árni Tryggvason. Þagnarskylda málflutningsmanna og lækna fyrir dómi um einkamál manna. Timarit lögfræðinga 1952, bls. 51-64. Einar Arnórsson. Meðferð opinberra mála. Timarit lögfrccðinga 1951, bls. 77-172. — Athugasemdir 1 sérprentun 1. nr. 27/1951, um meðferð opinberra mála. Rvík 1951. Gammeltoft-Hansen, Hans og Koktvedgaard, Mogens. Lccrebog i Strafferetspleje. Khöfn 1978. Greinargerð frá stjórn Lögmannafélags íslands. Starf lögmanna í hlutverki verjenda og réttargæzlumanna. Morgunblaðið 8. nóvember 1977. 244
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.