Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 21

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 21
ir gang varnarínnar og málsins í heild svo og fyrir andlega líðan söku- nauts. Það er því áríðandi, að trúnaður og traust haldist. Verjandi á ekki að neyða vörn sinni upp á neinn. Sökunautur getur losað sig við ráðinn talsmann, en hann getur ekki beinlínis sagt skipuðum verjanda sínum upp. En ef afstaða sökunauts er slík, getur verið eðlilegt, að verjandi segi starfanum lausum, svo að skipa megi nýjan. Það er í andstöðu við hagsmuni varnarinnar að halda henni áfram í sama far- vegi, eftir að trúnaðarsambandið er brostið. Á hinn bóginn getur leitt óþægindi og tafir af verjandaskiptum. Þess vegna verður dómari að vega það vandléga og rneta, hvort hann samþykkir slíka breytingu, sbr. Hrd. XXXIX, bls. 309. I máli þessu urðu dómstólar ekki við kröfu verjanda og varnaraðila um að leysa verjandann frá starfa sínum.19) Hvað sem um þennan dóm má segja, hlýtur almennt að þurfa mjög veigamiklar ástæður til þess, að dómari synji rökstuddri ósk af þessu tagi. Engum er greiði gerður með vörn, ef verulega skortir á gott trún- aðarsamband og viðunandi samkomulag um rekstur málsins. 2) Mörk ákvörðunarheimilda sakbornings og verjanda. Eitt af meg- inverkefnum verjanda er að gefa skjólstæðingi sínum upplýsingar um stöðu mála og skýra fyrir honum réttarstöðuna á hinum ýmsu stigum málsins, svo og að gefa honum ráðleggingar um úrræði og viðbrögð. Það leiðir oftast af þekkingu verjanda og reynslu, að sökunautur, sem ber til hans óskorað traust, fer að ráðum hans. Um sum atriði ber verj- anda beinlínis að leita eftir afstöðu sökunauts, en um önnur hagar svo til, að það er fremur þáttur í viðhaldi góðs trúnaðarsambands að ræða um þau við sökunaut. Jafnvel þótt trúnaðarsambandjð sé gott, kann af- staða sökunauts að vera önnur en verjanda til einstakra atriða. Telja má það aðahegluna, að verjandi geti annast hagsmunagæslu fyrir skjólstæðing sinn án tillits til óska hans og sjónarmiða, innan þeirra takmarka, sem réttarreglur og góðir lögmannshættir set ja hon- um. 20) Þegar vafi leikur á því, hvernig verjandi átti að hegða sér, er áreiðanlega oftar urn það að ræða, hvort athafnir hans voru í samræmi við góða lögmannshætti, þ.á m. skráðar siðareglur lögmanna, en lög eða aðrar réttarreglur. Ef verjandi telur rétt að fá skýrslu tiltekins vitnis, sem sökunautur vill sleppa, hlýtur ósk verjanda að ráða um það. Andenæs vill gera mun á, eftir því hvort lögskylt er að skipa verjanda eða ekki.21) Á það verður ekki fallist hér. Verjandi þarf ekki heldur að sinna öllum óskum og kröfum skjólstæðings síns, t.d. um kvaðningu 19) Sjá einnig Jónatan Þórraundsson 1984, 213 og 12. gr. siðareglna lögmanna. 20) Sjá til samanburðar Johs. Andenars 1984, 72. 21) Jolis. Andenæs 1984, 76. 227
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.