Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 48

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 48
fleiri en einum vinnustað. Um það var deilt hvort stefnandi, sem varð fyrir slysi í tengslum við aukavinnu sína í þágu þriðja aðila, eigi lög- bundinn rétt til greiðslu launa í því slysatilfelli úr hendi stefnda, sem var aðalvinnuveitandi hans. Hér er fjallað um eðli og tilgang veikindagreiðslna og hvernig þessar reglur skera sig úr öðrum reglum um bætur vegna sjúkdóma og slysa. Málavextir voru þeir að stefnandi, sem að aðalstarfi vann við pípu- lagnir hjá stefnda, gegndi sem aukastarfi baðvörslu í íþróttahúsi gagn- fræðaskóla nokkurs þrjú kvöld í viku frá kl. 18.00-23.00. Aðfaranótt 17. febrúar 1981 geisaði ofviðri í Reykjavík. Stefnandi var á leið heim til sín að loknu starfi sínu við baðvörslu að kvöldi 16. febrúar 1981 og var að koma að heimili sínu er afar hvöss vindhviða hóf hann á loft og feykti honum spölkorn. Stéfnandi kom harkalega niður og mjaðmar- grindarbrotnaði. Dómkröfur stefnanda voru þær að stefndi yrði dæmdur til greiðslu í slysatilfelli í þrjá mánuði. Stefndi krafðist sýknu af kröfum stefnanda. Til vara krafðist stefndi að kröfur stefnanda yrðu lækkaðar. Stefnandi byggði kröfur sínar á því að er atvik þetta gerðist hafi hann starfað hjá stefnda í meira en 5 ár en það var aðalstarf hans. Hafi hann því áunnið sér rétt til launagreiðslu í slysatilfellum samkvæmt 1. og 2. mgr. 5. gr. laga nr. 19/1979, þ.e. hann skyldi einskis í missa í launum fyrsta mánuðinn og síðan fá greidd dagvinnulaun í tvo mánuði til við- bótar, og miðaðist kröfugerðin við það, enda hafi stefnandi enn verið óvinnufær af völdum slyssins að því tímabili loknu. Stefndi byggði sýknukröfu sína á því að eina ástæðan fyrir ferðum stefnanda umrætt óhappakvöld hafi verið aukavinna hans gegn fullu kaupi í þágu annars vinnuveitanda, og hafi hann verið á heimleið frá þeirri vinnu er hann fauk og slasaðist. Sú grundvallarregla gildi í þessu efni að stefnanda sé rétt að beina kröfum sínum að þeim vinnuveitanda sem hann hafi unnið fyrir umrætt kvöld, þ.e. Reykjavíkurborg. Þessa reglu megi leiða beint af 4. gr. laga nr. 19/1979. Stefnanda sé rétt að beina kröfum sínum að Reykjavíkurborg en ekki að stefnda. Það sé í fyllsta máta óeðlileg niðurstaða að léggja greiðslubyrði á einn atvinnu- veitanda vegna slysa við launuð störf í þágu annars við allt annan at- vinnurekstur. Nokkuð örugglega megi gera ráð fyrir að stefnandi hefði alls ekki verið á ferð um götur borgarinnar í slíku veðri á þessum tíma nema vegna tekjuöflunar sinnar, heldur haldið sig innan dyra eins og aðrir borgarar Reykjavíkur í fárviðri þessu, sem mun vera það mesta í ára- tugi. Eðli málsins samkvæmt nái tryggingar stefnda ekki til vinnu í 254
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.