Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 19

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 19
sjálfur starfandi lögmaður, verður hann skv. 85. gr. oml. hvorki skip- aður til að verja sjálfan sig né samsökunauta sína.18) í 2. mgr. 81. gr. oml. er kveðið svo á, að sami verjandi skuli taka að sér vörn fyrir fleiri en einn sakborning í sama máli, ef telja má, að hags- munir þeirra rekist ekki á, sbr. 11. gr. siðareglna lögmanna, 2. mgr. 784. gr. dönsku réttarfarslaganna frá 1916, 4. mgr. 95. gr. norsku réttar- farslaganna nr. 25/1981 (Lov om rettergangsmáten i straffesaker). Hins vegar er lagt bann við slíkri tilhögun í þýskum réttarfarslögum, sbr. 146. gr. StPO frá 1877 með áorðnum breytingum (Verbot der Mehrfachverteidigung). Ástæðan fyrir banni er sú hætta, sem alltaf getur verið á hagsmunaárekstri, jafnvel án þess að verjandi eða aðrir geri sér grein fyrir því. 1 tilvitnuðum ákvæðum dönsku og norsku rétt- arfarslaganna er sá fyrirvari gerður, að hagsmunir sakborninga rekist ekki á. IV. TRÚNAÐARSAMBAND VERJANDA OG SAKBORNINGS. öll samskipti verjanda og sakbornings mótast af skráðum og óskráð- um réttarreglum um víðtækt trúnaðarsamband, sem talið er afarmik- ilvægt fyrir vörnina og sökunaut sjálfan, ekki síður en trúnaðarsam- band læknis við sjúkling sinn. Siðareglur lögmanna og viðteknar venj- ur varðandi góða lögmannshætti geta falið í sér útfærslu á réttarregl- um eða frekari skyldur og leiðbeiningar en réttarreglurnar hafa að geyma. Meginatriðin í trúnaðarsambandi verjanda og sökunauts er réttur þeirra til að ræða saman í einrúmi, þagnarskylda verjanda og sú skylda hans að virða óskir sökunauts og sjónarmið (með ýmsum takmörkunum þó), m.a. um kröfugerð og sönnun. Verður hér og í V. kafla rætt um þessi réttindi og skyldur sem og takmörk þeirra. 1) Tvíbent eðli verjandastarfans. Það leiðir af hinni tiltölulega sjálf- stæðu stöðu verjanda í réttarkerfinu, að hann hefur víðtækar skyldur bæði gagnvart skj ólstæðingi sínum og dómstólunum og raunar gagn- vart réttarskipuninni í heild. Þessar skyldur er ekki alltaf auðvelt að samræma, svo að oft reynir á lagaleg álitaefni og samviskuspurning- ar, sbr. 1. gr. siðareglna lögmanna. Það er skylda hvers manns að lög- um, sem uppfyllir til þess skilyrði, að taka að sér vörn í opinberum málum, sbr. nánar 2. mgr. 84. gr. oml. og 13. og 18. gr. 1. 61/1942. Mað- ur er þó væntanlega ekki skyldur til þess, nema hann fái til þess skipun 18) Sjá hins vegar Johs. Andenæs 1962, 69. í hinni nýju útgáfu ritsins (1984) er niðurstaða höfundar breytt vegna breyttra laga og í samræmi við það, sem hér er haldið fram, bls. 71. 225
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.