Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 16

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 16
Verjanda getur ekki borið sama skylda til hlutlægni og ákæruvaldinu, m.a. vegna þess hversu mikið vald lögin veita ríkissaksóknara til áhrifa á gang málsins. I 1. mgr. 86. gr. oml. segir raunar, að verjandi sé háður sömu skyldum og sækjandi, eftir því sem við getur átt, sbr. 79. gr. Sam- kvæmt upphaflegu greinargerðinni með frumvarpi til 1. nr. 27/1951 er ætlast til þess, að verjandi hlutist til um, að atriði, sem eru skjólstæð- ingi hans til hagsbóta, verði í ljós leidd, en gæti þess jafnframt að vinna ekki gegn því, að hið sanna og rétta komi fram.12) Aðrar leiðbeiningar er ekki að finna í lögskýringargögnum. Að sjálfsögðu takmarkar heim- ildarbrestur skv. 94. gr. oml. og þagnarskylda skv. 86. gr. 1. mgr. i.f. oml. skyldur verjanda í þessu efni. Hugsanlegt er, að eðli sakarefnis geti skipt máli um túlkunina, þannig að upplýsingaskylda verjanda gagn- vart dómstólum og almenningi sé ríkari, þegar um alvarleg sakarefni er að ræða, t.d. manndráp, nauðgun eða stórfellt fíkniefnamál. Ekki er þó að sjá af umræddum ákvæðum, að þau geri hér mun á eftir eðli sak- arefnis. Hurwitz víkur að því álitaefni, hvort verjanda beri að leggja fram gögn, sem hann hefur aflað, en reynst hafa skjólstæðingi hans í óhag. Telur hann verjanda bæði rétt og skylt að láta það kyrrt liggja, einkum vegna trúnaðarsambandsins við sökunaut og þeirrar nauðsynj- ar að geta aflað gagna án þess að vera viss um það fyrirfram, að þau muni reynast sakborningi til hagsbóta. Sumir telja þessa niðurstöðu óeðlilega, hafi verjandi fengið gögnin í skjóli stöðu sinnar.13) Vitan- lega getur verið erfitt að draga markalínuna, og á þá verjandi það við samvisku sína og siðareglur lögmanna, hvað gera skuli, sbr. 1. gr. siða- reglnanna. 4) Hlutverki verjanda má í hnotskuvn lýsa svo: a) Að vera sakborningi til ráðuneytis á öllum stigum málsins, án tillits til þess hvort formleg skipun eða ráðning hefur átt sér stað. 1 þessu felast ráðleggingar um varnartaktík, kæru, áfrýjun o.fl. b) Að vera sakborningi til aðstoðar innan réttar og utan við gagnaöflun, kröfugerð, málaleitanir ýmiss konar, flutning máls fyrir dómi og við að neyta réttarfarsúrræða, svo sem kæru eða áfrýjunar. c) Að vera staðgengill sakbornings í fjarveru hans.14) d) Að vera eins konar öryggisventill gagnvart ríkisvaldinu með því að tryggja það eða staðfesta, að málarekstur fari rétt og eðlilega fram, og veita þannig dómstólum og ákæruvaldi aðhald og stuðla að því, að al- menningur treysti betur en ella og sætti sig við niðurstöður dómstóla. 12) Alþt. 1948 A, 76. 13) Stephan Hurwitz 1959, 164; Johs. Andenæs 1984, 74-75. 14) Sjá Stephan Hurwitz 1959, 154. 222
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.