Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 35

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 35
samþykki nægir til refsileysis. Einungis sá, sem upplýsingarnar varða beinlínis, er bær að gefa samþykki, þ.e. sökunautur sjálfur. Aðrir, svo sem lögráðamaður, foreldrar, maki eða börn geta yfirleitt ekki gefið slíkt samþykki, jafnvel þótt sökunautur sé geðtruflaður eða lát- inn. Ef upplýsingagjafi (trúnaðarmaður) er annar en sá, sem upplýs- ingarnar varða, t.d. ef kona skýrir lögmanni frá grun sínum um afbrot manns síns, þá er það samþykki konunnar, sem máli skiptir, en ekki eiginmannsins.47) Sökunautur getur ekki leyft, að jafnframt sé ljóstr- að upp leyndarmálum annarra, sem ekki hafa gefið leyfi sitt, t.d. sam- sökunauta.48) Samþykki má hvenær sem er afturkalla, uns frásögn hefur átt sér stað. Ef verjandi fær vitneskju um fyrirhuguð afbrot eða yfirvofandi ó- farir, getur reynt á upplýsinga- eða athafnaskyldu 126. og 169. gr. hgl. Hér er ekki aðeins um brottfall þagnarskyldunnar að ræða, heldur beina athafnaskyldu að viðlagðri refsiábyrgð.49) En jafnvel þótt ekki hvíli á verjanda lögboðin upplýsinga- eða athafnaskylda vegna alvar- legra afbrota, sem fyrirhuguð eða hafin eru, kann honum að vera rétt (og skylt) að skýra væntanlegu fórnarlambi og eftir atvikum lögreglu frá fyrirhuguðum meiri háttar afbrotum, t.d. fjársvikum eða misneyt- ingu, enda dugi umvandanir og aðvaranir ekki (neyðarréttur, hags- munagæsla). Þetta á hins vegar ekki við um óupplýst eldri brot. En verjandi getur aðstoðað sökunaut á ýmsan hátt við að bæta slíkum tjónþolum tjón án þess að gera uppskátt um brotið.50) Verjanda væri rétt að skýra frá vitneskju sinni um ákæru eða dóm yfir saklausum manni. Þagnarskyldunni eru þrengri skorður settar, ef hún rekst á lögboðna upplýsingaskyldu, t.d. vitnaskyldu. 1 94. gr. oml. um heimildarbrest verjanda sem vitnis er um þrenns konar frávik að ræða, auk þess sem málsatvikum og upphafi skyldunnar er markaður þrengri bás en í hinum almennu þagnarskylduákvæðum. Samþykki þess, sem með á, leysir verjanda undan heimildarbresti skv. upphafsákvæði 94. gr., sbr. nánar bls. 288 og 240-241. Fyrirvari um vitneskju almennings er ekki beinlínis nefndur í ákvæðinu, sbr. 1. mgr. 86. gr. oml., en væntanlega verður að skýra það svo, að þagnarskylda verði að víkja fyrir vitnaskyld- unni, þegar svo stendur á. 1 vafatilvikum úrskurðar dómari um vitna- skylduna, sbr. 108. gr. oml. Loks er sá fyrirvari gerður í 2. mgr. 94. gr. 47) Johs. Andenæs 1984, 208; Þórður Eyjólfsson 1961, 73. 48) Sjá nánar Georg Lous 1960, 50-51. 49) Sjá nánar Jónatan Þórmundsson 1975, 308-311. 50) Sjá Georg Lous 1960, 51-52. 241
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.