Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 49

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 49
þágu annarra vinnuveitenda. Með hliðsjón af framangreindu sé augljóst að túlka beri 5. gr. laga nr. 19/1979 þröngt í því tilviki, sem hér sé um að tefla, og sé 4. gr. laganna tæmandi þar um. Tilgangur 5. gr. sé að tryggja launþegum rétt til launa í veikinda- og slysatilfellum. Greinin hafi raunar verið túlkuð það rúmt að launþegi njóti réttar samkvæmt henni vegna óhappa í frítíma sínum, svo fremi að eðlileg aðgæsla sé viðhöfð. Þess séu hins vegar ekki dæmi að greinin sé túlkuð þannig að hún tryggi launþega rétt úr hendi annars vinnuveitanda en þess, sem unnið er fyrir, þegar vinnuslys ber að höndum. Þetta sé í samræmi við túlkun Vinnuveitendasambands Islands, og hafi ekkert verkalýðsfélag eða sambönd þeirra mótmælt þeirri túlkun. Stefndi kom enn fremur með þá varnarástæðu að sú fullyrðing stefn- anda að hann hafi unnið hjá stefnda í að minnsta kosti 5 ár sé ekki alls kostar rétt. Stefnandi hafi unnið til ársloka 1979 hjá sameignarfélagi sem stefndi átti að hálfu, en það firma hafi hætt störfum 1. janúar 1980 og frá þeim tíma hafi stefnandi starfað hjá stefnda. Mjög sé í efa drég- ið réttmæti réttindaskeytingar í þessu tilfelli. Varakrafa stefnda var á því byggð að þar sem hér sé um að ræða slys við störf í þágu Reykjavíkurborgar sem beri bótaábyrgð sam- kvæmt 4. gr. laga nr. 19/1979 (um vinnuslys) skuli draga allar þær bæt- ur, sem kunna að fást greiddar frá borginni, frá kröfunni á hendur stefnda, ef svo ólíkléga færi að hann yrði talinn bótaskyldur að ein- hverju leyti. í því tilfelli séu þó engin rök til að leggja efnisdóm á mál- ið fyrr en reynt hafi á það hvern rétt stefnandi eigi á hendur Reykja- víkurborg, og væri því sennilega rétt að vísa málinu frá að svo stöddu. 1 niðurstöðum héraðsdóms segir m.a. að hér reyni á túlkun og skýr- ingu 4. og 5. gr. laga nr. 19/1979, um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla, en lagaboð þessi séu svohljóðandi: „4. gr. Allt verkafólk, sem forfallast frá vinnu vegna slysa við vinnuna, á beinni leið til eða frá vinnu, eða vegna atvinnusjúk- dóma, sem orsakast af henni, skal fá greidd laun fyrir dagvinnu í allt að 3 mánuði samkvæmt þeim taxta, sem viðkomandi tók laun eftir, enda sé unnið hjá aðila sem fæst við atvinnurekstur í við- komandi starfsgrein. 5. gr. Allt fastráðið verkafólk, sem ráðið hefur verið hjá sama atvinnurekanda í eitt ár samfellt, skal er það forfallast frá vinnu vegna sjúkdóma eða slysa eigi missa neins í af launum sínum, í hverju sem þau eru greidd, í einn mánuð. 255
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.