Morgunn - 01.06.1970, Blaðsíða 36
30
MORGUNN
ferð í tilraunum til rannsóknar á tilgátunni um sjálfstæða
sálar- eða hugarorku. Þar var auðvelt að koma við fullkomnu
eftirliti og jafnframt mundi mörgum jiykja gaman að láta
prófa sig á þennan hátt. Ekkert var auðveldara en að telja
það saman, hvort hver tilraun bæri réttan árangur eða ekki.
Og vandalaust var að reikna út livert meðaltalið átti að vera,
ef hrein hending réði. Segja mátti því, að þessi aðferð hefði
flest til síns ágætis.
Hin venjulega PK tilraun fór þannig fram: Fyrst var þátt-
takanda skýrt frá því í hverju tilraunin væri fólgin. Væri
hann fús til að reyna þetta, voru honum fengnir tveir ten-
ingar í litlum bikar, og átti hann síðan að kasta þeim úr hon-
um báðum samtímis. Segjum að við hefðum ákveðið að miða
við það, að talan 7 ætti að koma upp, þegar talin væru saman
augun á báðum teningunum. Siðan var þátttakandinn beðinn
að hrista vel bikarinn og hvolfa síðan teningunum úr honum
á borð, sem þakið var mjúku áklæði. Að því búnu var rann-
sakað hvaða tölur komu upp hverju sinni, það sagt í heyranda
hljóði og siðan skráð á blað af þeim, sem tilraunina annaðist.
'l’alan 7 gat komið upp á teningunum með þrennum hætti:
1 + 6, 2 + 5 og 3 + 4. Þessir möguleikar voru skráðir í sér-
staka dálka á þar til gerðu blaði og merkt við þá jafnóðum.
Eftir 12 köst voru 7-tölurnar taldar og skráð hversu oft þær
hefðu komið upp. Ef hending réði eingöngu, átti þessi tala
að koma tvisvar upp að meðaltali í hverjum 12 köstum.
Þessar nýju tilraunir voru i upphafi eins og skemmtilegur
leikur. Við vorum fullir af áhuga og forvitni, sem varð okkur
hvatning til þess að færa út kvíarnar og finna fleiri og fleiri
aðferðir til rannsóknanna. Oft fengum við nýja og nýja menn
í lið með okkur til þess að aðstoða við tilraunirnar og skrá-
setningu þeirra. Nýjar aðferðir voru reyndar. Skrár um árang-
ur þeirra hrúguðust upp. Smátt og smátt, eftir því sem tím-
arnir liðu og æfingin jókst, tókst okkur að leysa eitt af öðru,
þau vandamál, sem komu í Ijós í sambandi við teningakastið,
þannig að nýjum og nýjum öryggisráðstöfunum var bætt við,
til þess að útiloka öll hugsaideg mistök.