Morgunn - 01.06.1970, Blaðsíða 11
MORGUNN
5
Og enn segir hann:
Líf er vaka, gimsteinn gæða,
guði vígt, en eigi niold.
Aldrei sagði sjóli hæða
sálin verði duft sem hold!
Eins og hver einasta efnisögn líkamans er sköpuð úr eínis-
heiminum, þannig hlýtur andi mannsins, vit hans og liugsun,
draumar og þrár, að samsvara einhverjum veruleik, sem einnig
er til í alheiminum. Og þennan veruleika hafa mennirnir nefnt:
andann mikla eða Guð. Þetta hggur í augum uppi, enda hafa
kynslóðirnar trúað þessu staðfestlega, og vitringar fremur en
aðrir. Það er ekki unnt að hugsa sér, að sál mannsins verði
1,1 úr engu fremur en líkaminn. Og þegar vcr höfum gerL
oss það ljóst, að andinn er ekki ómerkari þáttur af veru manns-
ins en efnið, því að án hans væru mennimir ekki miklir fyrir
sér, þá liggur það i lilularins eðli, að sálvísindi eru merkileg-
ustu visindi, og engin vísindi meira áríðandi i veröld, þar sem
háskinn bíður ávallt á næsta leiti, ef rangt er liugsað og at-
hafnir framdar samkvæmt J>ví. Örlög þjóðfélagsins eru fyrst
og fremst komin undir þessum þætti mannsins og að hann sé
vitur og góður. Hitt skiptir minna máli, hvort líkaminn er
sterkur og hraustur, enda þótt þetta sé líka æskilegt.
SálarfrœtSi og guðfrœði.
En með þá forsendu í huga, að andi mannsins sé neisti af
anda Guðs, þess lifandi og skapandi máttar, sem hvarvetna er
að starfi i alheiminum og gefur allri tilveru mið og merking,
J)á sjáum vér að sálvísindin eru reyndar, þegar dýpra er skoð-
að, ekki annað en vísindin um Guð, og þá jafnframt upphaf
allrar annarrar Jrekkingar. Vér erum í leil að J)ví lögmáli, sem
hann hefur sett öllu lífi lil vaxtar og blessunar, og má þá nærri
geta, að sú leit er eins mikil og veröldin er víð, bæði á sviði
anda og efnis.
Gætið að J)ví, að hér er ég ekki að tala um guðfræði eða