Morgunn - 01.06.1970, Blaðsíða 17
M O R G U N N
11
hyggjan um þessar mundir, að málið hélt áfram að vera
feimnismál hjá þeim, sem ekkert þekktu til þess. Jafnvel
prestar og prelátar, sem líklegt hefði mátt þykja að tekið hefðu
rannsókn þessari feginshendi, sem studdi það, er kirkjan hafði
ávallt haldið fram um upprisu dauðra, þorðu i fyrstu ekki
nærri að koma. F.imir enn eftir af |)essari neikvæðu afstöðu
ldrkjunnar, eins og sjá má af ofsókn hennar á hendur Pike
hiskupi nýlega. Meðan hann irúði ekki á framlialdslíf, var
hann gerður að biskupi. En þegar kvisaðist, að hann væri far-
inn að hneigjast að trúnni á ódauðleikann vegna athugana á
sálarrannsóknum, söfuðust margir biskupar saman og hófu
ákæru á hendur honum fyrir villutrú og vildu láta reka hann.
Á hverjum páskum prédikuðu þeir þó trúna á ódauðleikann
hástöfum!
Sálarrannsóknafélagið brezka, sem stofnað var árið 1882,
hcfur um tæpt níutiu ára skeið unnið mikið og merkilegt
starf að því að eyða hleypidómum og safna miklum sjóði
sálrænnar reynslu. I>ó að minna bcri nú ef til vill á frábærum
vitmönnum og skörungum vísindanna en var meðal þeirra,
sem voru brautryðjendur sálarrannsóknanna, hefur ]>ó árang-
urinn af starfi félagsins orðið mikill og hleypidómar farið
þverrandi. Nú er svo komið, að fjöldi kirkna og presta starfa
á vegum spíritismans í Englandi og víðar, enda fairist það
mjög í vöx1, að farið sé að nota náðargáfurnar til lækninga i
kristnum kirkjum, eins og var í frnmkristninni. Og hvarvetna
færist nýtt fjör í trúarlífið, þegar horfið er frá gagnslausu
kreddustagli og farið er að gefa gaum að raunverulegum verk-
unum andans, sem gerast engu siður í dag en fyrir mörgum
öldum.
Enn vilja menn sjá mcð eigin augum himnana opnast og
kraftaverk gerast og lifa þannig í „samfélagi heilagra" á hinmi
og jörðu, eins og frumkristnin gerði. Margra alda gamlar
sagnir duga ekki til lilandi trúar og því síður úreltar skýr-
ingar á þeim. Nútíminn þarfnast þess að sjá fyrirbrigðin sjálf
og rannsaka þau.