Morgunn - 01.06.1970, Blaðsíða 75
MORGUNN
69
hélt að skipið væri i'arið austur. Sendi ég þá einn af mönnum
minum, Gísla Olafsson Frydendal, að Ásseli lil þess að biðja
•ióa að komast eftir því hvar skipið væri Var Gísli þar um
nottina, en kom lil Þórshafnar um morguninn fyrir hádegi.
Flutti hann þau skilaboð frá Jóa, að ég mætti vera rólegur,
þvi skipið kæmi lil Þórshafnar um tvöleylið. Kvaðst hann hafa
soð skipið sigla fram með lágu landi og að í brúnni hafi staðið
niaður ekki ósvipaður mér og alskeggjaður. Skipið kom um
sama leyli og Jói hafði sagl fyrir um. Ég spurði skipstjórann,
er hét Endresen og var maður alskeggjaður, hver hefði verið
1 brúnni um miðnættið. Kvaðst hann hafa verið þar sjálfur
°g þeir þá verið að sigla meðfram Flatey á Sjálfanda.
Þessa sögu skipstjóra staðfestir einnig dr. Guðmundur Finn-
óogason, sem var farþegi á skipinu i þessari ferð.
Grái geldinguriiin.
Þessi er frásögn Péturs bónda Metúsalemssonar, er þá bjó
c>ð Haflgilsstöðum:
Haustið 1908, skömmu fyrir veturnætur, vorum við Jó-
bannes (Drauma-Jói), sem þá var húsmennskumaður hjá
^101-, að smala fé okkar að beitarhúsum, sem standa austan
V)ð Stóru-Kverká. í>egar við höfðum talið féð, kom í Ijós, að
('ina kindina vantaði. Reyndist það vera grár lambgeldingur,
sem eg átti, eftirlætislamb. Segi ég Jóa, að nú muni tófan að
l'kindum hafa drepið Grána, en bið hann að reyna að láta
S1g dreyma hann um nóttina.
Élm morguninn segir hann sig hafa dreymt Grána og muni
bann ekki vera dauður. Spyr hann hvort ekki geti hugsazt,
að tvær kindur vanti, þvi hann hafi séð hvíta kind með honum
'nrist í Hallgilsstaðahlíðum niður af svonefndum Hlíðarenda.
Ég fór því að atliuga fjártöluna betur og mundi þá eftir því,
að nýlega hafði verið rekið lil min prestslamb frá Sauðanesi,
°g bafði ég gleymt að taka það með í töluna kvöldið áður.
Að afloknum morgunverði lagði ég af stað i leitina. Þegar
( g kom í nánd við þann stað, er Jói hafði til vísað, sé ég tvær