Morgunn - 01.06.1970, Blaðsíða 46
40
M O R G U N N
og hún væri orsökin, þá er erfitt að skýra það, hvers vegna
oft fékkst betri árangur, þegar næsta tilraun var hafin án þess
að teljandi hlé væri þar á milli.
Loks er þess að geta, að þegar við vorum að framkvæma
þessar tilraunir, láðist okkur, eins og áður er getið, að veita
þvi atriði nægilega athygli, að þeir fletir teninganna, sem
tilraunirnar snerust um, komu langsamlega oftast upp i fyrstu
lotu hverrar tilraunar. Og því siður datt okkur þá í hug, að
þetta atriði yrði tekið til sérstakrar athugunar átta árum
seinna, og þetta mikilvæga atriði þá fyrst leitt i ljós og sannað.
Sú uppgötvun var þvi í engum tengslum við það, sem fyrir
okkur vakti, er við framkvæmdum tilraunirnar. Sem vitnis-
hurður um PK fyrirbæri eða sálarorku eru þessar athuganir
löngu eltirá á skýrslu okkar afar mikilvæg sönnun. Þær eru
framkvaí'mdar af algerléga óvilhöllum manni. Þess vegna eru
þær út af fyrir sig ekki hlilvæg stoð þess, að hin sérstaka PK
eða sálarorka sé fyrir hendi. Og það var ekki fyrr en þessum
og fjöldamörgum öðrum stoðum hafði verið rennt undir til-
raunir okkar, að við töldum okkur vera undir það búna að
mæta hvers konar mótbárum, sem unnt væri að láta sér detta
i hug. Rannsóknirnar voru komnar á traustan og fastan grund-
völl.
í skýrslunni um PK rannsóknirnar lágu staðreyndirnar
fyrir likt og steingerð lög í jarðvegi. Öllum, sem til þess voru
hæfir, stóð til boða að endurskoða og rannsaka þessar frá-
sagnir til þess að ganga úr skugga um það, hvort einhverju
væri þar ábótavant. Við komum ekki auga á neina aðra skýr-
ingu á þessum fyrirbærum en þá, að hér sé sálarorka að starfi,
né heldur hafa aðrir gert það. Samkvæmt rannsóknum okkar
geta þau ekki stafað frá neinu öðru en slíkri orku. Áhrifin á
teningana voru eingöngu sálræns eðlis. Teningarnir sjálfir
áttu engan þátt í niðurstöðunum, né heldur það, hvernig þeim
var kastað. Það gerði engan mismun, þótt þeim væri kastað
úr þar til gerðu tæki eða vél. Samræmið i því, hvernig dró
úr árangrinum við endurtekningu, ber vitni undantekningar-