Fréttatíminn - 15.06.2012, Page 18
V
ene, vidi, vici voru fleyg orð sem féllu, eftir því sem næst
verður komist af vörum Júlíusar Cesars Rómarkeisara árið
47 fyrir Krist þegar hann lagði undir sig borgina Zela í
Tyrklandi í stuttum og snörpum bardaga. Á okkar ástkæra
ylhýra mætti þýða þetta sem: Ég kom, ég sá, ég sigraði.
Þessi orð Cesars getur úkraínski framherjinn Andryi Shevchenko
hæglega gert að sínum eftir frammistöðuna á Ólympíuleikvanginum í
Kænugarði á mánudagskvöldið þegar hann skoraði bæði mörk þjóðar
sinnar í óvæntum 2-1 sigri Úkraínumanna á Svíum á Evr-
ópumótinu. Shevchenko var afskrifaður fyrir keppnina,
talinn útbrunninn 35 ára gamall gaur sem hafði
komið heim til Úkraínu með skottið á milli lappanna frá Evrópu árið
2009 til þess að geispa golunni sem fótboltamaður. Eða þá til að rísa
upp eins og fuglinn Fönix forðum líkt og Svíar komust að á mánudags-
kvöldið.
Og þótt Shevchenko sé ekki sá hæsti loftinu, rétt rúmir 180 sentimetrar,
þá voru mörkin tvö skoruð með hausnum, það fyrra af miklu harðfylgi en
seinna með útsjónarsemi. Hafi menn haldið að þessi markahrókur hafi tapað
töfrunum þá afsannaði Shevchenko það. Gleymdur var hörmungartími hjá Chel-
sea þar sem hann skoraði í fimmta hverjum leik. Sömuleiðis átján leikja lánstími
hjá AC Milan þar sem ekkert mark frá honum leit dagsins ljós. Shevchenko mánu-
dagsins minnti á Shevchenko á Milan-tímabilinu árin 1999 til 2006. Þá var kappinn
einn besti framherji heims, sem allir andstæðingar óttuðust. Frakkar og Englending-
ar, komandi mótherjar Úkraínu, ættu líka að gera það miðað við formið sem hann er í.
Lærisveinn Lobanovskyi
Shevchenko er uppalinn hjá stórliðinu Dynamo Kiev undir handleiðslu stórþjálfarans
Valeryi Lobanovskyi. Samband þeirra var sérstakt enda Lobanovskyi sá sem hafði
hvað mest áhrif á feril Shevchenkos. Sú staðreynd að það fyrsta sem hann gerði
eftir að hafa unnið meistaradeildina með AC Milan vorið 2003 var að fara að gröf
lærimeistara síns, sem lést árið 2002, og leggja verðlaunapeninginn þar. Undir Lob-
anovskyi hjá Dynamo Kiev varð Shevchenko stórstjarna sem raðaði
inn mörkum fyrir liðið í deild og Evrópukeppni sem og landsliðið.
Ekki leið á löngu þar til ítalska stórliðið AC Milan bankaði á dyrnar,
keypti hann fyrir 2,5 milljarða og gerði hann að dýrasta leikmanni í
sögu félagsins.
Meistarataktar hjá Milan
Hjá AC Milan reis stjarna Shevchenko hæst. Á þeim sjö árum sem
hann spilaði með liðinu varð hann deildarmeistari, bikarmeistari og
Evrópumeistari, tvívegis markakóngur deildarinnar og síðan besti
leikmaður Evrópu árið 2004. Hann er annar markahæsti leikmaður-
inn í sögu félagsins og sá sem hefur skorað flest mörk í grannaslag
við Inter. Á AC Milan-tímanum var Shevchenko einn af bestu fram-
herjum heims, dýrkaður og dáður um alla Evrópu – og goðsögn í
Mílanóborg. Silvio Berlusconi, hinn umdeildi eigandi AC Milan, er
guðfaðir eldri sonar hans og tískukóngurinn Giorgio Armani er á
meðal bestu vina hans. Og gott gengi með Milan kallaði á athygli frá
Englandi.
Lóðrétt niður í London
Sumarið 2006 rættist blautur draumur Rússans moldríka Romans
Abramovich, eiganda Chelsea, sem keypti Shevchenko fyrir þrjá-
tíu milljónir punda. Óhætt er að segja að dvöl Úkraínumannsins
í London hafi verið martröð. Hann var oft á bekknum og mörkin
voru teljandi fingrum beggja handa. Mesti markahrókur Evrópu var
orðinn bitlaus, ljónið var orðið að heimilisketti. AC Milan bjargaði
honum frá martröðinni í London árið 2008 en ekki tók betra við þar.
Átján leikir í deild og ekkert mark. Ballið var búið og tími til að halda
heim á leið – í faðm uppeldisklúbbsins Dynamo Kiev. Þar hefur hann
átt þokkalegu gengi að fagna en ekki slíku að hann hafi risið úr ösku-
stónni – ekki fyrr en á mánudagskvöldið þegar hann sýndi af hverju
hann var á sínum tíma talinn vera besti framherji Evrópu.
Kom, sá og sigraði
1-0 Shevchenko sést hér skora fyrra mark sitt gegn Svíum. Nordic Photos/Getty Images
Um Shevchenko
Aldur: 35 ára
Hjúskaparstaða: Giftur bandaríksu
fyrirsætunni Kristen Pazik og á
með henni tvo syni.
Leikir/mörk: 653/326
Landsleikir/mörk: 109/50
Flestir knattspyrnuáhugamenn voru búnir að afskrifa úkraínska
framherjann Andryi Shevchenko áður en EM hófst. Enda má
hinn 35 ára gamli Shevchenko muna sinn fífil fegurri frá því að
hann var valinn besti knattspyrnumaður Evrópu árið 2004. Á
mánudagskvöldið í Kiev minnti þessi markahrókur hins vegar á
sig svo um munar með tveimur mörkum gegn
Svíum og sýndi að lengi lifir í gömlum
glæðum.
Hetjan Andryi Shevchenko
fagnar hér marki gegn
Svíum á mánudag. Nordic
Photos/Getty ImagesÓskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
ÁRANGUR
Dreifingaraðili: Yggdrasill ehf.
GRUNNPAKKI NOW
G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i
Grunnpakki Kára Steins
Frábær viðbót
Grunnpakkinn frá NOW
inniheldur þau lykil-
næringarefni sem flestir
fá ekki nóg af.
„Til að ná hámarks árangri
þarf ég að gera miklar kröfur
til sjálfs mín og þess sem
ég læt ofan í mig.
Ég vel bætiefnin frá NOW
vegna þess að þau tryggja að
líkaminn fái þau næringar-
efni sem hann þarfnast og
eru unnin úr hágæða hráefnum,
að miklu leyti lífrænt vottuðum,
sem eru framleidd og prófuð
samkvæmt ströngustu
gæðastöðlum.
Ég vel NOW!“
Kári Steinn Karlsson,
hlaupari og ólympíufari.
18 fótbolti Helgin 15.-17. júní 2012