Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1998, Side 30

Læknablaðið - 15.12.1998, Side 30
OMR 2,5 mg, MSD) í lyfjablöndu COZ4kR (lósartan, MSD)1105 kf0. d dttCjí (heildarverð) COZ4NI COMP: 105 kr. á dag B-merkt lyf- 100 daga skammtur kostar 1500 kr. fyrir sjúklinginn Þolist vel - Cozaar Comp. (MSD, 950133) Töllur; C09 DA 01 R B Hver tafla inniheldur: Losartanum INN, kaliumsalt, 50mg og hydrochlorothiazidum INN 12,5 mg. Eiginleikar: Lósartan blokkar AT1 viðtæki ( vefjum, meðal annars í sléttum veggjum æða. Lyfið keppir við angíótensín II hormón og kemur í veg fyrir samdrátt grannra slagæða og lækkar blóðþrýsting. Plasma renín virkni og angíótensin II þéttni í sermi eykst þegar lyfið er gefið. Lósartan frásogast að fullu. 2/3 hlutar lyfsins umbrotna fljótt og aðgengi er 33 %. Lyfið umbrotnar í lifur og eitt umbrotsefni er virkt. Hámarksþéttni lyfsins í sermi næst eftir 1 klst, en umbrotsefnið hefur miklu lengri helmingunartíma, eða um 9 klst. Eftir 24 klst er enn verulegur hluti virks umbrotsefnis í sermi. Helmingur (58%) umbrotsefna útskiljast í hægðum og 35% i þvagi. Nýrnabilun hefur ekki áhrif á útskilnað lyfsins, en hjá lifrarbiluðum einstaklingum er aðgengi verulega aukið. Tíazíð er þvagræsilyf með blóðþrýstingslækkandi verkun. Blokkar enduruppsog natríumjóna í nýrnagöngum og eykur nýrnaútskilnað natríums, klóríðs, kalsiums, magnesíums, bíkarbónats og vatns. Minnkar nýrnaútskilnað kalíums. Lengd verkun- ar er 6-12 klst. Ábendingar: Háþrýstingur, hjá sjúklingum sem þurfa á fjöllyfjameðferð að halda. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum. Sjúklingar með þvagþurrð (anuria). Sjúklingar með ofnæmi fyrir súlfonamið- afleiðum. Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið á ekki að nota á meðgöngu þar sem lyf skyld lósartani, ACE-hamlar, geta valdið fósturskemmdum. Ekki á heldur að nota lyfið hjá konum með börn á brjósti, þar sem tíazíð skiljast út [ brjóstamjólk, en ekki er kunnugt um hvort lósartan skilst út í brjóstamjólk. Varúð: Lyfið á ekki að nota hjá sjúkl- ingum með skerta lifrarstarfsemi eða alvarlega skerta nýrnastarfsemi (kreatíninklerans <30 ml/mín). Lyfið á ekki að nota hjá sjúklingum með þrengsli i nýrnaslagæðum. Eins og á við um alla háþrýstingsmeðferð getur lágþrýst- ingur með einkennum komið fyrir. Þetta sést helst hjá sjúklingum með vökva- og elektrólýtatruflanir. Mælingar á elektrólýtum á að framkvæma með viðeigandi millibili, eins og hjá sjúklingum, sem fá meðferð með þvagræsi- lyfjum. Tíazíðmeðferð getur haft áhrif á sykurþol. Leiðréttingar á lyfjaskömmtum við meðferð á sykursýki, þ.m.t. viðbótarverkunm' insúlinskömmtum, getur verið nauðsynleg. Aukaverkanir: Algengar (>1%): Almennar: Svimi. Sjaldgæfar (0,1- 1%): Stöðubundinn lágþrýstingur. Mjög sjaldgælar (<0,1%,): Almennar: Ofnæmisbjúgur (einkum iandliti, vörum og tungu). Meltingarfæri: Niðurgangur. Breytingará blóðgildum: ') klínískum rannsóknum voru klínískt mikilvægar breytingar á blóðgildum sjaldan tengdar Cozaar Comp. gjöf. Hækkað kalíum i blóði (>5,5 mmól/l) kom fyrir hjá 0,3% sjúklinga, en i þessum rannsóknum, var ekki þörf á að hætta meðferð með Cozaar Comp. vegna hækkunar á kalíum i blóði. Hækkanir á ALAT komu sjaldan fyrir og gengu venjulega tilbaka þegar meðferð var hætt. Milli- verkanir: Engar þekktar vegna lósartans. Eftirfarandi lyf gætu haft milliverkun við tíazíð þvagræsilyf: Alkohól, barbitúröt eða svefnlyf (aukning á ortóstatiskum lágþrýstingi getur komið fyrir), sykursýkislyf (í töfluformi eða in- súlín, þörf getur verið á að leiðrétta skammta á sykursýkislyfi), önnur háþrýstingslyf (viðbótaráhrif á blóðþrýst- ing), kólesterólamín og kólestipól (gallsýrubindandi lyf, frásog af hýdróklórtíaziði minnkar þegar gallsýrubindandi lyf er gefið með), barkstera og ACTH (aukin hætta á kaliumskorti), litíum (þvagræsilyf minnka nýrnaútskilnað lití- ums og auka hættu á litíumeitrun), bólgueyðandi lyf (geta minnkað blóðþrýstingslækkandi áhrif þvagræsilyfs). Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur upphafs- og viðhaldsskammtur er ein tafla einu sinni á dag. Hámarksskammturinn er tvær töflur einu sinni á dag. Oftast nást blóðþrýstingslækkandi áhrif innan þriggja vikna frá upphafi meðferðar. Sömu skammta má gefa öldruðum. Lyfið má gefa með öðrum háþrýstingslyfjum. Cozaar Comp. má gefa með eða án matar. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð: 28 stk (þynnupakkað); 3523 kr (sept, 1997) 98 stk (þynnupakkað). 10276 kr.(sept, 1997) íslenskur umboðsaðili: Farmasía ehf, Siðumúla 32,108 Reykjavík. 'Skráð vörumerki af E.l.du PONT de NEMOUR & CO., Wilmington. Tilv.: Mac Kay et al. Losartan and Low-Dose Hydrochlorothiazide in patients with Essential Hypertension. A Double Blind Placebo-Controlled Trial of Concomitant Administration Compared with Individual Components. Arch Intern Med 1996;156:278-285. AP\-HVZ-DK-0397. HBMBURGER. Ju\i 1997 / PRENTTi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.