Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1998, Page 69

Læknablaðið - 15.12.1998, Page 69
Engirm er eyland Baráttan við þunglyndi snertir alla - áhrifarík lyfjameðferð getur hjálpað. Áról (Omega Farma, 950139). TÖFLUR; N 06 A G 02 R, B Hvertafla inniheldur: Moclobemidum INN 100 mg, 150 mg eða 300 mg. Eiginleikar: Móklóbemíð er geðdeyfðarlyf. Verkun lyfsins byggist á því að það blokkar mónóamínoxídasa A (MAO-A), sérhæft og afturkræft. Þetta leiðir til minnkaðra umbrota noradrenalíns, dópamíns og serótóníns. Þar sem móklóbemíð blokkar MAO-A afturkræft eru ekki taldar líkur á blóðþrýstingshækkun vegna milliverkana við týramín. Aðgengi lyfsins við langtímanotkun er allt að 90%. Blóðþéttni nær hámarki um 1 klst. eftir inntöku, dreifingarrúmmál er nálægt 1,2 l/kg og próteinbinding í plasma er u.þ.b. 50%. Helmingunartími í blóði er 1-2 klst. og lengist lítillega með vaxandi skömmtum. Umbrot lyfsins eru háð skömmtum. Það oxast nær algerlega í óvirk umbrotsefni, sem skiljast út í nýrum. Ábendingar: Geðdeyfð, aðallega innlæg geðdeyfð. Erfið eða langvarandi útlæg geðdeyfð. Frábendingar: Bráð ruglun (confusio mentis). Ofstarfsemi skjaldkirtils. Pheochromocytoma. Samtímis notkun selegilíns. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf: Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum, en í dýratilraunum hefur aukin hætta á fósturskemmdum ekki komið í Ijós. Lyfið útskilst í brjóstamjólk. í venjulegum skömmtum virðist hætta á áhrifum á barnið ólíkleg. Aukaverkanir: Algengar (>1%): Svimi, höfuðverkur, ógleði, niðurgangur og svefntruflanir. Sjaldgæfar (0,1-1%): Slappleiki, blóðþrýstingslækkun, bjúgur, breytingar á bragðskyni, lystarleysi, meltingartruflanir, munnþurrkur, rugl og óróleiki. Milliverkanir Milliverkun við týramín hefur ekki klíníska þýðingu, en þó er mælt með því, að lyfið sé tekið inn eftir maL Címetidín hægir á umbrotum lyfsins og getur þurft að minnka móklóbemíð skammta við samtímis gjöf þessara lyfja. Móklóbemíð eykur áhrif íbúprófens og morfínlíkra lyfja og getur aukið áhrif adrenvirkra lyfja. Hefja má meðferð með öðrum geðdeyfðarlyfjum (m.a. þríhringlaga lyfjum) strax þegar notkun móklóbemíðs hefur verið hætt og öfugt. Varúð: Hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi þarf að minnka skammta. Sjálfsmorðshneigð getur aukist í upphafi meðferðar. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur byrjunarskammtur er 300 mg á dag, venjulega gefið í tveimur til þremur skömmtum. Gera má ráð fyrir að full verkun fáist eftir 4-6 vikna meðferð. Þegar árangur kemur i Ijós má minnka skammtinn. Hámarksdagskammtur er 600 mg á dag. Taka skal lyfið inn eftir máltíð. Sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi skal gefa minni skammta. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Pakkningar og verð: Töflur 100 mg: 30 stk. 1.904 kr.; 100 stk. 5.289 kr. Töflur 150 mg: 30 stk. 2.409 kr.; 100 stk. 7.170 kr. Töflur 300 mg: 30 stk. 4.051 kr.; 100 stk. 12.283 kr. ÁRÓL (móklóbemíð) - nýtt og áhrifaríkt íslenskt geðlyf Q Omega Farma
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.